Rektor sendir frá sér yfirlýsingu vegna vantrauststillögu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 23. febrúar 2026 16:45 Silja Bára Ómarsdóttir rektor Háskóla Íslands. Vísir/Anton Brink Silja Bára Ómarsdóttir rektor Háskóla Íslands segir skiljanlegt að stúdentar mótmæli gjaldskrárhækkunum og segist ítrekað hafa bent á að fjármögnun háskólans liggi hjá stjórnvöldum, núverandi skrásetningargjald sé fjarri því að standa undir rekstri skólans. Hún segist hafa rætt málið við stúdenta og segist ítreka vilja sinn til að vinna með stúdentum að hagsmunum þeirra.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá rektornum. Tilefnið eru fréttir af því að meðlimir Vöku í Stúdentaráði Háskóla Íslands sem eru jafnframt í meirihluta hafi lagt fram tillögu um að lýst verði yfir vantrausti á hendur rektornum, vegna meints ábyrgðarleysis í hækkun skrásetningargjalda. Skrásetningargjaldið verður hækkað um 25 þúsund krónur frá og með næsta skólaári, hefur verið 75 þúsund krónur frá 2013 en verður nú 100 þúsund krónur. Tillagan verður tekin fyrir á fundi ráðsins á morgun en í tillögu Vökuliða segir: „Það er óásættanlegt að rektor Háskóla Íslands stuðli að hækkun skrásetningargjalda og er þar af leiðandi þess valdandi að fjármögnun Háskóla Íslands sé í meira mæli orðið hlutverk stúdenta í stað stjórnvalda.“ Skrásetningargjaldið standi ekki undir kostnaði Í yfirlýsingu sinni sem birtist á vef háskólans segir Silja Bára meðal annars að skólinn hafi á undanförnum árum unnið með stúdentum að því að efla margvíslega þjónustu við nemendur. Á sama tíma standi skólinn frammi fyrir því að fjárframlög til skólans standi í stað. „Þessu hefur fylgt niðurskurður en í þeim aðgerðum hefur allra leiða verið leitað til að reyna að tryggja að þjónusta við nemendur verði óbreytt. Óhjákvæmilegt virðist þó að niðurskurðurinn hafi áhrif á einhverjum sviðum enda koma þessar ráðstafanir harkalega niður á kjarnastarfsemi skólans sem þyrfti 20% meira fjármagn til að standast samanburð við aðra norræna háskóla.“ Segir hún að rektorar opinbera háskóla hafi um árabil kallað eftir því að hámark skrásetningargjalda, sem kveðið sé á um í lögum um opinbera háskóla, yrði hækkað. Gjaldið standi undir mikilvægri þjónustu við nemendur, ekki aðeins skráningarkerfi skólans. „Útreikningar HÍ sýna að skrásetningargjaldið stendur ekki undir þeim kostnaði sem fylgir þeirri þjónustu sem skólanum er ætlað að veita nemendum. Til þess hefði skrásetningargjaldið þurft að vera 180.049 kr. á hvern nema árið 2024 eins og fram kom í erindi forvera míns og annarra rektora opinberra háskóla til ráðuneytis háskólamála sl. vor. Í desember sl. samþykkti Alþingi svo heimild til að hækka skrásetningargjaldið úr 75.000 kr. í 100.000 kr. Það væri óábyrgt af HÍ að nýta ekki þá gjaldtökuheimild sem ríkið hefur veitt til að efla þá þjónustu sem ljóst er að mikil þörf er á. Þó að skrásetningargjaldið standi ekki undir þeim kostnaði sem það á að gera nemur það engu að síður tæplega 4% af fjárveitingu Háskóla Íslands.“ Ítrekar vilja sinn til samstarfs Silja Bára segir skiljanlegt að stúdentar mótmæli gjaldskrárhækkunum. Segist hún ítrekað hafa tekið undir það sjónarmið að ábyrgð á fjármögnun HÍ liggi hjá stjórnvöldum. Það hafi komið skýrt fram í bókun háskólaráðs í desember þar sem bent hafi verið á að skrásetningargjaldið sé fjarri því að nægja fyrir þeim kostnaði sem því sé ætlað að standa undir og því þurfi að tryggja það fjármagn á annan hátt. „Ég hef rætt þetta við fulltrúa stúdenta á fundum frá því ég tók til starfa og lagt áherslu á að ég vil vinna með stúdentum að hagsmunum þeirra. Ég ítreka vilja minn til samstarfs við stúdentahreyfinguna um að við sækjum saman fram í samtali við stjórnvöld um að efla stuðning við háskólastigið. Um leið og við bætum hag Háskóla Íslands og stúdenta treystum við samkeppnishæfni Íslands til framtíðar.“
Háskólar Hagsmunir stúdenta Skóla- og menntamál Tengdar fréttir Vill hækka skráningargjöldin í 100 þúsund krónur Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, hefur lagt til að skrásetningargjöld í opinbera háskóla á Íslandi geti orðið allt að 100 þúsund krónur fyrir skólaárið. Skrásetningargjöldin eru 75 þúsund krónur í dag og hafa verið óbreytt frá árinu 2014. Samþykki Alþingi tillöguna kæmi hún til framkvæmda á næsta ári. 8. september 2025 15:15 Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Fleiri fréttir Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sjá meira
Vill hækka skráningargjöldin í 100 þúsund krónur Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, hefur lagt til að skrásetningargjöld í opinbera háskóla á Íslandi geti orðið allt að 100 þúsund krónur fyrir skólaárið. Skrásetningargjöldin eru 75 þúsund krónur í dag og hafa verið óbreytt frá árinu 2014. Samþykki Alþingi tillöguna kæmi hún til framkvæmda á næsta ári. 8. september 2025 15:15