Vinkonur og liðsfélagar létust á leið heim af æfingu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. mars 2026 06:30 Hin átján ára gamla Danica Hills og besta vinkona hennar og liðsfélagi, hin sautján ára gamla Kayla Peacock létust í hræðilegu slysi. @Jaydencalvert Tvær íshokkíkonur létust á hörmulegan hátt þegar þær lentu í árekstri við flutningabíl á leið heim af íshokkíæfingu.
Hin átján ára gamla Danica Hills og besta vinkona hennar og liðsfélagi, hin sautján ára gamla Kayla Peacock, voru meðlimir íshokkíliðsins Jasper U18 Bearcats frá Alberta í Kanada. Lögreglan segir að talið sé að ástand vegarins hafi átt þátt í árekstrinum. Best friends Kayla Peacock and Danica Hills dreamed of moving from Hinton to Edmonton after graduation. Those dreams were cut short Monday when the teens died in a crash near Jasper after leaving hockey practice. The... https://t.co/BGwULhH4wm— CBCbrief - CBC News headlines (@CBCbrief) February 27, 2026 Peacock ók pallbílnum og Hills var farþegi. Báðar voru úrskurðaðar látnar á staðnum að sögn kanadísku ríkislögreglunnar. Gerðu allt saman Í yfirlýsingu til CBC News sagði Jayden Calvert, frændi Peacock, að stúlkurnar tvær frá Hinton hefðu verið bestu vinkonur sem „gerðu allt saman“. Unglingana dreymdi um að búa saman í Edmonton eftir útskrift úr menntaskóla í vor, sagði Calvert. Hills hafði fengið inngöngu í verkfræðideild Háskólans í Alberta og Peacock ætlaði að fara í MC College til að verða hárgreiðslukona. Þær voru á leið heim af íshokkíæfingu og liðsmyndatöku fyrir slysið, sagði Grant Bradley, forseti Jasper Minor Sports. A memorial grows at the arena in Jasper where Danica Hills, 18, and her best friend and teammate Kayla Peacock, 17, laced up for the last time Monday night — mere hours before being killed while driving home from practice.https://t.co/GxVVPQY45l— Global Calgary (@GlobalCalgary) February 26, 2026 Fyrir afskekkt samfélag eins og Hinton og Jasper eru ferðalög vegna íþróttarinnar nánast óumflýjanleg og Bradley sagði að slysið á mánudag hafi kveikt erfiðar umræður. „Þetta er ekki fyrsta atvikið á þessu ári í Alberta,“ sagði hann. „Þannig að það er ein af áhyggjunum og það hefur verið rætt á vettvangi deildarinnar varðandi ferðalög.“ Slysið sem unglingarnir frá Hinton lentu í varð aðeins þremur vikum eftir að þrír íshokkíleikmenn létust í árekstri í suðurhluta Alberta á leið á liðsæfingu. Að sögn RCMP er talið að ástand vegarins hafi verið einn af orsakaþáttum slyssins sem varð Peacock og Hills að bana. Ferðast margra kílómetra á æfingar „Það er ungt fólk sem ferðast marga kílómetra á sínum unga íshokkíferli og það er í hættu við að gera það,“ sagði Bradley. Aðalminningarathöfnin fer fram í þessari viku. Bearcats munu spila sinn fyrsta leik án Peacock og Hills þann 6. mars gegn Edson Sabres. „Þetta eru tvær mjög ungar manneskjur sem voru rétt í þann mund að leggja heiminn að fótum sér og þær fengu ekki tækifæri til þess,“ sagði Brian LaBerge, bæjarstjóri Hinton. LaBerge lýsti unglingunum sem „skærum ljósum“ sem voru duglegar í námi og í íþróttum. Hann lagði áherslu á þau áhrif sem harmleikurinn mun hafa á skólann þeirra í Hinton, sérstaklega kennarana en nemendur þeirra „verða [þeirra] börn“ á vissan hátt. „Allt samfélagið syrgir“ Fánar við Harry Collinge-menntaskólann eru dregnir í hálfa stöng þessa vikuna í kjölfar slyssins sem kostaði líf tveggja nemenda í 12. bekk. „Allt samfélagið syrgir,“ sagði Kurt Scobie skólastjóri. „Það eru engin orð sem geta að fullu lýst sorginni yfir slíkum missi.“ „Krakkarnir, þau eru að takast á við þetta betur en ég get ímyndað mér,“ sagði Bradley. „Fullorðna fólkið á sennilega erfiðara með þetta því þau eru foreldrar. Að missa barn, það er átakanlegt.“
Íshokkí Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Áhugaverð ummæli Teits hafa hrist upp í hlutunum Verður líkamleg og andleg barátta Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Tímabilinu lokið hjá Viktori Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu Finnar neita að spila við Rússland á HM Haukur um slæma stöðu Löwen: „Góður tími til að snúa þessu við“ LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Líkir Dallas Cowboys við ræningjana tvo í Home Alone West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Dagskráin í dag: Meistaradeildin og risa leikur í körfunni hér heima Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sara Rún öflug í sigri KR Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Sjá meira