Hagnýtar húðflúraforvarnir Gísli Garðarsson skrifar 24. febrúar 2026 12:03 Gömul saga og ný segir að við séum ekki öll steypt í sama mót, sem betur fer. Þegar dætur mínar eru spurðar hvað þeim langi að verða þegar þær verði stórar eru svörin alls konar, yfirleitt nokkur í einu og ný koma fram í hverri viku. Þeim hefur þó ekki enn dottið í hug að læra latínu eins og pabbi sinn. Skyldi engan undra, enda hefði ég aldrei svarað sömu spurningu þannig sjálfur fyrr en eftir að ég skipti á öðru ári menntaskólanáms yfir í fornmáladeild og kynntist þar faginu. Það var ekki fyrr en að ég byrjaði að læra það að áhuginn kviknaði og hefur ekki slokknað síðan. Hann varð til þess að ég fór í gegnum stúdentspróf, tvær BA-ritgerðir, meistaranám og var byrjaður að vinna að doktorsverkefni áður en ég þurfti að gera hlé á námi vegna persónulegra ástæðna. Þessi áhugi er þess valdandi að mig dreymir enn um að ljúka einn daginn við doktorsverkefnið mitt. Hann rak mig erlendis í framhaldsnám þar sem ég kynntist umheiminum betur og síðar eiginkonu minni og barnsmóður. Ég þakka honum að mörgu leyti allt mitt líf í dag. Ég er ekki kennslufræðingur en mín reynsla, bæði sem nemandi og síðar sem kennari, er nefnilega að áhugi og tækifæri séu forsendur árangurs. Í því, sem þú ekki kynnist eða ekki hefur áhuga á, nærðu ekki árangri. Áhugi hefur meira forspárgildi um velgengni í námsgrein en huglægt mat á eðlislægu erfiðleikastigi hennar. Tækifæri til að komast í kynni við hana auka svo töluvert líkurnar á að áhuginn kvikni. Fornmáladeild Menntaskólans í Reykjavík hefur verið spáð yfirvofandi bráðadauða að minnsta kosti frá því að ég hóf þar nám fyrir bráðum 20 árum síðan og eflaust miklu lengur. Hún lifir þó enn. Hún lifði af styttingu framhaldsskólanámsins, sem fáir trúðu að hún myndi gera, og kannski lifir hún af nýjustu vendingar. Brjóstvitið segir mér þó að afskaplega ólíklegt sé að minna framboð af fornmálanámi muni auka eftirspurn eftir því. Þó svo færi er hætt við að í náminu sjálfu verði eftir minna að slægjast fyrir þau sem áhugann hafa. Margt misviturt hefur verið ritað og rætt um stöðu menntakerfisins en engum dylst að það á við umtalsverðar áskoranir að etja. Ég tel mig ekki hafa lausnir á þeim en ég efast um að samkeppnishæfni íslenskra skóla gagnvart nágrannalöndum okkar batni við að skera niður í rótgrónu sérhæfðu framhaldsskólanámi fag sem almennt er boðið upp á víðast hvar á meginlandinu og er sums staðar jafnvel skyldufag á grunnskólastigi. Það er ekki að ástæðulausu. Latínan er samevrópskur menningararfur okkar allra. Bókmenntir hennar og listir geyma gífurlegan hluta sameiginlegrar menningar okkar og sögu. Hún er bæði gefandi viðfangsefni ein og sér og veitir ekki síður góða undirstöðu fyrir og stuðning við aðrar list- og fræðigreinar. Því er oft haldið fram að latína hafi lítið eða ekkert hagnýtt gildi í daglegu lífi en þau, sem í sífellt opnara og samofnara alþjóðsamfélagi geta bjargað sér í gegnum einfalda texta, leiðbeiningar, dagblöð og vefsíður á algengum og útbreiddum rómönskum málum eins og t.d. frönsku eða ítölsku án þess að hafa lært þau sem slík, geta lesið allar áletranirnar á listaverkunum og byggingunum í almannarými og á söfnum út um alla álfuna eða geta stoppað vini sína í að fá sé húðflúr sem segja eitthvað allt annað en þau halda að þau segi, segja allt aðra sögu. Allt hefur þetta hið minnsta reynt töluvert meira á í mínu lífi en ég bjóst við þegar ég var krakki og raunar meira en margt annað sem mér var sagt að væri hagnýtt á langri skólagöngu. Ég ber ekkert nema djúpstæða virðingu fyrir því yfirlýsta markmiði skólastjórnenda Menntaskólans í Reykjavík að laða fleiri nemendur að fornmáladeildinni. Ég vona svo innilega að það gangi eftir. Ég hef hins vegar því miður verulegar efasemdir um að það verði gert eftir þeim leiðum sem hafa verið boðaðar. Ég hvet því eindregið minn gamla skóla og starfsstað, sem er nú síðasta vígi klassískrar menntunar fyrir háskólanám hérlendis, til að endurskoða þær. Það ríður líklegast töluvert meira á því en virðist. Höfundur er stúdent af fornmáladeild I Menntaskólans í Reykjavík, BA í latínu og BA í grísku frá Háskóla Íslands, MSc í fornfræði frá Edinborgarháskóla og fyrrum doktorsnemi við fornfræðideild þess skóla. Höfundur hefur jafnframt sinnt stundakennslu við MR, FÁ og HÍ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Framhaldsskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar