Samfélagsmiðlar á vinnutíma: Hversu oft og hvers vegna Rakel Sveinsdóttir skrifar 18. febrúar 2026 07:00 Samfélagsmiðlar eiga sér stóran sess í daglegri notkun flestra og oft að fólk nýti sér skroll á samfélagsmiðlum til að taka sér smá pásu frá vinnu. En hversu mikil áhrif ætli þessi notkun sé að hafa á vinnustundir eða framlag? Vísir/Getty Það hljómar kannski óraunverulega nú en þegar fyrstu samfélagsmiðlarnir komu á markaðinn veltu stjórnendur vinnustaða því margir fyrir sér hvort það ætti að banna notkun samfélagsmiðla á vinnutíma eða ekki.
Í dag eru samfélagsmiðlar hins vegar orðnir svo stór hluti af daglegu lífi flestra. Varlega áætlað má gera ráð fyrir að um 10% af vinnutíma fólks fari í að skrolla samfélagsmiðla á dag. Þetta hlutfall nær þó aðeins yfir notkun samfélagsmiðla í tölvum því þetta eru tölur frá DeskTime sem mælir notkun hundruða þúsunda starfsmanna um allan heim hjá stórum alþjóðlegum fyrirtækjum. Notkunin sýnir að skrollið á samfélagsmiðlunum byggir á stuttum en mörgum heimsóknum á samfélagsmiðlana á dag. Ef við færum okkur hins vegar úr tölvunum og yfir í símana verða tölurnar jafnvel enn meira spennandi. Rannsóknir RescueTime sýna að fólk tékkar á símanum sínum að meðaltali 50-60 sinnum á dag. Þessi notkun nær þó til fleiri miðla en aðeins samfélagsmiðla. Því fólk er oft að kíkja á fréttir eða tékka á tölvupóstum, til viðbótar við að kíkja aðeins á samfélagsmiðlana. En hvers vegna ætli fólk sé svona mikið að skoða samfélagsmiðlana á vinnutíma eða að tékka á símanum sínum? Er það bara til þess að koma í veg fyrir að missa af einhverju? Nei, skýringarnar geta verið dýpri en það. Samkvæmt rannsóknum American Psychological Association (APA) nýtir fólk símann sinn sem leið til að að taka pásu frá vinnu. Sem oft felur þá í sér skroll á samfélagsmiðlum. Skýringarnar á þessum pásum eru áhugaverðar. Því samkvæmt APA nýtir fólk símana sína sem: Leið til að fresta erfiðum verkefnum Flótta frá streitu og álagi Leið til að endurhlaða hugann. Þriðja atriðið hljómar reyndar ágætlega. Sá galli fylgir þó gjöf Njarðar að samkvæmt APA getur mikil samfélagsmiðlanotkun aukið á streitu til lengri tíma. Samhliða því að lengja í verkefnatíma vinnustaða. Allt er þetta líka áhugavert með tilliti til þess hvernig samfélagsmiðlarnir sjálfir eru síðan að þróast en um þá þróun má lesa í viðtali sem Atvinnulífið birti fyrir stuttu.
Samfélagsmiðlar Tengdar fréttir Hámarkstími fullorðinna í símanum og góð ráð Nú hafa Danir tekið af skarið og gefið út leiðbeiningar um símanotkun fullorðins fólks. Sem talin er geta verið heilsuspillandi ef notkunin nemur meira en þrjár klukkustundir á dag. 19. júní 2024 07:01 Glæpamenn í fjarvinnu Það hefur verið ótrúlega gaman að fylgjast með þróun atvinnulífsins síðustu misseri þar sem tæknin er svo sannarlega að opna margar nýjar dyr. 13. febrúar 2026 07:00 Fjórðungur Z-kynslóðarinnar hyggst flytja til útlanda „Það sem er athyglisvert er að fjórðungur Z-kynslóðarinnar hyggst flytja til útlanda í fimm ár eða lengur. Og spurningin er þá: Ef svo verður, mun þetta fólk snúa til baka?“ spyr Trausti Haraldsson framkvæmdastjóri rannsóknarfyrirtækisins Prósent. 27. mars 2025 07:00 Óréttlátt ef aðrir vinna miklu meira en þú Það getur verið óréttlátt gagnvart samstarfsfólkinu okkar ef við erum gjörn á að sóa mikið tímanum í vinnunni. Sem rannsóknir sýna þó að flestir gera í einhverjum mæli daglega. 18. ágúst 2023 07:01 Kostir og gallar: Erum orðin svo vön því að gera margt í einu Rétt upp hönd sem multitaskar aldrei? Enginn? Nei, ekkert skrýtið því flestum okkar er orðið svo tamt að gera margt í einu að við varla tökum eftir því. Að multitaska í vinnunni hefur sína kosti og galla. 24. nóvember 2022 07:01 Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Fleiri fréttir Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Hagkvæmt að ráða krabbameinssjúklinga í vinnu Húsið sem næstum gleymdist: „Eins og kýlt í hjartað á mér“ Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið Sjá meira
Hámarkstími fullorðinna í símanum og góð ráð Nú hafa Danir tekið af skarið og gefið út leiðbeiningar um símanotkun fullorðins fólks. Sem talin er geta verið heilsuspillandi ef notkunin nemur meira en þrjár klukkustundir á dag. 19. júní 2024 07:01
Glæpamenn í fjarvinnu Það hefur verið ótrúlega gaman að fylgjast með þróun atvinnulífsins síðustu misseri þar sem tæknin er svo sannarlega að opna margar nýjar dyr. 13. febrúar 2026 07:00
Fjórðungur Z-kynslóðarinnar hyggst flytja til útlanda „Það sem er athyglisvert er að fjórðungur Z-kynslóðarinnar hyggst flytja til útlanda í fimm ár eða lengur. Og spurningin er þá: Ef svo verður, mun þetta fólk snúa til baka?“ spyr Trausti Haraldsson framkvæmdastjóri rannsóknarfyrirtækisins Prósent. 27. mars 2025 07:00
Óréttlátt ef aðrir vinna miklu meira en þú Það getur verið óréttlátt gagnvart samstarfsfólkinu okkar ef við erum gjörn á að sóa mikið tímanum í vinnunni. Sem rannsóknir sýna þó að flestir gera í einhverjum mæli daglega. 18. ágúst 2023 07:01
Kostir og gallar: Erum orðin svo vön því að gera margt í einu Rétt upp hönd sem multitaskar aldrei? Enginn? Nei, ekkert skrýtið því flestum okkar er orðið svo tamt að gera margt í einu að við varla tökum eftir því. Að multitaska í vinnunni hefur sína kosti og galla. 24. nóvember 2022 07:01