Ekki enn einn skandal, heldur upphaf breytinga Unnar Þór Sæmundsson skrifar 28. febrúar 2026 09:03 Reiðin sem hefur blossað upp í samfélaginu vegna Bakkakotsmálsins er skiljanleg. Hún er ekki tilviljun. Hún sprettur af því að fólk upplifir að hér hafi eitthvað farið alvarlega úrskeiðis ekki bara í einu máli, heldur í kerfi sem átti að vernda börn en gerir það bara alls ekki. Þegar börn eru sett í forgang á pappír en ekki í raunveruleikanum, þegar ábyrgðarkeðjur eru langar en enginn er tilbúin að axla ábyrgðina, þegar viðbrögð eru hæg, óskýr eða byggja á vörn þá er reiði eðlilegt viðbragð. Reiðin sem við sjáum núna er merki um að samfélagið er ekki tilbúið í að samþykkja siðrof eins og sjá má í Bakkakotsmálinu. Ég hef sjálfur fundið þessa reiði. Ég hef verið uppfullur af reiði frá barnsaldri og það var ekki fyrr en nýlega að ég fór að finna fyrir því að stærri og stærri hluti af mér fór að fyllast von, von um það að hér geti orðið vatnaskil, von um það að ekki stjórnvöld heldur almenningur vilji og ætli sér að kalla fram þær breytingar sem nauðsynlegar eru. Það er ykkur að þakka að mér hefur tekist að breyta þessari erfiðu tilfinningu og fyllast von. Bakkakotsmálið er spegill, þar sem við erum tilneydd til að horfast í augu við vandann en það er óþægilegt þegar speglar sýna okkur kerfi sem er orðið þreytt, brotið og byggt á röngum forsendum. Barnaverndarkerfið okkar hefur þróast í bútum, í viðbrögðum við einstökum áföllum, lagabreytingum og pólitískum málamiðlunum. Það hefur sjaldan fengist tækifæri til að hugsa það upp á nýtt, alveg frá grunni. Mig dreymir um að vera ekki skilgreindur út frá áföllunum mínum og hugsa, hvers vegna ættum við að sætta okkur við að þetta kerfi sé skilgreint út frá þeim áföllum sem það hefur skapað? Það er tækifæri fyrir framan okkur, við eigum að grípa það. Við getum ákveðið að láta þetta mál verða enn einn skandalinn sem líður hjá, með skýrslum sem svo er stungið undir stól, afsökunum, loforðum sem deyja út eða aðgerðum stjórnvalda sem firra sig stöðugt ábyrgð með hverjum þeim hætti sem hugsast getur. Eða við getum ákveðið að nota þessa sameiginlegu reiði sem orku til raunverulegra breytinga. Mig langar til að samfélagið finni fyrir sömu von og ég, mig langar ekki til að við séum öll reið. Ég vona innilega að við sem höfum berskjaldað okkur fyrir þjóðinni gefum ykkur frekar von en reiði þegar á líða stundir. Það tekur á að vera stöðugt reiður ég þekki það á eigin skinni og mig langar ekki til að við séum öll föst í reiðinni. Ég vil kerfi sem verndar börn. Kerfi sem setur þarfir barna í raunverulegan forgang. Kerfi sem styður starfsfólk í stað þess að brenna það út. Kerfi sem er gagnsætt, mannúðlegt og byggt á þekkingu en ekki ótta við ábyrgð eða orðspor. Kerfi sem grípur fyrr inn, vinnur meira með fjölskyldum og hefur skýr mörk þegar vernda þarf börn. Ég veit að þetta er ekki auðvelt verkefni. En vonin segir mér að samfélagið sé loksins tilbúið að horfast í augu við þá staðreynd að plástrar duga ekki lengur. Við þurfum að umbylta kerfinu ekki með reiði heldur ábyrgð, hugrekki og samvinnu. Spurningin er hvort við höfum kjark til að grípa þetta augnablik og gera barnaverndarkerfið okkar að því sem það hefði alltaf átt að vera. Höfundur var barn í Bakkakoti og sækist eftir sæti á lista Pírata í komandi borgarstjórnarkosningum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mál fósturbarna á Bakkakoti Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Unnar Þór Sæmundsson Mest lesið Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar