„Engar áhyggjur af framtíð liðsins“ Sindri Sverrisson skrifar 20. febrúar 2026 10:04 Fjöldi leikmanna hefur kvatt Tindastól frá síðustu leiktíð. Laufey Harpa Halldórsdóttir er til að mynda flutt til Húsavíkur. vísir/Guðmundur Fall úr Bestu deildinni og fjöldi leikmanna farinn, þjálfarinn hættur eftir þrjá mánuði í starfi og liðið dregið úr keppni í Lengjubikarnum. Útlitið virðist ansi dökkt hjá kvennaliði Tindastóls í fótbolta en Sauðkrækingar láta engan bilbug á sér finna.
Eftir að Svanberg Óskarsson hætti sem þjálfari liðsins í vikunni, í kjölfar fregna af því að Tindastóll hefði dregið lið sitt úr keppni í A-deild Lengjubikarsins, og miðað við að þrettán leikmenn sem spiluðu hvað mest á síðustu leiktíð séu farnir, er kannski óhætt að spyrja hvort leggja eigi liðið hreinlega niður? Heldur betur ekki. „Það er aldrei að fara að gerast. Við erum með góðar stelpur sem eru að koma upp og ég hef engar áhyggjur af framtíð liðsins. Við erum í uppbyggingarfasa þessa dagana, eins og mörg félög hafa verið í,“ sagði Jóhann Daði Gíslason, formaður knattspyrnudeildar Tindastóls og leikmaður karlaliðs félagsins. Jóhann segir Skagfirðinga afar stolta eftir að hafa átt lið í efstu deild fjögur af síðustu fimm tímabilum. Nú sé róðurinn vissulega þungur en menn láti það ekki á sig fá. „Eftir fallið síðasta haust þá hefur verið brottfall úr hópnum. Maður átti von á því að útlendingarnir færu heim og þeir lánsmenn sem við vorum með, en svo fara líka stelpur í önnur lið á Íslandi og sumar eru hættar. Ástæðan fyrir því að við drógum okkur úr Lengjubikarnum er að þetta var ekki viðeigandi verkefni fyrir hópinn eins og hann er núna. Við erum með mjög ungan hóp og að spila í A-deild í Lengjubikarnum var bara ekki viðeigandi að svo stöddu. En það er unnið að því hörðum höndum að gera hópinn kláran fyrir Lengjudeildina sjálfa,“ sagði Jóhann. „Meira brottfall en við áttum von á“ Hann bendir á að eðlilegt sé að það vanti í hópinn hjá félagi úti á landi á þessum tíma. Erlendir leikmenn skili sér jafnan skömmu fyrir Íslandsmótið og þá séu íslenskir leikmenn oft búsettir á höfuðborgarsvæðinu yfir vetrartímann. Engu að síður sé það þannig að um þrettán leikmenn sem spiluðu hvað mest á síðustu leiktíð séu horfnir á brott, og nú tveir þjálfarar. Halldór Jón Sigurðsson, eða Donni, hætti með Tindastól eftir síðustu leiktíð og tók við U19-landsliði kvenna.vísir/Guðmundur „Þetta var meira brottfall en við áttum von á en félagið er í uppbyggingarfasa og við bindum miklar vonir við þær stelpur sem eru að koma upp. Við erum með mjög efnilegar stelpur í 3. flokki og neðar en nú er bara uppbygging með það að markmiði að snúa svo aftur þangað sem við eigum heima, í deild þeirra bestu. Við erum aldrei að fara að stefna neðar. Við ætlum að setja saman hóp sem verður mjög samkeppnishæfur í Lengjudeildinni. Ég hef minnstar áhyggjur af því enda er bara febrúar,“ sagði Jóhann. Hrafnhildur Salka Pálmadóttir var að láni hjá Tindastóli frá Val á síðustu leiktíð.vísir/Guðmundur Viðskilnaðurinn við Svanberg í góðu Eins og fyrr segir eru Stólarnir nú í þjálfaraleit eftir að Svanberg Óskarsson hætti. Hann hafði tekið við af Donna, Halldóri Jóni Sigurðssyni, sem tók við U19-landsliði kvenna. „Svanberg hefur sagt upp störfum og skilur við okkur í góðu. Það var ekkert sem kom upp á og þetta er bara hans ákvörðun. Ég virði hana. Núna erum við bara að leita að nýjum þjálfara Kannski var sýn hans ekki sú sama og hjá okkur í stjórninni en þetta er bara hans ákvörðun. Hann er flottur þjálfari og á framtíðina fyrir sér,“ sagði Jóhann. Það mun taka sinn tíma fyrir Tindastól að komast aftur í deild þeirra bestu en eftir fjögur tímabil þar, á síðustu fimm árum, er það þangað sem Jóhann og hans fólk horfir: „Það er magnað afrek sem við erum mjög stolt af og við viljum koma okkur aftur þangað.“
Lengjudeild kvenna Lengjubikar kvenna Tindastóll Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Golf Hættir hjá Nike og tekur óvænt skref Fótbolti „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Íslenski boltinn Krefjast tíu milljóna dollara til allra aðildarríkja FIFA Fótbolti JJ Gabriel mættur til Barcelona Enski boltinn Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands Enski boltinn Selfyssingar skoruðu öll mörkin í úrslitaleiknum Íslenski boltinn Flestir Íslendingar halda með Liverpool Enski boltinn „Algjör óþarfi fyrir dómarann að vera búa til svona úlfalda úr mýflugu“ Sport Fleiri fréttir Menn eigi ekki að bugast yfir pressu og ávísun Kraftaverkamaðurinn á Húsavík hættur Stór dagur fyrir Ottesen fjölskylduna „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Selfyssingar skoruðu öll mörkin í úrslitaleiknum Uppgjörið:Fram - Víkingur 2-2 | Tvö rauð á teymi Víkinga í dramatísku jafntefli „Töpuðum á réttan hátt” „Fannst á tímabili eins og við gætum spilað í 200 mínútur án þess að skora” „Meira sem að þeir þurfa að hafa áhyggjur af hjá okkur“ Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 4-3 | Bikarþynnka í Vestmannaeyjum Uppgjörið: FH - Stjarnan 1-0 | Halda titilbaráttunni jafnri Myndavélar settar upp eftir skemmdarverkin og allt klárt fyrir risaleik „Keyra á ljósabekkina“ fyrir úrslitaleikinn Skotin flugu milli Bolla og Hjamma FH-stelpur meistarar en KSÍ kom ekki með bikar Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 4-1| Breiðablik kláraði þetta í fyrri hálfleik „Hversu mikil pressa var á honum?“ Sjáum til hvort þetta verði algjör þvæla Seldur frá Keflavík til Sýrlands „Hinna klúbbanna á Íslandi að elta þá“ Markvörður KR fór ítrekað fram: „Alveg stjörnubilað að horfa á þetta“ Sjáðu fyrsta mark Gabríels og flugskalla í rangt mark Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Haukar og Selfoss leika til úrslita Segir skot Dagnýjar á Breiðablik „pínu ósanngjarnt“ „Blikarnir geta sleppt sér lausum“ Sjáðu mörkin: Bomba í slá og inn beint af æfingasvæðinu „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Sjá meira