Dagskráin í dag: Hátíð í bæ Aron Guðmundsson skrifar 11. febrúar 2026 06:01 Gísli Þorgeir í leik með Íslandi á nýafstöðnu Evrópumóti. Hann mætir til leiks með stórliði Magdeburgar í kvöld. Vísir/Vilhelm Það er óhætt að segja að þessi miðvikudagur sé stútfullur af frábærum íþróttaviðburðum sem sýndir verða í beinni útsendingu á sportrásum Sýnar.
Enski boltinn Tuttugasta og sjötta umferð ensku úrvalsdeildarinnar heldur áfram að rúlla í dag. Það eru fimm leikir á dagskrá deildarinnar og hægt verður að fylgjast með öllu því helsta úr þeim öllum í DocZone á Sýn Sport í umsjón Hjörvars Hafliðasonar. Bein útsending hefst klukkan tíu mínútur yfir sjö. Fjórir af fimm leikjum kvöldsins hefjast klukkan hálf átta. Á Sýn Sport 3 tekur Manchester City á móti Fulham. Mikilvægur leikur fyrir City sem vill halda í við topplið Arsenal og byggja ofan á góðan sigur gegn Liverpool á Anfield um síðustu helgi. Á Sýn Sport 4 verður svo sýnt beint frá leik Aston Villa og Brighton, á Sýn Sport 5 tekur Crystal Palace á móti Burnley og á Sýn Sport 6 veðrur sýnt beint frá fallbaráttuslag Nottingham Forest og Wolves. Klukkan koter yfir átta hefst svo leikur Sunderland og Liverpool í beinni útsendingu á Sýn Sport 2. Evrópubikarinn í fótbolta Þá verð ég að beina sjónum ykkar að beinni útsendingu frá fyrri leik sænsku meistaranna í liði Hacken gegn Íslandsmeisturum Breiðabliks í átta liða úrslitum Evrópubikars kvenna í fótbolta. Leikurinn verður sýndur á Sýn Sport Ísland 4 rásinni og hefst klukkan hálf sex. Gísli Þorgeir og Ómar Ingi í eldlínunni Það er ekkert sem segir að handboltaæði þjóðarinnar þurfi að hætta um leið og janúar rennur sitt skeið. Keppni er hafin á nýjan leik í þýsku úrvalsdeildinni, bestu deild í heimi og þar mæta okkar menn, Gísli Þorgeir og Ómar Ingi, til leiks með toppliði Magdeburgar í mikilvægum leik gegn Lemgo. Algjör stórslagur þarna á ferð sem verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay og hefst klukkan sjö. Bónus deild kvenna Spennan í Bónus deild kvenna í körfubolta er svakaleg og deildin merkilega jöfn. Það eru þrír leikir á dagskrá deildarinnar í kvöld og allir eru þeir sýndir í beinni útsendingu á sportrásum sýnar. Á Sýn Sport Ísland verður á dagskrá stórslagur Grindavíkur og Vals sem hefst klukkan korter yfir sjö. Á sama tíma á Sýn Sport Ísland 2 mætast Hamar/Þór og Tindastóll. Á Sýn Sport 3 verður svo sýnt beint frá leik Njarðvíkur og Ármanns. Formúla 1 Ójá! Við getum sagt að Formúlu 1 tímabilið, tímabilið á nýrri kynslóð Formúlu 1 bíla, hefjist í dag þegar að fyrsti dagur prófana í Barein fer fram. Að sjálfsögðu sýnum við beint frá því á Sýn Sport Viaplay, heimili Formúlu 1 á Íslandi, og hefjum leika klukkan tíu mínútur í þrjú.
Dagskráin í dag Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Salah mættur til Tyrklands Fótbolti Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Alcaraz dregur sig aftur úr keppni Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Fór grátandi af velli Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Æfir blindandi og skýtur á eigandann Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Dagskráin í dag: Svarthvítur slagur og Stúkan Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Sjá meira