Agla María verður í vinnunni þegar Ísland mætir Spáni og Englandi Ágúst Orri Arnarson skrifar 16. febrúar 2026 16:08 Agla María Albertsdóttir í leik gegn Finnlandi á EM síðasta sumar. Getty/Noemi Llamas Landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson gerði fjórar breytingar á leikmannahópi Íslands frá síðasta verkefni og fyrir leikina gegn Spáni og Englandi. Þrjár vegna meiðsla en ein vegna vinnu.
Ísland spilaði síðast umspilseinvígi við Norður-Írland í október og tókst þar að halda sæti sínu í A-deild Þjóðadeildarinnar. Nú er nýtt tímabil að hefjast í Þjóðadeildinni, sem er jafnframt undankeppni fyrir HM 2027. Frá síðasta verkefni eru fjórar breytingar. Arna Eiríksdóttir, Vigdís Lilja Kristjánsdóttir og Amanda Andradóttir eru að glíma við meiðsli. Inn í hópinn koma þá Birta Georgsdóttir, Elín Helena Karlsdóttir og Ída Marín Hermannsdóttir. Fjórða breytingin er hins vegar tilkomin af öðrum ástæðum, Berglind Rós Ágústsdóttir kemur inn í hópinn því Agla María Albertsdóttir gaf ekki kost á sér vegna anna við vinnu. Er hún með erfiðan vinnuveitanda? „Ég veit ekkert um það. Hún var að taka við nýrri stöðu í vinnunni og það var erfitt að fara allan þennan tíma“ sagði Þorsteinn landsliðsþjálfari um Öglu Maríu, starfsmann í lánadeild Arion Banka. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Agla María gefur ekki kost á sér í landsliðið. Hún spilaði ekki landsleik frá desember 2023 og fram í maí 2025, og sagði ástæðuna vera forgangsröðun sína í lífinu. Landsliðsferillinn mætti afgangi þegar nóg var um að vera. Þorsteinn vildi þó alls ekki meina, þegar það var borið undir hann, að hennar hlutverk í landsliðinu væri ástæðan fyrir því. „Ég kannast ekki við að hún hafi verið eitthvað ósátt við sitt hlutverk og held að hún hafi aldrei sagt það. Þetta hefur ekkert með það að gera, við höfum alltaf átt í góðum samskiptum og það hefur ekkert með þetta að gera.“ Nánar verður rætt við landsliðsþjálfarinn um valið á hópnum og komandi verkefni gegn Spáni og Englandi í Sportpakka Sýnar í kvöld.
Landslið kvenna í fótbolta Mest lesið Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Íslenski boltinn „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Handbolti Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Fótbolti Sakar Infantino um fjárkúgun Fótbolti Fleiri fréttir United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Metfjöldi nýrra þjálfara Viðurkennir að VAR hafi misst af því þegar leikmaður Brann sýndi puttann Gunnar Vatnhamar sagður á förum frá Víkingi Sjáðu alla dramatíkina á Hlíðarenda Semenyo spenntur fyrir því að starfa undir nýja þjálfaranum Mun Vini fara til Arsenal ef hann semur ekki við Real Madrid? „Vorum miklu betri allan tímann“ „Sigurinn var innan seilingar“ Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-3 | Örvar tryggði langþráðan og mikilvægan sigur Sjá meira