Grásleppan hleypir upp störfum þingsins Jakob Bjarnar skrifar 17. febrúar 2026 14:55 Þórunn Sveinbjarnardóttir gerði hlé á störfum þingsins og boðaði í skyndi fund með þingflokksformönnum, meðal annarra Ólafi Adolfssyni Sjálfstæðisflokki. En hann var einn þingmanna sem fór fram á að málið yrði tekið til athugundar. vísir/vilhelm Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis hefur frestað þingfundi um tuttugu mínútur. Hún sagðist nú hafa hlýtt á rúmlega tuttugu ræður minnihlutans og sagði affarasælast að funda með þingflokksformönnum áður en lengra yrði haldið.
Málið snýst um ágreining um mál sem er á dagskrá seinna í dag, 153. mál nánar tiltekið sem fjallar um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu). Lilja Rafney Magnúsdóttir Flokki fólksins mælir fyrir málinu. Þingmenn stjórnarandstöðunnar eru í meira lagi ósáttir við hvernig staðið er að afgreiðslu málsins. Bergþór Ólason, Miðflokki, sagði að þau í minnihluta atvinnuveganefndar hefðu frétt það fyrst í morgun að til stæði að taka þetta mál til 2. umræðu en þau höfðu talið að til stæði að óska eftir lögfræðiáliti lagastofnunar sem engin andmæli hefðu verið uppi um. Svo hafi orðið skyndilegur viðsnúningur. En þetta í grófum dráttum snýst um að færa eigi á grásleppu úr aflamarkskerfinu í gamla dagakerfið. Karl Gauti Hjaltason þingmaður Miðflokksins sagði þessa afgreiðslu segja allt, allt, allt um stöðu ríkisstjórnarsamstarfsins.vísir/vilhelm „Ríkisstjórnin lætur það viðgangast að þingmaður Flokks fólksins rífi málið úr vasa sínum. Þetta er mál sem á að vera á hendi ríkisstjórnarinnar. Svo hart er gengið fram að ekki má lengur spyrja lagastofnun þó að því hafi verið lofað. Hunsa á það að láta kanna lagaleg áhrif þessa frumvarps sem getur haft alvarlegar afleiðingar. Þessi vinnubrögð atvinnuveganefndar og ríkisstjórnarinnar eru ófagleg og ekki forsvaranleg. En þetta segir allt, allt, allt, allt um stöðu ríkisstjórnarsamstarfsins,“ sagði Karl Gauti Hjaltason, Miðflokki, meðal annars um málið á þingi nú fyrir stundu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins var meðal þeirra sem steig í pontu undir dagskrárliðnum Um fundarstjórn forseta og hann sagði að við værum komin á vondar slóðir ef menn vildu forðast upplýsingar og staðreyndir.
Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sjávarútvegur Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira