Sterk sýn dugar ekki ef enginn hlustar Rúna Magnúsdóttir skrifar 26. febrúar 2026 12:30 Af hverju hlustun er vanmetnasta forystutækið á umbreytingatímum Það er eitthvað stórkostlega mannlegt við þetta: Við förum á fund með góða fyrirætlun um að hlusta.Við setjum jafnvel „muna að hlusta“ á to-do listann beint undir „muna að vera róleg/ur“ og „muna að drekka meira vatn“. Svo byrjar fundurinn. Einhver segir: „Við þurfum að endurskoða ferlana…“ Og áður en setningin klárast er heilinn búinn að kveikja á „ég-tengist-þessu“-ham: „Já! Þetta minnir mig á þegar við…“ „Það sem við ættum að gera er…“ „Ég held að lausnin sé…“ Og svo kemur þessi lúmska forystuútgáfa af FOMO: „Ef ég segi þetta ekki núna, missum við momentið.“ Við lítum kannski út fyrir að vera að hlusta.En heilinn er löngu farinn að æfa næstu ræðu. Hlustun í heimi þar sem allt er „sent“ og „bíða“ Samskipti í dag eru oft einstefna. Við sendum tölvupóst.Við sendum skilaboð.Við kynnum nýja stefnu.Og svo… bíðum við. En skilaboð eru ekki samtal. Og umbreyting verður ekki til í einstefnu. Samtal verður ekki til fyrr en einhver er tilbúinn að: ·vera raunverulega til staðar ·spyrja af forvitni ·þola þögn ·og geta breytt skoðun þegar ný innsýn kemur fram Annars erum við bara að skiptast á vel orðuðum áformum og vonast til að fólk fylgi. „Sterk sýn og plan“ er frábært… þangað til enginn finnur sig í því Allt gott og blessað. En svo kemur raunveruleikinn á fundi á þriðjudegi kl. 09:07, með kaffibolla sem er of heitur og dagskrá sem er of löng: ·einhver skilur ekki sitt hlutverk ·einhver er ósammála en segir það ekki ·Einhver er orðinn þreyttur á að vera „með“ ·og einhver hugsar: „Hverju breytir þetta fyrir mig á mánudaginn?“ Þarna deyr plan ekki vegna þess að það var slæmt. Það deyr vegna þess að enginn hlustaði nógu vel til að finna hvar fólk er statt. Á umbreytingatímum breytist hraðinn.Tæknin breytist.Markaðurinn breytist. En ef við hlustum ekki breytist menningin ekki. Hlustun er ekki mýkt. Hún er rekstrartæki. Leiðtogi sem hlustar virkilega: ·finnur mótstöðu áður en hún verður að árekstri ·finnur óöryggi áður en það verður að kulnun ·sér hugmyndir áður en þær hverfa aftur í þögnina Hlustun sparar tíma.Hún sparar endurvinnu.Hún sparar „hvað gerðist eiginlega?“-pósta eftir fundi. Á tímum þar sem allt snýst um skilvirkni er hlustun í raun eitt hagkvæmasta tækið sem við eigum. Og kannski er það einmitt þess vegna sem hún er vanmetin. Hún er ekki hávær.Hún er ekki dramatísk.Hún skapar ekki fyrirsagnir. En hún skapar traust og traust er grunnurinn að allri raunverulegri umbreytingu. Kannski er stærsta forystuáskorunin í dag ekki að tala skýrar. Heldur að geta sagt — og meina það: „Segðu mér meira. Ég vil skilja.“ Það hljómar einfalt. En á tímum hraða og hávaða gæti það verið róttækasta aðgerðin sem við tökum. Ég ætla að halda áfram að æfa mig í þessu. Þann 12. mars nk. mun ég leiða samtal um hlustun á UPPBROTI SVÞ 2026 – ekki til að kenna eina rétta leið, heldur til að skoða með þátttakendum hvernig við getum eflt hana í okkar daglega starfi. Kannski byrjar breytingin þar.Í einni spurningu.Og í raunverulegri hlustun.Höfundur er leiðtogamarkþjálfi, markaðs -og kynningastjóri SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Prince Polo, var táknmynd spillingar kommúnismans í Evrópu Júlíus Valsson Skoðun Þjóðin hræðist ekki leigupennana Sverrir Páll Einarsson Skoðun Hvað þarf marga borgarfulltrúa til að skipta um ljósaperu? Páll Edwald Skoðun Ofbeldi er ekki starfslýsing Kolbrún Halldórsdóttir Skoðun Hvað er planið? Hildur Jónsdóttir Skoðun Við getum ekki slökkt elda að eilífu Silja Sóley Birgisdóttir Skoðun Að standa af sér storminn Gerður Björk Sveinsdóttir Skoðun Að vera upp á aðra