Skíðasambandinu fannst Halldór of slæm fyrirmynd Ágúst Orri Arnarson skrifar 18. febrúar 2026 13:47 Halldór Helgason hefur um árabil verið í fremstu röð snjóbrettakappa. halldor helgason Skíðasamband Íslands vildi á sínum tíma ekki hafa Halldór Helgason, einn besta snjóbrettamann heims, á Ólympíulista sínum því hann þótti of slæm fyrirmynd.
Þetta segir Halldór í viðtali sem RÚV birti í morgun. Þar er vöngum velt yfir því hvers vegna besti snjóbrettamaður í sögu Íslands hefur aldrei tekið þátt á Vetrarólympíuleikunum. Halldór segist sjálfur aldrei hafa haft áhuga á því að keppa á Ólympíuleikunum, sem hann kallar „Old Limp Dicks“ því þar eru „gamlir kallar í jakkafötum að græða fullt af peningum á íþróttafólki.“ Skylda hjá Nike að reyna við Vetrarólympíuleikana Halldór hefur frekar einbeitt sér að öðrum keppnum og verkefnum, en þurfti árið 2013 að gera tilraun til að komast inn á Vetrarólympíuleikana. Það var skilyrði í samningi hans við íþróttavörurisann Nike og Halldór skráði sig til leiks í undankeppnum ÓL. Halldór Helgason hefur unnið gullverðlaun á X-Games, sem sumt snjóbrettafólk lítur á sem hina raunverulegu Vetrarólympíuleika. Mynd/NordicPhotos/Getty Halldór keppti hins vegar ekki fyrir hönd Íslands í þeim undankeppnum, heldur fyrir Mónakó. „Ég hef haldið mig frá Skíðasambandinu eins og mikið og ég get. Þegar ég var að fara á ÓL þurfti ég að skrá mig í skíðasamband samt. Þá vildu þeir ekki hafa mig því ég var of slæm fyrirmynd. Það er eitt stærsta hrós sem ég hef fengið, sko“ sagði Halldór í viðtalinu og hann leitaði til Skíðasambands Mónakó. Föttuðu að þeir gætu kannski grætt á þessu „Mónakóbúar voru mjög pumpaðir. En þá kom Skíðasambandið til baka. Þeir föttuðu líka, held ég, að ég var styrktur af Nike, og ég var einn af aðalsnjóbrettagaurunum hjá Nike á þessum tíma. Ég held að þeir hafi líka séð að þeir gætu mögulega fengið einhvern pening frá Nike. Þannig að allt í einu breyttist þetta og þeir vildu endilega fá mig“ bætti Halldór við en hann komst á endanum ekki inn á leikana í Sochi árið 2014. „Maður var að mynda snjóbrettamyndir fyrir Nike, að keppa í öðrum keppnum og gera Helgasons.com. Maður var með fókusinn á því. Það var mjög mikið í gangi á þessum tíma. Ég sá það þá líka, þegar ég fór á þessar FIS-keppnir, að ég fýlaði þetta ekki neitt. Vibe-ið var ekki fyrir mig og þetta var bara ekki næs“ sagði Halldór við RÚV. Halldór er hins vegar mættur út til Ítalíu þar sem Vetrarólympíuleikarnir fara fram en hann tekur þátt í sýningarkeppni á snjóbretti. Rifjaði upp risasamninginn Í viðtali fyrir þættina Atvinnumennirnir Okkar á Stöð 2 árið 2019 rifjaði Halldór það upp þegar Nike bauð honum risasamninginn, sem var á sínum tíma sá langstærsti sinnar tegundar í snjóbrettaheiminum. Innslagið má sjá hér fyrir neðan en þáttinn í heild sinni má finna á Sýn+.
Skíðaíþróttir Snjóbrettaíþróttir Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Íslenski boltinn Sakar Infantino um fjárkúgun Fótbolti Fleiri fréttir Fór grátandi af velli Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Æfir blindandi og skýtur á eigandann Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Dagskráin í dag: Svarthvítur slagur og Stúkan Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover UFC tapaði 3,7 milljörðum á bardagakvöldinu í Hvíta húsinu Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Sjá meira