Hræddur um að öfugur hvati leiði til fjölgunar öryrkja Jakob Bjarnar skrifar 18. febrúar 2026 11:11 Vilhjálmur Birgisson hefur þungar áhyggjur af því að nú sé að myndast öfugur hvati; fólk vilji frekar vera á bótum en fara til vinnu. Og þá hrynur kerfið. vísir/vilhelm Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, hefur þungar áhyggjur af því að myndast hafi öfugur hvati fyrir atvinnuþátttöku launafólks sem greint hefur verið með tímabundna örorku. „Ef smyrja á þessu yfir allt,“ segir Vilhjálmur og vitnar í glæný gögn.
Kristján Þórður Snæbjörnsson þingmaður Samfylkingar, áður forseti Alþýðusambands Íslands, hlaut ágjöf frá fyrrverandi félögum sínum í verkalýðsforystunni í tengslum við fyrirhuguð lög um almannatryggingar. Kristján tilkynnti á Facebook-síðu sinni að í gær hafi annarri umræðu um breytingar á lögum um almannatryggingar lokið. „Kjaragliðnun elli- og örorkulífeyris verður stöðvuð líkt og við í Samfylkingunni sögðum fyrir kosningar. Sanngjörn forgangsröðun fyrir fólkið sem flokkar í stjórnarandstöðu hafa sett sig upp á móti og staðið gegn réttlátri kjarabót fyrir öryrkja og ellilífeyristaka,“ segir Kristján. Vilhjálmur var fljótur til svara og bendir á að lágmarkstaxtar verkafólks nái ekki að hækka eins og launavísitalan gerir og væru þeir umtalsvert hærri ef svo hefði verið. „Þarf þá ekki líka að lögfesta að lágmarkslaun fylgi launavísitölu til að tryggja að ekki verði kjaragliðnun milli lágmarkslauna á íslenskum vinnumarkaði og launavísitölu?“ Vilhjálmur og Sólveig punda á sinn gamla félaga Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar fylgir í kjölfarið og lýsir sig sammála Vilhjálmi. „Hvenær kemur að því að ríkisstjórnin gerir eitthvað til að bæta erfiða stöðu láglaunafólks sem stritar við að framleiða verðmætin og rogast um með fjársvelt velferðarkerfi á bakinu?“ Kristján vill verja stefnu ríkisstjórnarinnar en hans gömlu félagar úr verkalýðsbaráttunni, Vilhjálmur og Sólveig Anna, létu hann ekki komast upp með það. Vilhjálmur flaggar glænýjum tölum máli sínu til stuðnings.vísir/samsett Vilhjálmur segir, í samtali við Vísi, að nú liggi fyrir ný gögn sem þeim voru nýverið afhent, en um er að ræða útreikninga Benedikts Jóhannessonar stærðfræðings fyrir Starfsgreinasambandið, Samtök atvinnulífsins og fjármálaráðuneytið: „Samkvæmt þeim eru meðaltalsgreiðslur þeirra öryrkja sem fá bæði frá TR og lífeyrissjóðum 645.486 kr. á mánuði. Hjá þeim sem eru á endurhæfingarlífeyri er meðaltalið 680.338 kr. á mánuði,“ segir Vilhjálmur. Hann bætir því við að meðaltöl séu eitt: „Sumir eru langt yfir þessum tölum – en fjölmargir eru verulega undir þeim. Meðaltal segir ekki alla söguna. Það sem skiptir máli er staða þeirra sem eru neðst.“ Öfugur hvati myndast Vilhjálmur minnir á til samanburðar að lægsti taxti hjá Starfsgreinasambandinu og Eflingu er í dag 476.093 kr. á mánuði. „Ef við ætlum að tala um réttlæti, þá byrjum við neðst. Þetta eru nýjustu tölur sem koma beint frá Tryggingastofnun.“ Ástæðan fyrir því að verið er að reikna þetta út fram og til baka er hugmynd um að stofna nýjan örorkusjóð en ástæðan er sú að kerfið er ósanngjarnt; lífeyrisgreiðslur leggjast miklu þyngra á verkamannasjóði en aðra. „Þar er örorkubyrðin langmest en réttindin 15 prósentum lakari en í öðrum lífeyrissjóðum þrátt fyrir sama iðgjald. Að öryrkjum fjölgi svona skart má að einhverju leyti rekja til þess að verkamannavinna er erfiðisvinna og slítandi. En við höfum einnig áhyggjur af því að ef lágmarkslaun á vinnumarkaði eru öfugu megin hryggjar við bætur þá myndast ekki sá hvati sem þarf til að halda fólki á vinnumarkaði.“ Vilhjálmur bendir á, líkt og Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, að þessu kerfi sé haldið uppi af vinnandi fólki. Og ekki sé hægt að eyða sömu krónunni tvisvar. Staða öryrkja og ellilífeyrisþega afar ólík innbyrðis Vilhjálmur vill ekki svo mikið sem svara þeim röddum sem saka þá sem vilja hafa á þessu máli skoðun um hreina og klára illsku. „Menn hafa raunverulegar áhyggjur af því að ef myndast öfugur hvati muni þetta kerfi leiða til þess að öryrkjum muni fjölga. Það bitnar bara á þeim sem hafa lakari réttindi, því það þarf þá að skerða réttindi annarra. Þessir fjármunir verða ekki til í tómarúmi. Það eru skattgreiðendur og vinnandi fólk sem þurfa að standa undir kerfinu. Það þarf sannarlega að tryggja að bæði öryrkjar og ellilífeyrisþegar geti framfleytt sér og haldið reisn. En þar þurfum við að fókusera á hópana sem hafa það verst en ekki smyrja þessu yfir alla. Staða öryrkja og ellilífeyrisþega er afar mismunandi. Þetta þarf að rótargreina, finna þennan hóp sem lægst hefur kjörin og honum þarf raunverulega að hjálpa.“ Vilhjálmur segir að það þurfi að taka inn í reikninginn ótal þætti sem hafa áhrif á stöðu fólks, félagslega þætti og réttindi eins og lægri húsaleigu. Hann bendir einnig á síðu skattgreiðenda þar sem fram kemur að einstæðar mæður með þrjú börn þurfi 1,4 milljón krónur í laun til að hafa samsvarandi ráðstöfunartekjur eftir húsnæðiskostnað og þær hafa nú í gegnum bótakerfið. „Þetta eru háar tölur. Hvert erum við komin?“ spyr Vilhjálmur sem leggur áherslu á að ekki dugi að smyrja þessu yfir allt og alla.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tenging almannatrygginga við launavísitölu Kjaramál Málefni fatlaðs fólks Eldri borgarar Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu Innlent Fleiri fréttir „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Sjá meira