Strætó fyrir sum börn, ekki öll Karólína Helga Símonardóttir skrifar 11. febrúar 2026 16:02 Við fjárhagsáætlunarvinnu Hafnarfjarðarbæjar síðustu fjögur ár lagði ég fram tillögu að Hafnarfjarðarbær niðurgreiði fargjöld hafnfirskra barna í strætó. Tillögunni hefur alltaf verið hafnað af meirihlutanum. Þetta er réttlætismál sem fleiri hafa bent á, þetta ákall er ekki að byrja í dag. Ég sem fulltrúi Viðreisnar í fræðsluráði Hafnarfjarðar hef ítrekað kallað eftir því að bærinn stígi hér inn, fyrir börnin okkar. Í dag kostar árskort í strætó fyrir ungmenni 58.000 krónur. Árið 2021 ákvað stjórn Strætó að hækka árskort barna úr 25.000 krónum í 40.000 krónur. Kortin hafa hækkað á hverju ári síðan þá. Á fimm árum hefur verð á árskortum barna og ungmenna hækkað um 33.000 krónur. Þetta þýðir að fjölskylda með þrjú börn á aldrinum 12 til 18 ára þarf að greiða sem nemur 174.000 krónur á ári svo að börnin geti valið umhverfisvænni ferðamáta og notað almenningssamgöngur í sínu daglega lífi. Svo að foreldrarnir þurfi ekki að fara úr vinnu til að skutla, svo börnin geti komið sér á milli staða. Ábatinn af því að niðurgreiða fargjöld barna og ungmenna í strætó er gífurlegur. Það tryggir jöfnuð, öll börn og ungmenni hafa greiðan aðgang að almenningssamgöngum til þess að komast í og úr skóla, frístund eða öðru félagsstarfi. Það að börn noti strætó eykur sjálfsöryggi þeirra, þau læra að ferðast sjálfstætt og kynnast samgöngukerfinu. Einnig eykur það líkurnar á því að þau velji að nýta slíkar samgöngur áfram á fullorðinsárum. Síðast en ekki síst þá eru það umhverfisáhrifin, færri ferðir á einkabílum draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Í öll þessi ár sem fulltrúi Viðreisnar hefur mótmælt þessari stefnu Strætó hafa komið þau svör að fjárhagur Strætó sé ekki góður og ekki sé hægt að bjóða upp á frítt fyrir einn af stærstu notendahópum strætó. Gott og blessað, í því ljósi hefur fulltrúi Viðreisnar ítrekað lagt fram tillögu í Fræðsluráði Hafnarfjarðar og Bæjarstjórn Hafnarfjarðar um að Hafnarfjarðarbær niðurgreiði strætókort barna og ungmenna, þeirri tillögu hefur alltaf verið hafnað. Höfundur er oddviti Viðreisnar í Hafnarfirði Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Karólína Helga Símonardóttir Viðreisn Hafnarfjörður Strætó Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Skoðun Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Við fjárhagsáætlunarvinnu Hafnarfjarðarbæjar síðustu fjögur ár lagði ég fram tillögu að Hafnarfjarðarbær niðurgreiði fargjöld hafnfirskra barna í strætó. Tillögunni hefur alltaf verið hafnað af meirihlutanum. Þetta er réttlætismál sem fleiri hafa bent á, þetta ákall er ekki að byrja í dag. Ég sem fulltrúi Viðreisnar í fræðsluráði Hafnarfjarðar hef ítrekað kallað eftir því að bærinn stígi hér inn, fyrir börnin okkar. Í dag kostar árskort í strætó fyrir ungmenni 58.000 krónur. Árið 2021 ákvað stjórn Strætó að hækka árskort barna úr 25.000 krónum í 40.000 krónur. Kortin hafa hækkað á hverju ári síðan þá. Á fimm árum hefur verð á árskortum barna og ungmenna hækkað um 33.000 krónur. Þetta þýðir að fjölskylda með þrjú börn á aldrinum 12 til 18 ára þarf að greiða sem nemur 174.000 krónur á ári svo að börnin geti valið umhverfisvænni ferðamáta og notað almenningssamgöngur í sínu daglega lífi. Svo að foreldrarnir þurfi ekki að fara úr vinnu til að skutla, svo börnin geti komið sér á milli staða. Ábatinn af því að niðurgreiða fargjöld barna og ungmenna í strætó er gífurlegur. Það tryggir jöfnuð, öll börn og ungmenni hafa greiðan aðgang að almenningssamgöngum til þess að komast í og úr skóla, frístund eða öðru félagsstarfi. Það að börn noti strætó eykur sjálfsöryggi þeirra, þau læra að ferðast sjálfstætt og kynnast samgöngukerfinu. Einnig eykur það líkurnar á því að þau velji að nýta slíkar samgöngur áfram á fullorðinsárum. Síðast en ekki síst þá eru það umhverfisáhrifin, færri ferðir á einkabílum draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Í öll þessi ár sem fulltrúi Viðreisnar hefur mótmælt þessari stefnu Strætó hafa komið þau svör að fjárhagur Strætó sé ekki góður og ekki sé hægt að bjóða upp á frítt fyrir einn af stærstu notendahópum strætó. Gott og blessað, í því ljósi hefur fulltrúi Viðreisnar ítrekað lagt fram tillögu í Fræðsluráði Hafnarfjarðar og Bæjarstjórn Hafnarfjarðar um að Hafnarfjarðarbær niðurgreiði strætókort barna og ungmenna, þeirri tillögu hefur alltaf verið hafnað. Höfundur er oddviti Viðreisnar í Hafnarfirði
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar