Hefur bætt við sig fimm milljónum fylgjenda Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. febrúar 2026 07:02 Alysa Liu með bæði gullverðlaunin sem hún vann Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina. Getty/Joe Scarnici Bandaríska skautadrottningin Alysa Liu hefur bætt við sig ótrúlegum fjölda fylgjenda á samfélagsmiðlum eftir að hún vann gullverðlaun í listdansi á skautum á Vetrarólympíuleikunum.
Listskautastjarnan fór úr 210 þúsund fylgjendum á Instagram fyrir Ólympíuleikana í ótrúlegar 5,2 milljónir eftir að hún vann tvenn gullverðlaun á vetrarleikunum í Mílanó Cortina í þessum mánuði. Það er fimm milljóna aukning á aðeins nokkrum vikum. Liu hjálpaði fyrst Bandaríkjunum að vinna liðakeppnina í listskautum 8. febrúar og vann síðan sjálf listdanskeppni kvenna ellefu dögum síðar. Dansaði við lag Laufeyjar Liu dansaði við lag Laufeyjar Lín Jónsdóttur í stutta prógramminu en í frjálsa prógramminu skautaði hún við lagið „MacArthur Park Suite“ með Donnu Summer. Liu hreif áhorfendur með gallalausum hreyfingum sínum, geislandi brosi og einkennandi hárgreiðslu. Sýning hennar skaut henni úr þriðja sæti og efst á verðlaunapall, fram úr japönsku stjörnunum Kaori Sakamoto og Ami Nakai. Sigurinn markaði fyrstu verðlaun Bandaríkjanna í listskautum kvenna í tvo áratugi – og það voru fyrstu gullverðlaun þjóðar hennar í þessari grein síðan á leikunum 2002 þegar Bandaríkjamenn voru á heimavelli í Salt Lake City. Líflegur persónuleiki og mikil gleði Líflegur persónuleiki og almenn gleði hinnar tvítugu Liu á Ólympíuleikunum fékk aðdáendur til að flykkjast á samfélagsmiðla hennar til að sjá meira, og forsaga hennar – sem innihélt ótrúlega endurkomu eftir tveggja ára hlé frá keppni – skaðaði heldur ekki. Það var ekki heldur slæmt að tengjast Laufeyju Lín sterkum böndum með því að nota lag hennar Promise en aðdáendur Laufeyjar tóku um leið ástfóstri við skautadrottninguna. Laufey er sjálf með yfir átta milljónir fylgjenda á Instagram. Liu þakkaði fyrir nýja, stóra fylgjendahópinn með færslu á Instagram um helgina þar sem hún birti viðeigandi mynd af sér brosandi með nýju verðlaunin sín tvö. „Þessi eru fyrir ykkur,“ skrifaði hún í myndatextann. View this post on Instagram A post shared by Bleacher Report (@bleacherreport)
Skautaíþróttir Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Íslenski boltinn Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Handbolti „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Fótbolti Fleiri fréttir Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover UFC tapaði 3,7 milljörðum á bardagakvöldinu í Hvíta húsinu Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Mögnuð tilþrif Íslendingsins unga vekja athygli Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið Viktor Gísli framlengir við Barcelona FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Metfjöldi nýrra þjálfara Viðurkennir að VAR hafi misst af því þegar leikmaður Brann sýndi puttann Gunnar Vatnhamar sagður á förum frá Víkingi Sjá meira