Vísindi eru grunnþekking Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar 22. febrúar 2026 13:03 Lýðræðisskipanin grundvallast á því að kjósendur séu upplýstir. Af þeirri nauðsyn leiðir mikilvægi tjáningarfrelsis og gegnsæis í lýðræðissamfélögum; það er til að samfélagið geti yfirhöfuð tekið þátt í stjórnmálastarfi. Góðu fréttirnar og slæmu fréttirnar Nýlegar byltingar í upplýsingatækni hafa stóreflt getu almennings til stjórnmálaþátttöku, bæði með betri aðgangi að upplýsingum, sem og getu til að taka þátt í umræðum og stjórnmálastarfi af öllu tagi. Vandinn er þó sá, að sama tæknibylting hefur leyst úr læðingi allar tegundir af upplýsingum, ekki einungis staðreyndi og betri skilning á þeim, heldur einnig rangfærslur, misskilning og afvegaleiðingar. Við höfum þannig bæði tækifæri til þess að komast að meiri sannleika heldur en áður, en sömuleiðis er meiri hætta á því að við sannfærumst um hluti sem eru sannanlega rangir, jafnvel hrein della. Nýlega nauðynleg grunnþekking Með öðrum orðum eru byltingar í upplýsingatækni tvíeggja sverð gagnvart lýðræðisskipaninni. Hæfileikinn til þess að gera greinarmun á því sem er satt og því sem er ósatt er því orðinn mun mikilvægari en hann var áður. Það er einfaldlega úr svo miklu meira magni af upplýsingum að greiða. Á síðustu öld gátum við auðveldlega búið við að vísindamenn lærðu vísindalega aðferð og fjölmiðlamenn lærðu fjölmiðlafræði, en almenningi dugði að kunna að lesa og reikna. Vísindaleg aðferð og fjölmiðlafræði eru þannig sérfræðiþekking, en lestur og stærðfræði grunnþekking. Fyrr á öldum voru þó lestur og stærðfræði einnig sérfræðiþekking. Á einhverjum tímapunkti þróaðist samfélagið á þann hátt, að ógerningur var fyrir hinn almenna borgara að athafna sig með góðu, hvort sem var í starfi eða stjórnmálaþátttöku, án þess að kunna hvort tveggja, allavega upp að einhverju marki. Nú er sama staða komin upp gagnvart vísindalegri aðferð og fjölmiðlafræði. Þekkingin á því hvernig gerður er greinarmunur á sönnu og ósönnu, hvernig heimilda er aflað og hvernig beri að túlka þær, og hvernig sé hægt að sannreyna eða rengja fullyrðingar, eru orðin að grunnþekkingu sem við þurfum öll að hafa til þess að geta tekið þátt í stjórnmálaumræðu þannig að vel fari, eða með öðrum orðum; til þess að vera nógu upplýstir kjósendur. Grunnþekking er hluti af grunnmenntun Að viti undirritaðs eru öll fög mikilvæg, sem kennd eru í grunnskólum í dag. Best væri að þurfa ekki að sleppa neinum þeirra. En við þurfum samt að forgangsraða. Þannig er lestur það fyrsta sem við kennum börnum í grunnskólum og stærðfræði það næsta. Jafnvel þótt íþróttir og danska séu mikilvæg fög, þá eru lestur og stærðfræði undirstöðuþekking, þannig að við leggjum fyrst mesta áherslu á hana. Það sem við ættum að kenna börnum strax á eftir lestri og stærðfræði, er hvernig gerður er greinarmunur á sönnu og ósönnu. Það eru nefnilega til margar aðferðir til þess, sem fara mikið til eftir viðfangsefnum, en grunnatriðin eru hin sömu. Vonandi er augljóst að sú vísindalega aðferð og fjölmiðlafræði sem eru kennd í háskólum eru of þungt efni fyrir yngstu grunnskólanemendur, en þótt lestur og stærðfræði hafi einnig talist þungur lærdómur á sínum tíma, hefur okkur tekist að útbúa tilheyrandi námsefni og námsbrautir fyrir börn niður í 6 ára aldur og jafnvel yngri. Þannig ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að kenna börnum á þeim aldri einhverja einfaldaða útgáfu af vísindalegri aðferð, vitaskuld eitt skref í einu, eins og öll önnur fög. Inntakið sjálft er nefnilega ekki ýkja flókið; er þetta satt og hvernig veistu? Hver kynslóð lærir nýja hluti Eina leiðin til að búa komandi kynslóðir undir áskoranir upplýsingaumhverfis nútímans, er með því að kenna þeim undirstöðu sannleiksleitarinnar. Við það eru nokkrar áskoranir, kannski helst skortur á námsefni sem hæfir aldurshópnum, sem og möguleg andstaða hópa sem líta á vísindi sem ógn við trú sína, lífsskoðun eða menningarlegar hefðir. Allt eru þetta áskoranir sem við ráðum við. Í stuttu máli eru aðferðirnar til að gera greinarmun á sönnu og ósönnu orðnar að nauðsynlegri grunnþekkingu í nútímasamfélagi. Við ættum að staðsetja þær í skólagöngu barna okkar í samræmi við þann veruleika. Höfundur er hugbúnaðarsmiður og tækniráðgjafi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Helgi Hrafn Gunnarsson Vísindi Mest lesið Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar