Lilja Alfreðsdóttir er nýr formaður Framsóknarflokksins Samúel Karl Ólason og Smári Jökull Jónsson skrifa 15. febrúar 2026 15:33 Lilja Alfreðsdóttir eftir að úrslitin voru ljós. Vísir/Lýður Valberg Lilja Alfreðsdóttir hefur verið kjörinn nýr formaður Framsóknarflokksins og er hún fyrsta konan sem hlýtur kjör sem formaður í rúmlega 109 ára sögu flokksins. Atkvæðagreiðsla fór fram á 38. flokksþingi Framsóknar sem haldið er um helgina.
Lilja sigraði gegn Ingibjörgu Isaksen, þingflokksformanni Framsóknar. Alls greiddu 606 atkvæði í formannskosningunni. Lilja hlaut 352 atkvæði í kjörinu eða 58% atkvæða og Ingibjörg 254 atkvæði eða 42%. Einn seðill var auður. Lilja tekur við af Sigurði Inga Jóhannssyni en Framsóknarflokkurinn stendur ekki vel og var með 5,4 prósent í nýjasta Þjóðarpúls Gallup. Sjá einnig: Framsókn þurfi að þora að svara rangfærslum og hálfsannleik popúlista Vísir var á staðnum í dag og birtir fréttir með viðbrögðum beggja frambjóðenda. Hér fyrir neðan er streymi Framsóknarflokksins frá flokksþinginu. Í ræðu sinni eftir að úrslit voru ljós þakkaði Lilja traustið, Ingibjörgu fyrir baráttuna sem og Sigurði Inga Jóhannssyni fráfarandi formanni. „Þetta er nákvæmlega þetta sem flokkurinn okkar þurfti. Með þessu formannskjöri erum við búin að skerpa áherslunar. Við erum að sýna þjóðfélaginu að við erum tilbúin að bretta upp ermar og hefja nýjan framsóknaráratug,“ sagði Lilja einnig í ræðu sinni. „Það þýðir ekki bara að standa hér og vera rosalega ánægður því það er mikil vinna framundan. Það fyrsta sem við erum að fara að gera er að snúa vörn í sókn á sveitarstjórnarstiginu. Við ætlum að vinna næstu kosningar,“ sagði Lilja en sveitastjórnarkosningar fara fram þann 16. maí næstkomandi.
Framsóknarflokkurinn Flokksþing Framsóknar 2026 Tengdar fréttir „Erfitt fyrir formann að taka við sitjandi utan þings“ Stjórnmálafræðingur segir málefnalegan mun á milli frambjóðenda til formanns Framsóknarflokkinn ekki mikinn. Munurinn liggi í stöðu þeirra innan flokksins og erfitt sé að spá fyrir um niðurstöðu kosninganna í dag. 15. febrúar 2026 12:52 Bein útsending: Barist um formennsku í Framsóknarflokknum Lilja Alfreðsdóttir var í dag kjörin formaður Framsóknarflokksins eftir spennandi kosningabaráttu gegn Ingibjörgu Isaksen. Úrslitunum var streymt á Vísi og rætt í beinni útsendingu við nýkjörinn formann og þann sem laut í lægra haldi. 15. febrúar 2026 12:31 Bein útsending: Sigurður Ingi ávarpar Framsóknarmenn í síðasta sinn sem formaður Framsóknarmenn velja sér nýjan formann, auk nýs varaformanns og ritara um helgina. Þá fer 38. flokksþing Framsóknarflokksins fram undir yfirskriftinni „Vinna - Vöxtur - Velferð“. 14. febrúar 2026 12:31 Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Sinueldur í Grafarvogi Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira
„Erfitt fyrir formann að taka við sitjandi utan þings“ Stjórnmálafræðingur segir málefnalegan mun á milli frambjóðenda til formanns Framsóknarflokkinn ekki mikinn. Munurinn liggi í stöðu þeirra innan flokksins og erfitt sé að spá fyrir um niðurstöðu kosninganna í dag. 15. febrúar 2026 12:52
Bein útsending: Barist um formennsku í Framsóknarflokknum Lilja Alfreðsdóttir var í dag kjörin formaður Framsóknarflokksins eftir spennandi kosningabaráttu gegn Ingibjörgu Isaksen. Úrslitunum var streymt á Vísi og rætt í beinni útsendingu við nýkjörinn formann og þann sem laut í lægra haldi. 15. febrúar 2026 12:31
Bein útsending: Sigurður Ingi ávarpar Framsóknarmenn í síðasta sinn sem formaður Framsóknarmenn velja sér nýjan formann, auk nýs varaformanns og ritara um helgina. Þá fer 38. flokksþing Framsóknarflokksins fram undir yfirskriftinni „Vinna - Vöxtur - Velferð“. 14. febrúar 2026 12:31