Öryggi, heilbrigðismál, Evrópa og efnahagur á Sprengisandi Samúel Karl Ólason skrifar 15. febrúar 2026 09:32 Kristján Kristjánsson stýrir Sprengisandi á Bylgjunni alla sunnudaga milli 10 og 12. Vísir Sprengisandur er á sínum stað á Bylgjunni í dag en þar fær Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi til sín góða gesti og ræðir við þá samfélagsmálin sem brenna á þjóðinni.
Fyrstu gestir Kristjáns klukkan tíu verða þeir Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur, og Davíð Stefánsson, formaður Varðbergs. Þá munu þeir fjalla um hina árlegu Öryggisráðstefnu í München. Sjá einnig: Mildari tónn en sama innihaldið Fyrir ári settu Bandaríkjamenn allt i uppnám með ræðu varaforsetans, nú situr hann heima og tóninn er diplómatískari í garð Evrópu. En hefur stefnan eitthvað breyst? Þátturinn hefst klukkan tíu og má hlusta á hann í spilaranum hér að neðan eða á vef Bylgjunnar. Um klukkan hálf ellefu mætir Alma Möller, heilbrigðisráðherra, til Kristjáns og verða heilbrigðismálin þá til umræðu og þá sérstaklega bráðamóttaka Landspítalans, þar sem allt virðist standa í ljósum logum. Starfsfólk óánægt, þjónustan versnar, sjúklingar á göngunum og ríkið ráðalaust eins og mörg undangengin ár. Hvað hyggst heilbrigðisráðherrann gera? Því næst, eða klukkan ellefu, mæta þær Dagbjört Hákonardóttir, alþingismaður, og Erna Bjarnadóttir, stjórnarmaður í Heimssýn, og ræða Evrópumálin. Evrópuumræðan er komin á fullt en er hægt að greiða atkvæði um framhald viðræðna ef samningsmarkmið Íslendinga liggja ekki ljós fyrir áður en sú atkvæðagreiðsla fer fram? Er um eitthvað að semja hvort eð er? Að endingu mætir Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóri Vísbendingar, til að tala um efnahagsmálin. Eru launavísitölufrumvarp ríkisstjórnarinnar efnahagslegt sjálfsmark? Er útilokað fyrir Ísland að ná niður verðbólgu og 2,5% markmið Seðlabankans óraunhæft með öllu. Eru verðhækkanir m.ö.o. innbyggðar í íslenskt efnahagslíf.
Sprengisandur Bylgjan Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira