Gordon bakarameistarinn í bökun í Bakú

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Anthony Gordon gefur merki um fjórða mark sitt í stórsigri Newcastle United í kvöld.
Anthony Gordon gefur merki um fjórða mark sitt í stórsigri Newcastle United í kvöld. Getty/Christian Kaspar-Bartke

Anthony Gordon skoraði fernu í fyrri hálfleik þegar Newcastle vann 6-1 stórsigur á Qarabag í fyrri leik liðanna í umspili Meistaradeildar karla í fótbolta.

Eftir þennan stórsigur er formsatriði fyrir Newcastle að klára seinni leikinn á St. James´s Park og tryggja sér sæti í sextán liða úrslitunum. Þar bíða annaðhvort Chelsea eða Barcelona.

Leikurinn var einstefna frá upphafi og Newcastle var komið í 2-0 eftir aðeins átta mínútna leik.

Þegar liðin gengu til hálfleiks var staðan orðin 5-0 og Newcastle hafði klúðrað fimm dauðafærum að auki. Staðan var 4,49-0,00 í meintum mörkum, xG, í hálfleik.

Anthony Gordon skoraði fyrsta markið á 3. mínútu og Malick Thiaw skallaði síðan inn fyrirgjöf frá Kieran Trippier á 8. mínútu.

Gordon bætti við þremur mörkum fyrir hálfleik og tvö af þeim komu úr vítaspyrnum en hann fiskaði seinna vítið sjálfur.

5-0 í hálfleik og seinni hálfleikurinn var formsatriði. Heimamenn sýndu þó aðeins meira og gestirnar slökuðu aðeins á.

Elvin Jafarquliyev minnkaði muninn fyrir heimamenn á 55. mínútu en varamaðurinn Jacob Murphy skoraði sjötta mark gestanna á 72. mínútu. Gordon var þá farinn út af og náði því ekki fimmu í kvöld.

Það þýðir fimm marka forysta fyrir seinni leikinn sem er auk þess að heimavelli.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira