Stór hluti hærra skrásetningargjalds fari í að borga veitingareikning HÍ Eiður Þór Árnason og Bjarki Sigurðsson skrifa 23. febrúar 2026 23:05 Eiríkur Kúld Viktorsson er oddviti Vöku. Vísir/Sigurjón Meirihluti Stúdentaráðs Háskóla Íslands hefur lagt fram vantrauststillögu á hendur rektors skólans vegna hækkunar á skrásetningargjaldi. Gjaldið hefur staðið í 75 þúsund krónum síðustu tólf ár og á nú að hækka það upp í 100 þúsund krónur en um er að ræða þriðjungshækkun.
Fulltrúar stúdentahreyfingarinnar Vöku, sem eru í meirihluta í Stúdentaráði, eru ekki sáttir við þetta og hafa lagt fram vantrauststillögu á hendur Silju Báru Ómarsdóttur rektors. Eiríkur Kúld Viktorsson, oddviti Vöku, telur ekki tímabært að hækka gjaldið þrátt fyrir að það hafi staðið í stað í tólf ár. „Mér finnst vera kominn tími til að það sé í raun sýnt fram á skilgreinilega í hvað þetta gjald rennur. Og mér finnst líka að það sé kominn tími til í þessari rektorsembættistíð að það sé sýnt tillit og það sé sinnt hagsmunum stúdenta. Það sé kominn tími til að að heyra raddirnar og hlusta á þær,“ sagði hann í kvöldfréttum Sýnar. Eiríkur bætir við að innheimta skráningargjaldsins í núverandi fyrirkomulagi byggi ekki á traustum grunni. „Háskólanum hefur ekki tekist að sýna fram á í hvað peningurinn rennur í.“ Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, segir skiljanlegt að stúdentar mótmæli gjaldskrárhækkunum og segist ítrekað hafa bent á að fjármögnun háskólans liggi hjá stjórnvöldum. Núverandi skrásetningargjald sé fjarri því að standa undir rekstri skólans. Þetta kom fram í yfirlýsingu sem hún gaf út í dag. Hún segist hafa rætt málið við stúdenta og ítreka vilja sinn til að vinna með þeim að hagsmunum þeirra. Risastórt skref Eiríkur segir vantrausttillöguna vera stórt skref en fulltrúar Vöku geri þetta ekki að gamni sínu. „Okkur finnst líka vera risastórt skref að hækka álögur á nemendur um 33% á einu bretti. Nú sérstaklega þegar á þessu skólaári hefur litið í ljós bílastæðagjöld og auknar álögur í því formi. Að auki finnst okkur líka ansi stórt að fara fram á það og halda því fram, vissulega réttilega, að Háskóli Íslands sé fjársveltur þegar reksturinn er, ja, einkennilegur.“ Athugun þeirra hafi til að mynda sýnt að stjórnsýsla skólans hafi greitt 123 milljónir króna fyrir máltíðir og kaffiveitingar árið 2025. „Ef við heimfærum það yfir á auknar tekjur háskólans sem fást við þessa hækkun, þá er það 37% nemenda, það eru 4.927 nemendur sem borga þennan reikning með þessari hækkun.“ Skiptar skoðanir meðal nemenda Nemendur HÍ sem fréttastofa náði tali af í dag voru misjafnlega sáttir við fyrirhugaða hækkun. Á meðan sumir sögðu þetta skiljanlegt í ljósi þess að gjaldið hafi ekki hækkað í langan tíma sögðu aðrir að þetta væri ósanngjarnt gagnvart mörgum nemendum sem standi fjárhagslega höllum fæti. „Núverandi skráningargjöld eru nú þegar fráhindrandi fyrir fullt af fólki þannig að ef þetta er að fara að hækka þá er þetta bara að fara að virka fráhindrandi fyrir stærri hluta.“ Annar nemandi sagði að fyrirhuguð hækkun truflaði sig ekki mikið, sérstaklega í ljósi þess að hækkunin væri meiri ef litið væri til verðbólgu á síðustu tólf árum.
Háskólar Skóla- og menntamál Hagsmunir stúdenta Tengdar fréttir Rektor sendir frá sér yfirlýsingu vegna vantrauststillögu Silja Bára Ómarsdóttir rektor Háskóla Íslands segir skiljanlegt að stúdentar mótmæli gjaldskrárhækkunum og segist ítrekað hafa bent á að fjármögnun háskólans liggi hjá stjórnvöldum, núverandi skrásetningargjald sé fjarri því að standa undir rekstri skólans. Hún segist hafa rætt málið við stúdenta og segist ítreka vilja sinn til að vinna með stúdentum að hagsmunum þeirra. 23. febrúar 2026 16:45 Leggja til vantraust á hendur Silju Báru Meðlimir Vöku í Stúdentaráði Háskóla Íslands, sem eru í meirihluta í ráðinu, hafa lagt fram tillögu um að lýst verði yfir vantrausti á hendur Silju Báru Ómarsdóttur rektor Háskólans. Ástæða þess er meint ábyrgðarleysi í hækkun skrásetningargjalda. 22. febrúar 2026 18:17 Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu Innlent Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Erlent Fleiri fréttir Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Sjá meira
Rektor sendir frá sér yfirlýsingu vegna vantrauststillögu Silja Bára Ómarsdóttir rektor Háskóla Íslands segir skiljanlegt að stúdentar mótmæli gjaldskrárhækkunum og segist ítrekað hafa bent á að fjármögnun háskólans liggi hjá stjórnvöldum, núverandi skrásetningargjald sé fjarri því að standa undir rekstri skólans. Hún segist hafa rætt málið við stúdenta og segist ítreka vilja sinn til að vinna með stúdentum að hagsmunum þeirra. 23. febrúar 2026 16:45
Leggja til vantraust á hendur Silju Báru Meðlimir Vöku í Stúdentaráði Háskóla Íslands, sem eru í meirihluta í ráðinu, hafa lagt fram tillögu um að lýst verði yfir vantrausti á hendur Silju Báru Ómarsdóttur rektor Háskólans. Ástæða þess er meint ábyrgðarleysi í hækkun skrásetningargjalda. 22. febrúar 2026 18:17