Krefjast þess að Ísland skilgreini byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 19. febrúar 2026 23:50 Börn og fullorðnir komu saman við stjórnarráðið í síðasta mánuði. Vísir/Bjarni Íslensk-íranska samfélagið á Íslandi hefur boðað til mótmæla við utanríkisráðuneytið á laugardaginn þar sem þess verður krafist að íslenska ríkið skilgreini íranska byltingarvörðinn sem hryðjuverkasamtök.
Frá þessu er greint í tilkynningu skipuleggjenda til fjölmiðla. Þar færa þeir rök fyrir því hvers vegna þeir telja að Ísland eigi að setja byltingarvörðinn á lista yfir hryðjuverkasamtök. „IRGC ber ábyrgð á morðum á yfir 36.500 Írönum, þar á meðal 200 börnum. Samtökin stýra aftökum á mótmælendum og ofsóknum á hendur heilbrigðisstarfsfólki sem hefur verið fangelsað og pyntað fyrir það eitt að sinna særðum,“ segir í tilkynningunni. Hörð mótmæli gegn klerkastjórninni stóðu yfir frá áramótum og heilbrigðisstarfsfólk í landinu sagði í lok janúar að allt að þrjátíu þúsund manns hefðu verið drepnir í aðgerðum stjórnvalda gegn mótmælendum. Þá krefjast skipuleggjendur þess að utanríkisráðuneytið kalli íslenska ríkisborgara heim frá Íran og nálægum svæðum tafarlaust til að tryggja öryggi þeirra, vegna kerfisbundinna gíslataka byltingarvarðarins. Þá benda skipuleggjendur á hryðjuverka- og kjarnorkuógn sem stafar af byltingarverðinum. „IRGC fjármagnar og vopnar hryðjuverkahópa sem skapa óstöðugleika í Miðausturlöndum, sem veldur m.a. auknum flóttamannastraumum til Evrópu. Jafnframt vinna samtökin markvisst að smíði kjarnorkuvopna sem ógna heimsfriði.“ Loks er bent á að IRGC útvegi Rússum vopn til árása í Úkraínu. Það sé andstætt hagsmunum íslenskra skattgreiðenda, sem nýlega styrktu úkraínska ríkið um milljarð króna, að samtökin séu ekki bönnuð hér á landi. Mótmælin fara sem fyrr segir fram á laugardag og hefjast klukkan tvö.
Íran Utanríkismál Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira