Treystir ríkisstjórnin þjóðinni í raun? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 21. febrúar 2026 07:31 Forystumönnum ríkisstjórnarinnar hefur verið tíðrætt um það að þeir treysti þjóðinni til þess að ákveða í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu hvort hefja eigi á nýjan leik umsóknarferli að Evrópusambandinu. En hversu vel treystir ríkisstjórnin þjóðinni í raun í þeim efnum? Greinilega ekkert sérlega vel miðað við staðreyndir málsins. Haft var eftir Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í norska dagblaðinu Nationen fyrr í vikunni að ef niðurstaða þjóðaratkvæðisins yrði nei yrði það aðeins nei tímabundið. Eða eins og haft var eftir henni á norsku: „Om det er et nei så er det et nei for en stund.“ Með öðrum orðum að sú niðurstaða yrði ekki virt nema tímabundið. Kristrún sagði aðspurð við Morgunblaðið í janúar að þjóðaratkvæðið yrði haldið þegar ríkisstjórnin fyndi „hentugan glugga“ til þess. með öðrum orðum þegar sem mestar líkur yrðu taldar á því samþykkt verði að hefja nýtt umsóknarferli. Þá mun einnig standa til að orða spurningun þannig að hún auki sem mest líkurnar á „réttri“ niðurstöðu. Fram kom í skýrslu þings Evrópusambandsins um norðurslóðir í nóvember vilji þess til pólitískra afskipta af þjóðaratkvæðinu og aðrar stofnanir sambandsins hvattar til þess sama í samstarfi við ríkisstjórn Íslands. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra lagði til efni í skýrsluna og hefur enga athugasemd gert vegna málsins. Mikil áherzla hefur verið lögð á það af Þorgerði að þjóðaratkvæðið fari fram sem allra fyrst. Sem er skiljanlegt enda hafa skoðanakannanir ekki verið að þróast með hagfelldum hætti fyrir Evrópusambandssinna og það saxast á kjörtímabilið. Þorgerður treystir greinilega ekki kjósendum síðar og alls ekki í næstu þingkosningum. Mögulega þarf það ekki að koma á óvart enda var þjóðaratkvæðið ekki hluti af kosningastefnu Viðreisnar, flokks Þorgerðar, fyrir síðustu þingkosningar. Þá forðuðust hún og aðrir forystumenn hans að minnast á málið í kosningabaráttunni. Enda hafði könnun fyrir Evrópuhreyfinguna sumarið áður sýnt að það væri ekki ávísun á atkvæði. Fyrir þingkosningarnar sagði Þorgerður Katrín aðspurð í Spursmálum að mögulegt þjóðaratkvæði um málið væri mikil málamiðlun af hálfu Viðreisnar. Venjulega þarf ekki að gera málamiðlanir vegna einhvers sem maður er hlynntur. Halda mætti svona áfram. Fátt bendir einfaldlega til þess að ríkisstjórnin treysti þjóðinni í raun. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Evrópusambandið Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Hjörtur J. Guðmundsson Mest lesið Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir Skoðun Icelandair – Tíminn til að bregðast við er núna Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Haltu bara í þér Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Íslenskukunnátta er sameiginleg ábyrgð Helga Rósa Másdóttir,Wendill Galan Viejo skrifar Skoðun Öfgar og ófagleg vinnubrögð Tryggvi Felixson skrifar Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik skrifar Skoðun Icelandair – Tíminn til að bregðast við er núna Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir skrifar Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Sjá meira
Forystumönnum ríkisstjórnarinnar hefur verið tíðrætt um það að þeir treysti þjóðinni til þess að ákveða í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu hvort hefja eigi á nýjan leik umsóknarferli að Evrópusambandinu. En hversu vel treystir ríkisstjórnin þjóðinni í raun í þeim efnum? Greinilega ekkert sérlega vel miðað við staðreyndir málsins. Haft var eftir Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í norska dagblaðinu Nationen fyrr í vikunni að ef niðurstaða þjóðaratkvæðisins yrði nei yrði það aðeins nei tímabundið. Eða eins og haft var eftir henni á norsku: „Om det er et nei så er det et nei for en stund.“ Með öðrum orðum að sú niðurstaða yrði ekki virt nema tímabundið. Kristrún sagði aðspurð við Morgunblaðið í janúar að þjóðaratkvæðið yrði haldið þegar ríkisstjórnin fyndi „hentugan glugga“ til þess. með öðrum orðum þegar sem mestar líkur yrðu taldar á því samþykkt verði að hefja nýtt umsóknarferli. Þá mun einnig standa til að orða spurningun þannig að hún auki sem mest líkurnar á „réttri“ niðurstöðu. Fram kom í skýrslu þings Evrópusambandsins um norðurslóðir í nóvember vilji þess til pólitískra afskipta af þjóðaratkvæðinu og aðrar stofnanir sambandsins hvattar til þess sama í samstarfi við ríkisstjórn Íslands. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra lagði til efni í skýrsluna og hefur enga athugasemd gert vegna málsins. Mikil áherzla hefur verið lögð á það af Þorgerði að þjóðaratkvæðið fari fram sem allra fyrst. Sem er skiljanlegt enda hafa skoðanakannanir ekki verið að þróast með hagfelldum hætti fyrir Evrópusambandssinna og það saxast á kjörtímabilið. Þorgerður treystir greinilega ekki kjósendum síðar og alls ekki í næstu þingkosningum. Mögulega þarf það ekki að koma á óvart enda var þjóðaratkvæðið ekki hluti af kosningastefnu Viðreisnar, flokks Þorgerðar, fyrir síðustu þingkosningar. Þá forðuðust hún og aðrir forystumenn hans að minnast á málið í kosningabaráttunni. Enda hafði könnun fyrir Evrópuhreyfinguna sumarið áður sýnt að það væri ekki ávísun á atkvæði. Fyrir þingkosningarnar sagði Þorgerður Katrín aðspurð í Spursmálum að mögulegt þjóðaratkvæði um málið væri mikil málamiðlun af hálfu Viðreisnar. Venjulega þarf ekki að gera málamiðlanir vegna einhvers sem maður er hlynntur. Halda mætti svona áfram. Fátt bendir einfaldlega til þess að ríkisstjórnin treysti þjóðinni í raun. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál).
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun
Skoðun Þegar einn múslimi talar, hvers vegna þurfa allir múslimar að svara? Mansoor Ahmad Malik skrifar
Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun