Leiktjöldin Davíð Bergmann skrifar 11. febrúar 2026 07:22 Það er eitthvað meira en lítið bogið við það að rannsóknin á brunanum á Stuðlum skuli teygja sig yfir 17 mánuði og að sakborningarnir séu orðnir níu talsins. Ég vona innilega að ég sé ekki einn um þá skoðun að það sé ómannúðlegt að láta fólk dvelja í slíkri óvissu jafn lengi og raun ber vitni – fólk sem taldi sig vera að vinna vinnuna sína af heilindum við erfiðar aðstæður. Þessi dráttur er óskiljanlegur. Ég þekki starfsemina á Stuðlum vel eftir tæp 17 ár þar innanhúss, bæði sem ráðgjafi, hópstjóri og vaktmaður. Ég man vel eftir fyrri brunanum og vann sjálfur á neyðarvistuninni þar sem nýjasta slysið varð. Þótt ég þekki ekki smáatriði þessa tiltekna atviks, annað en að tveir starfsmenn hafi verið á vakt, þá veit ég af reynslunni að svona mál eiga sér alltaf fleiri en tvær hliðar. Með þessu er ég ekki að gera lítið úr neinu, heldur þvert á móti; þetta er hryllilegur harmleikur fyrir alla hluthafa og hugur minn er hjá aðstandendum drengsins og líka starfsmönnum og fjölskyldum þeirra. Þegar völdin spilla Harmleikir eins og Breiðavíkurmálið, Laugaland og Bakkakot fengu að viðgangast vegna þess að fólk taldi sig geta gert hvað sem er í skjóli kerfisins og eftirlitið klikkaði. Þegar fólk er komið með ótakmarkað vald yfir varnarlausum börnum getur illa innrætt fólk misnotað það vald á hrottalegan hátt. Mér er sérstaklega minnisstæð heimsókn starfsmanna Stuðla að Laugalandi hér á árum áður. Þegar við sátum í rútunni á leiðinni heim ræddum við nokkrir reynslumiklir starfsmenn saman um hversu óeðlilega fullkomið allt virtist vera. Það sást ekki rykkorn, yfirborðið var slétt og fágað og stúlkurnar nánast heilsuðu okkur með hermannakveðju. Við vorum sammála um að þarna hefðu verið sett upp leiktjöld. Það er sár tilhugsun í dag að maður hafi ekki treyst eigin innsæi og rannsakað málið frekar því síðar kom í ljós að tilfinningin var rétt: það var ekki allt með felldu. Barn flutt eins og ferðataska Ég þekki það sjálfur á eigin skinni að vera rifinn upp með rótum af valdastofnunum. Sem barn var ég fluttur á milli landshluta eins og hver önnur ferðataska, einfaldlega vegna þess að ég varð ekki læs nógu snemma. Barnavernd Kópavogs stillti foreldrum mínum upp við vegg og hótaði að taka mig af þeim til sjálfræðisaldurs ef þeir afsöluðu mér ekki í þeirra hendur. Við tók vistun á misjöfnum heimilum þar sem æskunni var beinlínis rænt á sumum þeirra. Tengslaröskunin var algjör og á sumum stöðum var foreldrum mínum bannað að hafa samband við mig svo það „truflaði ekki vistunina“. Allt var þetta vegna höfuðhöggs sem ég fékk sem barn sem leiddi til námserfiðleika. Á árunum 1979–80 þýddi það einfaldlega að maður var stimplaður „tossi“ eða letingi sem væri „óalandi og óferjandi“. Ég gleymi því aldrei þegar pabbi, á dánarbeði sínu 91 árs að aldri, grátbað mig fyrirgefningar á því að hafa ekki getað stöðvað þetta því þetta hafði legið eins og mara á honum allt lífið og taldi sig hafa brugðist mér. Foreldrar mínir áttu aldrei séns í kerfinu. Þeim hef ég fyrirgefið en barnaverndinni mun ég aldrei fyrirgefa. Stimpillinn sem eyðileggur líf Sársaukinn situr víða. Ég man enn þegar ég þurfti að standa við hlið kennaraborðsins í nestistímanum og lesa upphátt fyrir bekkinn, níu ára. Ég stamaði, eldrauður í framan, á meðan kennarinn greip fram í fyrir hvert orð sem ég bar rangt fram, þar til hann sagði loks fyrirlitlega: „Farðu og sestu, þú verður aldrei neitt nema aumingi með þessa frammistöðu.“ Niðurlægingin var slík að ég man þetta eins og þetta hafi gerst í gær. Í „Tossaskólanum“ sem ég var sendur í kynntist ég dreng sem var ári eldri en ég. Í þessum skóla voru líka alvarlega þroskaskertir einstaklingar og það sér það hver í hendi sér að það var ekki til að bæta sjálfsmyndina því nóg var eineltið á þessum árum og hugtakið einelti var ekki til einu sinni þá. Hann hefur varið meira en hálfri ævinni á bak við lás og slá, eyðilagður af kerfinu, og mun líklega vera á framfæri ríkisins þar til hann dregur síðasta andardráttinn. Þetta ætti að vera samfélaginu víti til varnaðar. Við þurfum að vakna og gera eitthvað róttækt í stað þess að horfa upp á leiktjöldin. Enginn fæðist vondur – það er kerfið sem oft býr til þann sársauka ómeðvitað og meðvitað sem síðar verður að vandamáli. Höfundur er áhugamaður um betra samfélag. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Davíð Bergmann Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar