Markmiðið ekki að höfða til kvíða aðstandenda Árni Sæberg skrifar 23. febrúar 2026 15:58 Steinunn Erla Thorlacius, framkvæmdastjóri Intuens. Intuens Framkvæmdastjóri Intuens segir samstarf við Kraft, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra, hafa verið í góðri trú og í samráði við félagið. Tilgangurinn hafi verið að veita valkost fyrir þá sem sjálfir óskuðu eftir slíkri þjónustu, en ekki að höfða til ótta eða kvíða. Intuens hefur verið harðlega gagnrýnt fyrir að markaðssetja þjónustu sína sérstaklega gagnvart aðstandendum fólks sem greinst hefur með krabbamein.
Um helgina var rifjað upp þegar Kraftur, stuðningsfélag ungs fólks með krabbamein, bauð aðstandendum krabbameinssjúkra tilboð í heilskimun hjá Intuens árið 2023. Þannig sagði Sóley Tómasdóttir frá því á Facebook að Intuens hefði boðið henni sem aðstandanda sértilboð á svokallaðri heilskoðun. „Það var eitt óforskammaðasta útspil sem ég hef orðið vitni [að]. Þvert gegn ráðum heilbrigðisstarfsfólks ætlar fyrirtækið að hefja aftur starfsemi sem gengur beinlínis út á að nýta sér heilsukvíða fólks án þess að bjóða neitt sem getur tryggt heilsu, öryggi eða vellíðan. Ég er miður mín,“ sagði hún. Ekki lengur í samstarfi Í hádegisfréttum Bylgjunnar sagði Sólveig Ása Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri Krafts, að félagið sé ekki í samstarfi við Intuens í dag. Kraftur einbeitti sér að því að sinna jafningjastuðningi og fræðslu fyrir félagsfólk. Í sömu hádegisfréttum sagði Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, að markaðssetningin væri ósiðleg. „Það er vægast sagt óheppilegt og auðvitað ósiðlegt ef fyrirtæki ætlar sér að markaðssetja sig sérstaklega gagnvart hópum sem eru viðkvæmir fyrir. Það á við um fólk sem hefur haft krabbamein mjög nærri sér í lífinu. Það er fyrir neðan allar hellur,“ sagði hún. Hafi ekki átt bein samskipti við aðstandendur Steinunn Erla Thorlacius, framkvæmdastjóri Intuens, hefur sent fréttastofu yfirlýsingu vegna umfjöllunar um samstarf félagsins og Krafts. Þar segir að í samstarfi hafi falist að boðinn hafi verið afsláttur af þjónustu Intuens. Kraftur hafi séð um að miðla þeim upplýsingum til sinna félagsmanna og Intuens hafi engin bein samskipti átt eða markaðsetningu við einstaklinga innan félagsins vegna afsláttarins. Tilgangurinn hafi verið að veita valkost fyrir þá sem sjálfir óskuðu eftir slíkri þjónustu, en ekki að höfða til ótta eða kvíða. „Intuens hefur frá upphafi lagt áherslu á að þjónusta fyrirtækisins sé valkvæð viðbót við þá heilbrigðisþjónustu sem fyrir er. Við leggjum ríka áherslu á upplýsta ákvörðun, gagnsæi og fagleg vinnubrögð og niðurstöður eru unnar og metnar í samráði við sérfræðilækna. Við höfum djúpa samúð með þeim sem greinast með alvarlega sjúkdóma og aðstandendum þeirra. Umræða um hlutverk forvarna, mikilvægi snemmtækrar greiningar og umfang rannsókna er mikilvæg og eðlileg innan heilbrigðiskerfisins, og við virðum þau ólíku sjónarmið sem þar koma fram.“ Intuens muni áfram starfa á faglegan, ábyrgan og gagnsæjan hátt með það að markmiði að styðja einstaklinga sem vilji taka virkan og upplýstan þátt í eigin heilsuvernd.
Heilskimanir Krabbamein Heilbrigðismál Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu Innlent Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Erlent Fleiri fréttir Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Sjá meira