Doc Zone: Trylltust af fögnuði er Orri bætti við öðru marki sínu Aron Guðmundsson skrifar 21. febrúar 2026 15:04 Orri fagnar hér seinna marki sínu í leik dagsins Vísir/Getty Orri Steinn Óskarsson skoraði tvennu þegar Real Sociedad gerði 3-3 jafntefli gegn Real Oviedo í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Það trylltist allt í Doc Zone á Sýn Sport þegar Orri seinna mark sitt sem virtist vera að tryggja Sociedad sigur en Eric Bailly, fyrrverandi leikmaður Manchester United náði að skora jöfnunarmark fyrir Oviedo undir lok leiks.
Orri byrjaði á varamannabekknum hjá Real Sociedad sem lenti í kröppum dansi fljótlega í seinni hálfleik þegar að gestirnir í botnliði Real Oviedo skoruðu tvö mörk með skömmu millibili og komu sér í stöðuna 0-2. Það var þá sem Orra var skipt inn á til þess að reyna koma Real Sociedad aftur inn í leikinn og það gerði hann. Tíu mínútum eftir að Orri kom inn á var íslenski landsliðsfyrirliðinn búinn að minnka muninn fyrir Sociedad með þrumuskalla eftir stoðsendingu Sergio Gomez. 2-1. Leikmenn Sociedad hömruðu járnið á meðan það var heitt og á 87.mínútu skoraði Króatinn Duje Caleta-Car og jafnaði metin fyrir heimamenn, 2-2. Þegar að venjulegur leiktími var að renna sitt skeið var röðin aftur kominn að Orra sem skoraði sitt annað mark í leiknum eftir stoðsendingu frá Goncalo Guedes og Sociedad yfir 3-2. Það ætlaði allt um koll að keyra í stúdíói Sýn Sport þar sem DocZone var í gangi í umsjón Hjörvars Hafliðasonar þegar að Orri skoraði þriðja mark Sociedad en lið hans var þó ekki lengi í paradís. Þegar komið var fram í uppbótartíma jafnaði Eric Bailly metin fyrir Real Oviedo með skalla eftir hornspyrnu Santi Cazorla og fór svo að leiknum lauk með 3-3 jafntefli. Afar svekkjandi fyrir Orra og liðsfélaga hans. Real Sociedad vermir nú 9.sæti deildarinnar og er þar með 32 stig eftir tuttugu og fimm leiki. Orri hefur verið að koma til baka eftir krefjandi meiðsli og hefur nú skorað fimm mörk á yfirstandandi tímabili í þeim tólf leikjum sem hann hefur komið við sögu í. Doc Zone er nú í beinni útsendingu á Sýn Sport og leikirnir í ensku úrvalsdeildinni við það að hefjast. Auk Hjörvars Hafliðasonar eru Andri Már Eggertsson, Hjálmar Örn Jóhannsson og Þorkell Máni Pétursson í setti að fylgjast með öllu því helsta.
DocZone Spænski boltinn Mest lesið Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Enski boltinn 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Var launahæstur í sögunni í tvo daga Sport Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Enski boltinn Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Enski boltinn Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Fótbolti Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Enski boltinn Dagskráin í dag: Mansfield og Messa á sunnudegi Sport Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Golf Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Fótbolti Fleiri fréttir Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Guðrún úr leik eftir tap fyrir Juventus Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Diljá aftur með tvö og áfram í Meistaradeild Framherjaleit Breiðabliks lokið Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Þrótti mistókst að fara á toppinn Drakk síðast vatn í drykkjarhléi úrslitaleiks HM Sjö mörk í stórsigri Íslendingaliðsins Grípa í taumana eftir banaslys Lutu í lægra haldi gegn toppliðinu Íslendingaliðið áfram í Evrópubikarinn Erlingur Agnars í FH Jorge Messi látinn Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Martraðardvöl Blika: „Tekið á andlega og líkamlega“ Infantino hafnar ásökunum um þöggunargreiðslu til meintrar ástkonu Nuddari Maradona grátklökkur í réttarsalnum Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Argentína mun ekki setja pressu á Lionel Messi Ensk landsliðskona vill sniðganga HM Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Haaland tilnefndur til tónlistarverðlauna í Noregi Afturelding á toppinn eftir stórsigur og tap Fylkis Uppgjörið: Valur-Víkingur 1-0 | Fyrsti sigur Vals síðan 25. maí Sjá meira