Íþróttaálfurinn reynir við Íslandsmet á fjölskylduhátíð BL BL 20. febrúar 2026 14:20 Íþróttaálfurinn ætlar að kanna hversu mörg börn komast í gegnum nýjan MGS6 á sem skemmstum tíma á fjölskylduhátíðinni á morgun. BL býður til fjölskylduhátíðar í vetrarfríinu laugardaginn 21. febrúar milli klukkan 13 - 15 að Sævarhöfða 2. Tilefnið er frumsýning á nýjum MGS6 EV, glæsilegum og fjórhjóladrifnum, 100% rafknúnum fjölskyldujepplingi.
Sérstakur gestur dagsins verður Íþróttaálfurinn sem hyggst reyna við Íslandsmet í fjörugri þraut þar sem hann kannar hversu mörg börn komast í gegnum nýjan MGS6 á sem skemmstum tíma. Solla Stirða mætir einnig á svæðið og stíga þau Íþróttaálfurinn á svið kl. 13.15. Boðið verður upp á ís fyrir krakkana, andlitsmálningu, blöðrudýr og ljúffengt kaffi frá Kaffitár ásamt sætum bitum fyrir gesti. Þá gefst einnig einstakt tækifæri til að sjá nýjan MG Cyberster, 510 hestafla, alrafmagnaðan tveggja sæta sportbíl sem markar nýjan kafla í sögu MG. Viðburðurinn er einstakt tækifæri til að gera eitthvað skemmtilegt saman í vetrarfríinu og jafnvel verða hluti af Íslandsmeti. MGS6 sigurvegari í El Prix 2026 MGS6 EV hefur þegar vakið athygli fyrir framúrskarandi árangur. Í vetrarútgáfu norska El Prix 2026, þar sem aðstæður voru óvenju krefjandi með allt að −32 gráðum í frosti, stóð bíllinn sig sérstaklega vel. Hann missti aðeins um 29% af uppgefinni WLTP-drægni, sem var meðal lægsta drægnitaps í prófinu. Til samanburðar var meðaltap þeirra bíla sem tóku þátt 37,7% og fór hæst í 46%. El Prix er eitt þekktasta raunpróf rafbíla í Evrópu og er skipulagt af NAF og bílatímaritinu Motor þar sem bílar eru keyrðir fullhlaðnir við sömu aðstæður þar til drægni er fullreynd. MGS6 EV er rúmgóður og búinn snjöllum tæknilausnum og þægindum. Hann er fjórhjóladrifinn, alrafmagnaður fjölskyldujepplingur með allt að 485 km drægni (WLTP) og hentar því vel íslenskum aðstæðum. Leynigestur - Forsýning á nýjum MG Cyberster Gestir hátíðarinnar verða þeir fyrstu sem líta sportbílinn Cyberster augum. MG Cyberster er nýr, 510 hestafla, alrafmagnaður, tveggja sæta sportbíll með sterka tilvísun í ríka sögu MG. Hann er hannaður til að vekja athygli og skartar svökölluðum „scissor“ hurðum og hröðun sem vekur athygli. Sjón er sögu ríkari.
Bílar Vistvænir bílar Mest lesið Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Sjá meira