Talin hafa myrt móður sína og stjúpbróður fyrir skotárásina Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 11. febrúar 2026 21:02 Jesse var nemandi í skólanum fyrir fjórum árum síðan. AP Jesse Van Rootselaar, átján ára, er talin hafa skotið móður sína og stjúpbróður til bana. Hún fór síðan í fyrrverandi skólann sinn þar sem hún skaut aðra sex, þeirra á meðal tólf ára börn.
Jesse Van Rootselaar, átján ára trans kona, er talin hafa skotið móður sína og stjúpbróður til bana á heimili þeirra í Tumbler Ridge í Kanada. Hún hélt þá í skóla í bænum og skaut þar sex aðra til bana. Hin látnu eru 39 ára móðir van Rootselaar, ellefu ára stjúpbróðir hennar, 39 ára kvenkyns kennari við skólann, þrjár tólf ára stelpur og tveir strákar, 12 og 13 ára. Þessu greinir lögreglan frá á blaðamannafundi sem að BBC fjallar um. Einn fannst látinn á stigagangi skólans en hinir á bókasafninu. Jesse fannst látin í skólanum, talið vera vegna áverka sem hún veitti sér sjálf. Fyrst var greint frá því að tíu hefðu látist í árásinni en lögregla staðfestir að níu séu látnir, þeirra á meðal Jesse. Yfir tuttugu eru slasaðir, tveir þeirra alvarlega. Höfðu áður haft afskipti af Jesse Á fundinum segir Dwayne McDonald, lögreglumaður, að lögreglan hafi verið komin að skólanum tveimur mínútum eftir að þeim barst tilkynningin. Lögreglumennirnir héldu af stað inn í skólann þegar þeir heyrðu í byssuskotum. Nokkrum mínútum síðar fundu þeir Jesse sem var látin. Jesse var nemandi í skólanum þar til fyrir fjórum árum þegar hún hætti. McDonald segir engar vísbendingar fyrir hendi um að hún hafi verið lögð í einelti í skólanum. Hins vegar hafi lögreglan nokkrum sinnum haft afskipti af henni á heimili hennar vegna geðrænna vandamála. Jesse var með skotvopnaleyfi sem rann út árið 2024. Lögreglan hafði áður fjarlægt tvær byssur af heimili fjölskyldunnar en þegar réttmætur eigandinn óskaði eftir að fá þær aftur var þeim skilað. Á vettvangi fundust tvær byssur. Þetta er þriðja mannskæðasta skotárásin í Kanada. Sú mannskæðasta var í Nova Scotia árið 2020 þar sem 22 létust. Árið 1989 létust 14 í skotárás í Montreal.
Kanada Tengdar fréttir „Þjóðin syrgir með ykkur“ Mark Carney forsætisráðherra Kanda segir alla þjóðina syrgja með íbúum Tumbler Ridge í Kanada. Tíu eru látin í kjölfar skotárásar í framhaldsskóla í gær. Ástæða skotárásar og tengsl geranda og fórnarlamba hafa ekki verið gefin upp. Fram hefur komið að árásarmaður sé kona en það hefur ekki verið staðfest. 11. febrúar 2026 17:35 Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu Innlent Flytur sig í starfi um 900 kílómetra Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Fleiri fréttir Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Sjá meira
„Þjóðin syrgir með ykkur“ Mark Carney forsætisráðherra Kanda segir alla þjóðina syrgja með íbúum Tumbler Ridge í Kanada. Tíu eru látin í kjölfar skotárásar í framhaldsskóla í gær. Ástæða skotárásar og tengsl geranda og fórnarlamba hafa ekki verið gefin upp. Fram hefur komið að árásarmaður sé kona en það hefur ekki verið staðfest. 11. febrúar 2026 17:35