kominn: Hugleiðingar öryrkja Unnur Hrefna Jóhannsdóttir Skoðun Meirihlutinn hafnar eigin tillögu um byggingu íbúða fyrir eldra fólk Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Mannréttindasvikarar Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Nú er tíminn! Ása Valgerður Sigurðardóttir skrifar Skoðun Að standa af sér storminn Gerður Björk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Skaðabótalög – breytingar til hagsbóta fyrir neytendur? Tinna Björk Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Fullveldið og 27. greinin Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Prince Polo, var táknmynd spillingar kommúnismans í Evrópu Júlíus Valsson skrifar Skoðun Byggjum framtíð á ís – fyrir börnin okkar og samfélagið allt Anna Maria Hedman skrifar Skoðun Hvað er planið? Hildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Ofbeldi er ekki starfslýsing Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Gerum okkar besta Ólafur Helgi Jóhannsson skrifar Skoðun Sterkir innviðir skapa sterkt samfélag Arna Rut Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvað þarf marga borgarfulltrúa til að skipta um ljósaperu? Páll Edwald skrifar Skoðun Að vera upp á aðra kominn: Hugleiðingar öryrkja Unnur Hrefna Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þjóðin hræðist ekki leigupennana Sverrir Páll Einarsson skrifar Skoðun Meirihlutinn hafnar eigin tillögu um byggingu íbúða fyrir eldra fólk Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hag(ó)stjórnin Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar við hugum að líðan styrkjum við allt samfélagið Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Mannréttindasvikarar Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Smá pæling frá einni sem ætlar að taka þátt í uppbyggingu Grindavíkur Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Samkeppnismat - aukin samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og virkari samkeppni Margrét Einarsdóttir,Páll Gunnar Pálsson skrifar Skoðun Þetta er ekki ástand – þetta er þjóðarglæpur Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Breytum menningu og eflum menntakerfið okkar – vitundarvakning meðal foreldra Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar orð verða vopn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Reykjavík situr föst – og biðin er orðin stefna Gunnar Einarsson skrifar Skoðun Sterk sýn dugar ekki ef enginn hlustar Rúna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Félagsmiðstöðvar sem lykilþáttur í uppvexti ungmenna Rebekka Ósk Friðriksdóttir skrifar Skoðun Austurland er þjóðinni mikilvægt Heimir Snær Gylfason skrifar Skoðun Við getum ekki slökkt elda að eilífu Silja Sóley Birgisdóttir skrifar Skoðun Samfélag sem velur framþróun yfir stöðnun Benóný Valur Jakobsson skrifar Skoðun Græna gímaldið: Minnisvarði um glötuð tækifæri Davíð Bergmann skrifar Skoðun Grásleppufrumvarpið er mikil afturför Jens Guðbjörnsson skrifar Sjá meira
Meirihlutinn hafnar eigin tillögu um byggingu íbúða fyrir eldra fólk Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun
Skoðun Meirihlutinn hafnar eigin tillögu um byggingu íbúða fyrir eldra fólk Stefán Már Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Smá pæling frá einni sem ætlar að taka þátt í uppbyggingu Grindavíkur Dagmar Valsdóttir skrifar
Skoðun Samkeppnismat - aukin samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og virkari samkeppni Margrét Einarsdóttir,Páll Gunnar Pálsson skrifar
Skoðun Breytum menningu og eflum menntakerfið okkar – vitundarvakning meðal foreldra Sigurður Sigurðsson skrifar
Meirihlutinn hafnar eigin tillögu um byggingu íbúða fyrir eldra fólk Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun