Kallar eftir rannsókn á snjóflóðinu á Flateyri Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 16. febrúar 2026 11:23 Sóley Eiríksdóttir í viðtali við sjónvarpsfréttir Stöðvar 2 árið 2020 þegar 25 ár voru liðin frá snjóflóðinu á Flateyri. Vísir Kona sem komst lífs af í snjóflóðinu á Flateyri árið 1995 hefur lagt fram formlegt erindi til Alþingis um rannsókn á snjóflóðinu líkt og gert var í tilfelli snjóflóðsins sama ár í Súðavík. Sé rannsókn réttlætanleg í Súðavík vegna manntjóns og samfélagslegra afleiðinga hljóti sami mælikvarði að gilda á Flateyri. Annað kalli á skýran og rökstuddan mun.
Sóley Eiríksdóttir, þá ellefu ára gömul, var föst í níu klukkustundir áður en henni var bjargað í snjóflóðinu á Flateyri þann 26. október árið 1995. Svana, 19 ára systir Sóleyjar, og Halldór Ólafsson, tvítugur kærasti hennar, létust þegar flóðið skall á heimili þeirra. Sóley hefur sagt frá reynslu sinni í gegnum tíðina en stingur nú niður penna í skoðanagrein á Vísi og kallar eftir rannsókn á snjóflóðinu á Flateyri. Greinin er skrifuð tveimur mánuðum eftir að rannsóknarnefnd um snjóflóðið á Súðavík skilaði og kynnti skýrslu sína. „Árið 1995 féllu tvö mannskæð snjóflóð á Íslandi, í Súðavík í janúar og á Flateyri í október sama ár. Bæði leiddu til manntjóns og víðtækra samfélagslegra afleiðinga. Atburðirnir áttu sér stað innan sama stjórnsýslulega ramma og á tímabili þar sem hættumat og viðbúnaður voru í mótun,“ segir Sóley. „Alþingi hefur nú ákveðið að láta fara fram heildstæða og sjálfstæða rannsókn á snjóflóðinu í Súðavík. Með þeirri ákvörðun er viðurkennt að slíkir atburðir réttlæti opinbera rýni, ekki síst með tilliti til lærdóms og trausts til stjórnkerfisins. Snjóflóðið á Flateyri átti sér stað innan sama árs, við sambærilegar aðstæður og með sambærilegum afleiðingum. Tuttugu manns létust í flóðinu og áhrifin á samfélagið voru djúpstæð. Þrátt fyrir það hefur ekki verið skipuð sjálfstæð rannsóknarnefnd um þann atburð.“ Sóley segir helstu rök sem nefnd hafi verið þau að aðstandendur hafi ekki kallað formlega eftir rannsókn. „Rannsókn á náttúruhamförum er ekki einkamál aðstandenda. Hún er hluti af ábyrgð ríkisins gagnvart borgurum sínum. Hún snýst um hvernig hættumat var unnið, hvernig ákvarðanir voru teknar og hvort fyrirliggjandi þekking var nýtt. Slík rýni á að byggjast á eðli atburðarins og afleiðingum hans, ekki á því hvort þolendur hafi burði eða þrek til að halda málinu lifandi í áratugi.“ Sé rannsókn réttlætanleg í Súðavík vegna manntjóns og samfélagslegra afleiðinga, hljóti sami mælikvarði að gilda um Flateyri. Annað kalli á skýran og rökstuddan mun. Hún hafi lagt fram formlegt erindi til Alþingis þar sem óskað sé eftir sjálfstæðri og heildstæðri rannsókn á snjóflóðinu á Flateyri. Sú beiðni sé nú til meðferðar hjá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. „Ég var grafin upp úr snjóflóðinu á Flateyri. Systir mín lifði það ekki af. Sú reynsla veitir mér ekki sérstakan rétt umfram aðra, en hún undirstrikar hvers vegna ábyrgð ríkisins má ekki ráðast af því hvort þolendur knýi á um rannsókn eða ekki. Ríkið ber ábyrgð á að rannsaka atburði sem kostuðu mannslíf. Sú ábyrgð má ekki vera valkvæð. Þegar mannslíf tapast er rannsókn ekki valkostur heldur skylda. Ef sami mælikvarði á að gilda um alla verður hann að gilda um Flateyri líka.“
Snjóflóðin á Flateyri 1995 Snjóflóð á Íslandi Alþingi Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira