Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Aurbjörg 2. mars 2026 08:50 Af hverju vitum við ekki hvert peningarnir okkar fara? Flest heimili kannast við tilfinninguna í lok mánaðar: Launin komu inn en samt virðist minna standa eftir en búist var við. Kreditkortareikningar reynast hærri en áætlað var og spurningin vaknar aftur: Hvert fóru peningarnir?
Á tímum hækkandi framfærslukostnaðar og aukinnar óvissu í efnahagsmálum skiptir raunveruleg yfirsýn meira máli en nokkru sinni fyrr. En þrátt fyrir fjölmargar sjálfvirkar bókhaldslausnir á markaði sýna bæði rannsóknir og reynsla fjármálaráðgjafa að yfirsýn ein og sér er ekki nóg. Fólk þarf að skilja fjármálin sín og taka virkan þátt í þeim, ekki bara fylgjast með þeim. Yfirsýn byrjar á því að sjá heildarmyndina Ný vara frá Aurbjörgu, Dagleg fjármál sem hægt er að lesa um betur hér, byggir á einfaldri en áhrifaríkri hugmynd: að gera tekjur og útgjöld sýnileg á myndrænan hátt. Þannig má sjá hvernig peningarnir flæða frá launum yfir í ráðstöfunartekjur og þaðan í fasta liði, breytilegan kostnað og sparnað. Það sem kemur inn og það sem fer út sést á einum stað. Ein mynd segir meira en langur listi af færslum. Virk þátttaka skapar raunverulega breytingu Ólíkt sjálfvirkum lausnum þar sem gögn eru sótt beint úr banka krefst Dagleg fjármál virkrar þátttöku notandans. Tekjur eru skráðar inn, útgjöld flokkuð og markmið sett. „Góð yfirsýn yfir tekjur og útgjöld er lykilatriði í heilbrigðum fjármálum og grunnurinn að öllum öðrum ákvörðunum okkar. Án hennar er ómögulegt að skipuleggja sparnað, fjárfestingar eða niðurgreiðslur lána,“ segir Björn Berg, fjármálaráðgjafi. Hann bendir á að það eitt að skrá sjálfur inn upplýsingar breyti hegðun og auki ábyrgð. Þegar fólk sér með eigin augum hversu mikið fer í ákveðna liði hvort sem það eru lán, matarkostnaður eða áskriftir, verður auðveldara að forgangsraða og taka upplýstar ákvarðanir. Fyrsta skrefið í stærri ákvörðunum Skýr mynd af daglegum útgjöldum er ekki markmið í sjálfu sér, hún er grunnur að stærri ákvörðunum. Hvort sem um er að ræða sparnað, niðurgreiðslu lána, fjárfestingar eða undirbúning fyrir framtíðina. Dagleg fjármál eru nú hluti af Plús áskrift Aurbjargar og bætast við heildstætt úrval lausna sem hjálpa heimilum að taka upplýstar fjármálaákvarðanir. Nánari upplýsingar má finna á www.aurbjorg.is
Fjármál heimilisins Hús og heimili Mest lesið Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Sjá meira