Jötunheimar á Selfossi verður tólf deilda leikskóli Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 19. febrúar 2026 20:03 Í dag eru 182 börn í leikskólanum Jötunheimum á Selfossi, sem er sex deilda en verður orðinn tólf deilda haustið 2027. Magnús Hlynur Hreiðarsson Framkvæmdir standa nú yfir á fullum krafti við byggingu nýs leikskóla á Selfossi en skólinn, sem er sex deilda í dag verður tólf deilda og þar með stærsti 12 deilda leikskóli landsins undir sama þaki. Fulltrúar leikskólabarnanna hjálpuðu fullorðna fólkinu við að taka fyrstu skóflustunguna að nýbyggingunni.
Fyrsta skóflustungan að nýju sex deilda byggingunni, sem verður viðbygging við leikskólann Jötunheima var tekin nýlega af fulltrúum Sveitarfélagsins Árborgar, starfsfólki Jötunheima og fulltrúar barnanna hjálpuðu við að taka fyrstu skóflustunguna með fullorðna fólkinu. Jarðvegsframkvæmdir standa nú yfir á fullum krafti en nýja viðbyggingin á að vera tilbúin haustið 2027. „Þetta er gríðarlega spennandi tækifæri, virkilega . Í dag erum við með 182 börn þannig að þetta verður dálítil stækkun,” segir Júlíanna Tyrfingsdóttir, leikskólastjóri Jötunheima. Leikskólabörnin voru dugleg að moka með fullorðna fólkinu þegar fyrsta skóflustungan var tekin.Magnús Hlynur Hreiðarsson „Það er áætlað að því gefnu að nú eru framkvæmdir að hefjast að þá haustið 2027 getum við tekið viðbygginguna í notkun. Kostnaðurinn er allt að einum milljarði króna þegar allt er talið í lokin. Vonandi verður þetta náttúrulega hagkvæmara, við fengum mjög gott tilboð núna í jarðvinnuna,” segir Bragi Bjarnason, bæjarstjóri. Júlíanna Tyrfingsdóttir, leikskólastjóri Jötunheima pg Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar þegar fyrsta skóflustungan var tekin.Magnús Hlynur Hreiðarsson Og vegna mikillar fjölgunar íbúa á Selfossi stendur til að byggja við fleiri leikskóla í bæjarfélaginu. „Já, við þurfum að jafnaði eina til tvær deildir á ári til að geta þjónustað íbúana okkar. Við erum núna að bæta við í leikskólanum Árbæ á næsta ári,” segir Bragi. Jarðvegsframkvæmdir eru hafnar á fullu við skólann.Magnús Hlynur Hreiðarsson En hvað með biðlista í leikskóla Árborgar, verður hann enginn eftir að nýja viðbyggingin verður tekin í notkun við Jötunheima eða hvað? „Vonandi, sem minnst, vonandi getum við tekið, sem flest börn inn á viðráðanlegum tíma en það ræðst svolítið líka af íbúafjölgun og samsetningunni, sem kemur hjá okkur en við viljum alltaf reyna að þjónusta íbúana sem best,” segir Bragi að endingu. Svona mun leikskólinn líta út fullkláraður tólf deilda skóli. Í dag er skólinn sex deilda. Aðsend
Árborg Leikskólar Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands Sjá meira