Gerum okkar besta Ólafur Helgi Jóhannsson skrifar 27. febrúar 2026 13:30 Ef við gætum fylgst með öllum kennslustundum í grunnskólum landsins í einn dag kæmi í ljós að vinnan sem þar fer fram er afar fjölbreytt og metnaðarfull. Samskipti kennara og nemenda eru eðlileg og afslöppuð og nemendum líður vel. Á þessu eru svo undantekningar eins og eðlilegt má teljast. Ég leyfi mér að fullyrða að við höfum allar forsendur til að gera gott skólakerfi að enn betra skólakerfi þar sem leitin að betri lausnum einkennir starfið. Þetta er skólakerfi sem er í sífellri þróun. Þegar litið er yfir sviðið sjáum við fjölmörg atriði sem brýnt er að bæta úr. Ég vek athygli á nokkrum þeirra og hending ræður röðinni. Greinabundin námstjórn á landsvísu hefur ekki verið til staðar síðan 1996, eða frá því að skólinn var fluttur til sveitarfélaga. Af því leiðir að yfirvöld menntamála og fagstéttir kennra hafa ekki heildarsýn yfir stöðu einstakra námssviða/námsgreina. Fyrir 1996 störfuðu námstjórar í menntamálaráðuneytinu og fræðslustjórar höfðu umsjón með framkvæmd skólastarfs, hver í sínu umdæmi. Þetta tvöfalda stuðnings- og eftirlitskerfi var fellt niður án þess að nokkuð kæmi í staðinn mér vitanlega. Símenntun er að mestu leyti á ábyrgð einstakra kennara og einstakra skóla. Enginn ber ábyrgð á að í boði sé símenntun fyrir kennara verk- og listgreina eða dönsku (tengist liðnum hér að framan). Kannski er þetta afleiðing þess að Samband íslenskra sveitarfélaga hefur ekki boðvald yfir einstökum sveitarfélögum. Verulega vantar að styrkja hagnýtar rannsóknir sem nota má til að taka upplýstar ákvarðanir og slá á hvers kyns sleggjudóma sem víða láta á sér kræla, ekki síst í samfélagsmiðlum. Svo er það lestrarkunnáttan margumrædda. Rannsaka þarf hve margir nemendur geta lesið sér til gagns við lok 4. 7. og 10. bekkjar. Úrbætur þarf svo að móta á grundvelli niðurstaðna. Umræður um lestur hafa verið afar óreiðukenndar og villandi, oft er t.d. blandað saman því að geta lesið, (kveðið að); lesfimi hve greiðlega og óhikað nemandinn les, lesskilningi, skilur nemandi orðin sem hann les og getur hann beitt þessum skilningi t.d. til að draga ályktanir? Stórbæta þarf skilyrði fyrir þá nemendur sem eiga við fjölþættan vanda að stríða; veita þarf sértækan stuðning, ráðgjöf og leiðsögn. Að þessu mun vera unnið. Síðast en ekki síst nefni ég þörfina fyrir vel menntaða kennara. Vel menntaðir kennarar, sem hafa faglegt svigrúm til að beita sérþekkingu sinni, búa við hagfeld ytri skilyrði og góð kjör eru máttarstólpar skólastarfs. Við búum í fámennu og strjálbýlu landi. Af því leiðir að nýta þarf tæknina til að tryggja eftir föngum jafnrétti til náms. Tæknin gerir kleift að nýta sérfræði kennara í fleiri en einum skóla. Af þessu er talsvert löng reynsla. Á þeirri reynslu má byggja. Enginn hefur töfralausn á því hvernig árangursríkast er að standa að umbótum í skólum. En reynslan bendir til þess að best gangi þegar ríki, sveitarfélög, skólahéruð og einstakir skólar ná samstöðu um hvar áherslurnar eiga að liggja og hvernig verkaskiptingu og samvinnu þessara lykilhagaðila er best fyrir komið. Mikilvægt er að tryggja að þeir sem eiga að sjá um framkvæmdina séu með í upphafi og á öllum stigum hvers verkefnis. þannig nýtist sérfræðiþekking þeirra best. Höfundur er fyrrverandi skólastjóri og lektor við Kenaraháskóla Íslands /Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Reikningsdæmi handa Ögmundi Arnar Sigurðsson Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Komið með skólabörnin í heimsókn á gamla leikskólann Elína Hallgrímsdóttir Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen Skoðun Skoðun Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Reikningsdæmi handa Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skrifar Skoðun „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Komið með skólabörnin í heimsókn á gamla leikskólann Elína Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Að tala tungum tveim Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hver á íslenska fánann? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Huh eða ro? Freyja Rut Emilsdóttir skrifar Skoðun Vaðlaheiðargöng: greiðsluvilji er allt sem þarf Hilmar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir skrifar Skoðun Verum JÁ-kvæð í ágúst Kristján Kristinsson skrifar Skoðun Nágranninn Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir skrifar Skoðun Er ESB að grafa undan eigin hagsmunum? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landhelgisgæslan til taks - í heila öld Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þegar ,,ríkið” yfirgaf byggðina Ragnar Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar
Skoðun Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir skrifar
Skoðun Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir skrifar