Menntun sem griðarstaður Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar 25. febrúar 2026 09:33 Nú hafa verið boðaðar breytingar á fornmáladeild Menntaskólans í Reykjavík, þar verður ekki lengur hægt að fá þriggja ára nám í latínu heldur einungis tveggja. Með því er í raun verið að leggja niður deildina og bjóða upp á máladeild þar sem latína er eitt þeirra mála sem er kennt, en þó ekki nægilega lengi til þess að nemendur öðlist í því raunverulega færni. Hingað til hefur námið miðað að því að nemendur geti á lokaári lesið klassíska texta frá rómverskri fornöld. Nemandur hefja námið með enga þekkingu en þegar þeir útskrifast geta þeir, undir leiðsögn kennara, tekist á við verk sem hafa verið lesin samfleytt í tvöþúsund ár á frummálinu. Þessir nemendur vita í kjölfarið að þeir geta lagt fyrir sig hvað sem þá lystir. Eins og lesendur geta líklega giskað á er ég stúdent af fornmáladeild MR og útskrifaðist þaðan 2007. Get ég í dag lesið latínu af sömu fimi og ég hafði náð við stúdentsprófið? Þó ég noti latínukunnáttu mína í starfi þá verð ég að svara þeirri spurningu neitandi. Almennt séð held ég að mér gengi illa að ná flestum stúdentsprófunum mínum núna í dag en það breytir því ekki að sú menntun sem ég fékk í fornmáladeild breytti lífi mínu. Án þessa náms væri ég ekki sú manneskja sem ég er í dag. Og þar sem ég er hæstánægð með þessa útgáfu af sjálfri mér finnst mér það óréttlæti að fólk sem er yngra en ég fái ekki að búa að sömu tækifærum, bara af því að kerfið langar að spara pening og gera okkur öll eins. Það fallega og frábæra við fornmáladeild er heildarmynd námsins. Latínan, grískan, fornfræðin og málvísindin sem bættust við grunn í íslensku, ensku, dönsku, þriðja máli og sögu. Þetta er dýrmætt nám af því tagi þar sem summan er stærri en hver þáttur fyrir sig Námið á fornmáladeild gaf mér heildarundirstöðu og skilning í hugvísindum sem reyndist mér ómissandi í háskólanámi og hefur hjálpað mér að fá botn í sjálfa mig og umheiminn alla tíð síðan. Fornmáladeild bauð upp á nám sem hentaði mér, þar sem ég fann minn stað í tilverunni á unglingsárunum. Í einhverju öðru námi hefði ég allt eins getað komið út úr framhaldsskóla með þá sjálfsmynd að ég væri frekar vitlaus. Þess í stað fann ég mína hillu í námi sem er á heimsmælikvarða. Er hægt að segja eitthvað betra um íslenskt menntakerfi eða menntun yfirhöfuð? Viljum við ekki að hver einasti framhaldsskóli geti boðið upp á eitthvað af þessu tagi, ekki endilega fornmáladeild en eitthvað sérstakt, þar sem nemendur finna sér nám við hæfi og til staðar eru kennarar, kennsluaðferðir, námsefni og skólamenning sem gerir þeim kleift að fá menntun sem gagnast þeim alla ævi? Viljum við ekki hlúa að þessum sviðum frekar en eyðileggja þau? Á hverjum degi getum við lesið fréttir frá öðrum löndum þar sem eitthvað er eyðilagt. Það getur gerst með sprengjuárás og það getur gerst með niðurskurði á fé. Það þarf ekki nema hendingssvipan til að eyðileggja eitthvað sem hefur tekið áratugi að byggja upp. Þegar það skref hefur verið stigið, er ekki víst að það sem var eyðilagt verði nokkurn tíma endurheimt aftur. Takk fyrir mig fornmáladeild, megir þú lengi lifa. Höfundur er sagnfræðingur og rithöfundur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Framhaldsskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar