Gat engu svarað og hótaði að reka aðstoðarfólk sitt Sindri Sverrisson skrifar 24. febrúar 2026 09:31 Kirsty Coventry, sem er frá Simbabve, tók við sem forseti IOC síðasta sumar. Getty/Luca Bruno Kirsty Coventry, forseti Alþjóða Ólympíusambandsins (IOC), kom alveg af fjöllum og hótaði að reka einhvern úr almannatengslateymi sínu, þegar hún fékk spurningar úr ýmsum áttum á fjölmiðlafundi á Vetrarólympíuleikunum.
Coventry ræddi við fjölmiðla í aðdraganda lokahátíðar leikanna en var bersýnilega pirruð þegar á henni dundu spurningar sem hún virtist engin svör eiga við, eins og sjá má hér að neðan. Hún gekk svo langt að segja að kannski þyrfti að reka einhvern úr teyminu hennar. International Olympic Committee President Kirsty Coventry snapped at her PR team, repeatedly saying ‘I was not aware’ during a news conference, in response to questions about recent events, including a statement from Germany opposing the 2036 bid due to historical sensitivity. pic.twitter.com/xH2dQNtGCF— DW News (@dwnews) February 20, 2026 Þetta voru fyrstu Ólympíuleikar Coventry og hún þarf kannski að venjast því að spurningar fjölmiðla geta verið af ýmsum toga. Ein spurningin snerist um það að talsmaður Þýskalandsforseta hefði sagt að það gæti valdið vandræðum ef Þjóðverjar héldu Ólympíuleikana 2036, þar sem þá væru akkúrat hundrað ár síðan að leikarnir voru haldnir í Berlín á tímum nasista. Coventry sagðist ekki hafa skoðun á þessu og að hún hefði ekkert heyrt um þetta mál, og að sér væri nú litið til fjölmiðlateymis síns. Ekki batnaði ástandið þegar Coventry var svo spurð út í stöðuna í Rússlandi, og fréttir um það að núverandi yfirmaður lyfjaeftirlits Rússa hefði tekið virkan þátt í ríkisstýrða lyfjahneykslinu þar í landi. „Allt í lagi, ég er að horfa á teymið mitt og kannski þarf að segja einhverjum upp því ég var ekki upplýst um þetta heldur, svo…“ svaraði Coventry. Hún var einnig spurð út í Gianni Infantino, forseta FIFA og meðlim IOC, og þátttöku hans í friðarráði Donalds Trump, og hvort það stangaðist á við reglur um pólitískt hlutleysi IOC-meðlima. Hún kvaðst þá enn ekki þekkja til málsins en sagði þó að meðlimir IOC ættu að gæta hlutleysis.
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Salah mættur til Tyrklands Fótbolti Fleiri fréttir Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Fór grátandi af velli Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Æfir blindandi og skýtur á eigandann Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Dagskráin í dag: Svarthvítur slagur og Stúkan Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Sjá meira