Fái að hitta lækni fyrr með nýju skipulagi á bráðamóttökunni Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 27. febrúar 2026 11:31 Viðbyggingin er við Landspítalann í Fossvogi. Vísir/Vilhelm Ný viðbót við bráðaþjónustu Landspítalans verður til húsa í nýrri viðbyggingu en framkvæmdir standa yfir. Markmiðið er að setja upp bráðamatsdeild að breskri fyrirmynd. „
Það er mjög mikið af fólki á spítalanum sem ekki kemst út, þótt það sé búið að ljúka meðferð hja okkur. Svo birtist þetta vandamál þá á bráðamóttökunni fyrst og fremst, sem hefur jú komið í fjölmiðla endurtekið,“ segir Rafn Benediktsson, framkvæmdastjóri bráðalækninga á Landspítalanum, í myndskeiði sem fylgir með fréttatilkynningu. Líkt og Rafn bendir á hefur staða mála á bráðamóttöku sjúkrahússins verið mikið umfjöllunarefni síðustu vikur, sér í lagi í kjölfar þess að starfsfólk bráðamóttökunnar krafðist úttekta á aðbúnaði og áhrifum á sjúklinga. Rafn segir að ákveðið hafi verið að horfa til Bretlands. „Við erum að breyta aðeins um nálgun, það er að segja að dreifa álaginu og vera ekki með allt á þessu litla svæði sem bráðamóttakan er.“ Vicky Price, forseti félags bráðalyflækna í Bretlandi, segir vandamál í heilbrigðiskerfinu sem felast í yfirfullum bráðamóttökum og álagi á sjúkrahúsin, ekki einungis vera á Íslandi heldur um alla Evrópu. Álíka skipulag er nú við lýði bæði í Kaupmannahöfn og Amsterdam. Skipulagsbreytingin felur í sér að sjúklingar fái að hitta lækni fyrr heldur en venjan er nú. „Það er mikilvægt að það er ekki verið að ræða um að ýta fólki út. Það fær meðferð og er síðan meðhöndlað eins og á göngudeild en það gæti þýtt að þú kemur daginn eftir til að fá sýklalyf eða dreypi. Svo það er meðferð en þú ferð heim að sofa í þínu eigin rúmi og borðar þinn eigin mat, sem fólk vill augljóslega,“ segir Price. Sérfræðingur frá Bretlandi hefur verið ráðinn til starfa til að fylgja breytingunum eftir.
Landspítalinn Ástand á bráðamóttöku Landspítalans Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands Sjá meira