Tuchel sagður ætla að framlengja samning sinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. febrúar 2026 10:24 Thomas Tuchel ræðir hér málin við Jude Bellingham en samband þeirra hefur verið svolítið stormasamt. Getty/Eddie Keogh Þjóðverjinn Thomas Tuchel mun framlengja samning sinn sem landsliðsþjálfari Englands til og með Evrópumótsins 2028.
Þjóðverjinn tók við stjórnartaumunum í janúar 2025 með samning sem gildir fram að heimsmeistaramótinu í sumar. BBC Sport hefur heimildir fyrir því að hann líti á það sem fágætt tækifæri að stýra Englandi á heimavelli á EM og sé í þann mund að skuldbinda sig til tveggja ára til viðbótar. Lokakeppni Evrópumótsins 2028 verður haldin á Englandi, í Wales, Skotlandi og Írlandi. Enska knattspyrnusambandið vill fyrir sitt leyti tryggja samfellu og eyða vangaveltum um framtíð Tuchels fyrir heimsmeistaramótið. Hinn 52 ára gamli þjálfari hefur verið sterklega orðaður við Manchester United, þar sem Michael Carrick er við stjórnvölinn út tímabilið. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann er talinn líklegur stjóri á Old Trafford og Tuchel er sagður hafa fundað með Sir Jim Ratcliffe, meðeiganda United, í Frakklandi árið 2024 þegar félagið íhugaði að skipta Erik ten Hag út. Í nóvember sagði Tuchel hins vegar að enska landsliðsstarfið hefði „endurnært“ hann og að hann væri opinn fyrir því að framlengja tíma sinn í starfi, eftir að hafa upphaflega verið drifkrafturinn á bak við að skrifa undir 18 mánaða samning. „Ég veit af margra ára reynslu í atvinnumennsku og félagsliðabolta hvað gleður mig og hvað dregur fram það besta í mér,“ sagði hann. „Ég elska að vinna með leikmönnunum og vera nálægt ensku úrvalsdeildinni. Ég veit líka hversu mikinn stuðning og traust ég hef. „Það var ég sem þrýsti á um stuttan samning, til að einfalda málið og fara á heimsmeistaramótið, því ég var ekki fyllilega meðvitaður um starfið og hvað þyrfti og hvernig mér myndi líða í því.“ Tuchel stýrði Englandi til átta sigra í átta leikjum í undankeppni HM og liðið mun leika gegn Króatíu, Gana og Panama í riðli sínum á lokamótinu. 🚨🏴 BREAKING: Thomas Tuchel signs new deal as England head coach until June 2028.“I am very happy and proud to extend my time with England. It is no secret to anyone that I have loved every minute so far of working with my players and coaches, and I cannot wait to lead them to… pic.twitter.com/xopHG2CGU0— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) February 12, 2026
EM 2028 í fótbolta HM 2026 í fótbolta Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Salah mættur til Tyrklands Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Lukaku lætur ekki sjá sig Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Sjá meira