Orðræðu Viðskiptaráðs um loftslagsskatta snúið upp á loftslagsmál og raunveruleikann Bergur Einarsson skrifar 11. febrúar 2026 18:32 Sunnudaginn 8. febrúar síðastliðinn var áhugavert viðtal á Sprengisandi við Björn Brynjúlf Björnsson, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs og Geir Guðmundsson verkfræðing um aukinn kostnað í flugi og flutningum vegna afnáms undanþágu sem Íslendingar hafa lengi notið innan viðskiptakerfis ESB um losunarheimildir koldíoxíðs. Björn Brynjúlfur hafði talsverðar áhyggjur af helstefnu og hættulegum málflutningi umhverfissinna auk efnahagslegs sjálfskaða, óþarfa fórn okkar á einhverskonar altari, að við værum eins froskur sem syði í sífellt heitari skattapotti og mögulegri skerðingu lífskjara á Íslandi. En er rétt að kalla skattlagningu mengunar helstefnu? Hver er hin raunverulega helstefna? Er dýrari flugmiði til London helstefna eða er gjörbreyting á núverandi vistkerfi og aðstæðum á Jörðinni, sem við mannfólkið erum háð og aðlöguð að, raunverulega helstefnan? Vísindarannsóknir sýna svo ekki verður um villst að þær breytingar sem nú þegar eru komnar fram af völdum loftslagsbreytinga hafa mikil neikvæð áhrif á íbúa á mörgum viðkvæmari svæðum heimsins [1]. Er það nokkuð annað en að búa því fólki hel eða helvíti? Raunin er ekki sú að fólk sem berst fyrir eðlilegum aðgerðum í loftslagsmálum sé á móti því að fólk búi á Íslandi. Þvert á móti, þau vilja einmitt að fólk geti búið á Íslandi en vilja líka að fólk hinu megin á hnettinum geti haldið áfram að búa á sínum eyjum. Það mætti frekar halda að þau sem tala gegn aðgerðum í loftslagsmálum vilji ekki að fólk búi á eyjum í Kyrrahafi og láglendum svæðum í Bangladess, svo dæmi séu nefnd. Kannski mætti kalla þetta Kyrrahafsálagið til mótvægis við það sem Viðskiptaráð kallar Atlantshafsálagið. Aukin flóðahætta er þegar farin að valda miklum vandræðum og mörg láglend svæði og eyjar verða óbyggileg með áframhaldandi hækkun sjávarborðs vegna bráðnunar jökla og hita-útþenslu heimshafanna [1]. Hvort ætlum við að „neyða“ okkur til að borga meira fyrir flugmiðann til London eða þau sem að þar búa til að horfa á landið sitt sökkva? Verst er að eitt af því sem mögulega getur gerst af völdum bráðnunar jökla og annarra þátta eru breytingar á veltihringrás Atlantshafsins [2] og ef svo fer skulum við tala saman um að standa vörð um hagsmuni okkar, lífskjör á Íslandi og Atlantshafsálag. Orðanotkun viðmælenda um að við værum í skattamálum eins og froskur sem sýður óafvitandi í sífellt heitari potti færir sig svo alveg sjálf yfir á loftslagsmálin. Við erum froskar á sífellt heitari Jörð. Vissulega munu höfin ekki sjóða og Jörðin ekki eyðast en hvaða áhrif mun hlýnun hafa á okkur mennina? Hver eru áhrif mögulegs hruns í aðfangakeðjum á hagvöxt, verðbólgu og lánakjör á Íslandi, svo ekki sé nú talað um mögulegar stórfelldar breytingar til hins verra á stærð og útbreiðslu fiskistofna í hlýrra og súrara hafi [3]? Það er alveg ljóst að efnahagslegir hagsmunir íslensku þjóðarinnar geta ekki breytt náttúrulögmálunum. Það er viðbúið að það reyni á og hafi aukinn kostnað í för með sér að takast á við loftslagsbreytingar en hver er hinn kosturinn? Gera ekkert og láta afkomendur núverandi kynslóða bera ennþá meiri kostnað, lifa við minni lífsgæði og greiða reikninginn okkar? Verum ekki sofandi og sjóðandi froskar sem hugsa ekki um annað en arð og gróða í síhlýnandi heimi. Vöknum frekar og gerum það sem gera þarf til að slökkva undir pottinum. Það mun einnig að öllum líkindum auka hagsæld okkar allra til bara aðeins lengri tíma litið að bregðast við loftslagsbreytingum strax í dag vegna þess að ódýrara er að takast á við þær í nú þegar heldur en að greiða kostnaðinn af framtíðar afleiðingum þeirra [1]. Höfundur er vatna- og jöklafræðingur Heimildir: [1] IPCC (2022). Climate Change 2022: Impacts, Adaptation and Vulnerability. Contribution of Working Group II to the Sixth Assessment Report of the Intergovernmental Panel on Climate Change. doi:10.1017/9781009325844 [2] https://www.vedur.is/um-vi/frettir/norraen-skyrsla-um-hafstraumakerfi-atlantshafsins-amoc-thorf-a-oflugri-loftslagsadgerdum-voktun-og-vidbunadi [3] Umfang og afleiðingar hnattrænna loftslagsbreytinga og áhrif þeirra á Íslandi, Fjórða samantektarskýrsla vísindanefndar um loftslagsbreytingar. Sjá, https://www.loftslagsbreytingar.is/ Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Loftslagsmál Mest lesið Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar