Hættur sem framkvæmdastjóri Framsóknar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. febrúar 2026 14:53 Helgi ásamt fjölskyldu sinni á flokksþinginu um helgina. Helgi Héðinsson Helgi Héðinsson hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins eftir þriggja ára starf. Hann segist hafa tekið ákvörðunina áður en Lilja Alfreðsdóttir var kjörin formaður flokksins á sunnudag. Helgi segist um nokkurt skeið hafa velt fyrir sér að breyta um starf. Að loknu flokksþingi sé það niðurstaðan. „Sú ákvörðun var ekki léttvæg, enda hefur mér þótt afar vænt um að hafa fengið tækifæri til að starfa með öllu því frábæra fólki sem myndar Framsóknarfjölskylduna. 12.000 manna hóp sem deilir gildum, framtíðarsýn og trú á samvinnu og lausnir í þágu íbúa landsins. Ég gerði formannsframbjóðendum grein fyrir þeirri ákvörðun fyrir kosninguna á sunnudaginn svo það væri alveg ljóst og hafið yfir allan vafa að þessi ákvörðun væri með engum hætti tengd því hvor þeirra bæri sigur úr býtum,“ segir Helgi. Lilja Alfreðsdóttir hafði betur í baráttunni við Ingibjörgu Isaksen um formannsstólinn. Lilja hlaut 58 prósent atkvæða en Ingibjörg, sem er þingflokksformaður flokksins, 42 prósent. Lilja er formaður utan þings. Helgi óskar nýjum formanni góðs gengis og staldrar sérstaklega við samstarfið með Sigurði Inga Jóhannssyni, fráfarandi formanni. „Að lokum vil ég þakka Sigurði Inga fyrir einstakt og lærdómsríkt samstarf. Samstarf sem ég mun ætíð hugsa til af kærleik og hlýju. Flestum er ljóst að Sigurður Ingi er einn öflugasti stjórnmálamaður samtímans, en færri hafa verið svo lánsamir að kynnast því af eigin raun hversu mannlegur, sanngjarn og skilningsríkur hann er.“ Að neðan má sjá Facebook-færslu Helga.
Helgi segist um nokkurt skeið hafa velt fyrir sér að breyta um starf. Að loknu flokksþingi sé það niðurstaðan. „Sú ákvörðun var ekki léttvæg, enda hefur mér þótt afar vænt um að hafa fengið tækifæri til að starfa með öllu því frábæra fólki sem myndar Framsóknarfjölskylduna. 12.000 manna hóp sem deilir gildum, framtíðarsýn og trú á samvinnu og lausnir í þágu íbúa landsins. Ég gerði formannsframbjóðendum grein fyrir þeirri ákvörðun fyrir kosninguna á sunnudaginn svo það væri alveg ljóst og hafið yfir allan vafa að þessi ákvörðun væri með engum hætti tengd því hvor þeirra bæri sigur úr býtum,“ segir Helgi. Lilja Alfreðsdóttir hafði betur í baráttunni við Ingibjörgu Isaksen um formannsstólinn. Lilja hlaut 58 prósent atkvæða en Ingibjörg, sem er þingflokksformaður flokksins, 42 prósent. Lilja er formaður utan þings. Helgi óskar nýjum formanni góðs gengis og staldrar sérstaklega við samstarfið með Sigurði Inga Jóhannssyni, fráfarandi formanni. „Að lokum vil ég þakka Sigurði Inga fyrir einstakt og lærdómsríkt samstarf. Samstarf sem ég mun ætíð hugsa til af kærleik og hlýju. Flestum er ljóst að Sigurður Ingi er einn öflugasti stjórnmálamaður samtímans, en færri hafa verið svo lánsamir að kynnast því af eigin raun hversu mannlegur, sanngjarn og skilningsríkur hann er.“ Að neðan má sjá Facebook-færslu Helga. Kæru vinir, Um nokkurt skeið hef ég velt fyrir mér hvort það væri tímabært og mögulega nauðsynlegt fyrir mig að skipta um kúrs. Ég hef gert mínu nánasta samstarfsfólki grein fyrir því að eftir glæsilegt Flokksþing Framsóknarflokksins væri störfum mínum sem framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins formlega lokið. Sú ákvörðun var ekki léttvæg, enda hefur mér þótt afar vænt um að hafa fengið tækifæri til að starfa með öllu því frábæra fólki sem myndar Framsóknarfjölskylduna. 12.000 manna hóp sem deilir gildum, framtíðarsýn og trú á samvinnu og lausnir í þágu íbúa landsins. Ég gerði formannsframbjóðendum grein fyrir þeirri ákvörðun fyrir kosninguna á sunnudaginn svo það væri alveg ljóst og hafið yfir allan vafa að þessi ákvörðun væri með engum hætti tengd því hvor þeirra bæri sigur úr býtum. Þetta hefur verið lærdómsríkt og gefandi starf og mér þykir ákaflega vænt um félaga mína um land allt í hinum fjölmörgu einingum flokksins, á skrifstofunni, í þingflokknum, í félögunum, í sveitarstjórnunum, í kjördæmasamböndunum og í sérsamböndum flokksins. Umhverfi stjórnmálanna er áhugavert, en það er ákaflega krefjandi. Það sem vegur þyngst í þessari ákvörðun er þörfin fyrir aukið svigrúm og rými fyrir fjölskylduna mína. Þau sem starfað hafa á þessum vettvangi þekkja að þetta getur enginn gert einn og óstuddur og til þess að vinna þetta starf af þeim metnaði sem það krefst verður að færa fórnir. Fórnir sem taka toll og sneið af tíma og tímabili sem við upplifum aðeins einu sinni. Ég óska Lilju Alfreðsdóttur og nýrri forystu flokksins innilega til hamingju með kjörið og óska þeim velfarnaðar í því vandasama ferðalagi sem fram undan er. Ég mun verða þeim innan handar meðan rykið sest, enda ærið og mikilvægt verkefni handan við hornið í vor. Að lokum vil ég þakka Sigurði Inga fyrir einstakt og lærdómsríkt samstarf. Samstarf sem ég mun ætíð hugsa til af kærleik og hlýju. Flestum er ljóst að Sigurður Ingi er einn öflugasti stjórnmálamaður samtímans, en færri hafa verið svo lánsamir að kynnast því af eigin raun hversu mannlegur, sanngjarn og skilningsríkur hann er. Síðast en ekki síst vil ég ítreka að hugur minn og hjarta verða áfram með fólkinu í Framsókn og hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér.
Kæru vinir, Um nokkurt skeið hef ég velt fyrir mér hvort það væri tímabært og mögulega nauðsynlegt fyrir mig að skipta um kúrs. Ég hef gert mínu nánasta samstarfsfólki grein fyrir því að eftir glæsilegt Flokksþing Framsóknarflokksins væri störfum mínum sem framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins formlega lokið. Sú ákvörðun var ekki léttvæg, enda hefur mér þótt afar vænt um að hafa fengið tækifæri til að starfa með öllu því frábæra fólki sem myndar Framsóknarfjölskylduna. 12.000 manna hóp sem deilir gildum, framtíðarsýn og trú á samvinnu og lausnir í þágu íbúa landsins. Ég gerði formannsframbjóðendum grein fyrir þeirri ákvörðun fyrir kosninguna á sunnudaginn svo það væri alveg ljóst og hafið yfir allan vafa að þessi ákvörðun væri með engum hætti tengd því hvor þeirra bæri sigur úr býtum. Þetta hefur verið lærdómsríkt og gefandi starf og mér þykir ákaflega vænt um félaga mína um land allt í hinum fjölmörgu einingum flokksins, á skrifstofunni, í þingflokknum, í félögunum, í sveitarstjórnunum, í kjördæmasamböndunum og í sérsamböndum flokksins. Umhverfi stjórnmálanna er áhugavert, en það er ákaflega krefjandi. Það sem vegur þyngst í þessari ákvörðun er þörfin fyrir aukið svigrúm og rými fyrir fjölskylduna mína. Þau sem starfað hafa á þessum vettvangi þekkja að þetta getur enginn gert einn og óstuddur og til þess að vinna þetta starf af þeim metnaði sem það krefst verður að færa fórnir. Fórnir sem taka toll og sneið af tíma og tímabili sem við upplifum aðeins einu sinni. Ég óska Lilju Alfreðsdóttur og nýrri forystu flokksins innilega til hamingju með kjörið og óska þeim velfarnaðar í því vandasama ferðalagi sem fram undan er. Ég mun verða þeim innan handar meðan rykið sest, enda ærið og mikilvægt verkefni handan við hornið í vor. Að lokum vil ég þakka Sigurði Inga fyrir einstakt og lærdómsríkt samstarf. Samstarf sem ég mun ætíð hugsa til af kærleik og hlýju. Flestum er ljóst að Sigurður Ingi er einn öflugasti stjórnmálamaður samtímans, en færri hafa verið svo lánsamir að kynnast því af eigin raun hversu mannlegur, sanngjarn og skilningsríkur hann er. Síðast en ekki síst vil ég ítreka að hugur minn og hjarta verða áfram með fólkinu í Framsókn og hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér.
Vistaskipti Framsóknarflokkurinn Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira