Þýska stjórnarskráin krefst loftslagsaðgerða af stjórnvöldum Eyþór Eðvarðsson skrifar 2. mars 2026 07:47 Þýskaland er stærsta hagkerfi Evrópu. Landið byggir á öflugum stál-, efna- og bíliðnaði, á sér langa kolasögu og telur 84 milljónir íbúa. Miðað við stærð hagkerfisins og orkufrekan iðnað mætti ætla að umbreyting í loftslagsmálum yrði þar sérstaklega erfið. Samt hefur losun dregist saman um nær helming frá 1990. Árið 1990 nam losun Þýskalands um 1.250 milljónum tonna CO₂-ígilda en árið 2025 var hún komin niður í um 650-700 milljónir tonna. Losun á mann hefur á sama tíma lækkað úr yfir 15 tonnum í um 7-8 tonn á ári. Á Íslandi hefur þróunin verið önnur; losun hefur aukist frá 1990 og nemur nú um 30-33 tonnum á mann. Þrátt fyrir orkufrekan iðnað og fjölmenna þjóð er losun á mann í Þýskalandi því um fjórum til fimm sinnum lægri en hér á landi. Þjóðverjar stefna að 65 prósenta samdrætti fyrir 2030 og kolefnishlutleysi eigi síðar en 2045. Markmiðið er krefjandi en talið raunhæft haldi uppbygging endurnýjanlegrar orku og rafvæðing áfram af sama krafti. Þrjár undirstöður orkuskiptanna Árangurinn varð ekki til af sjálfu sér. Hann byggist á markvissri stefnu sem mótaðist á löngum tíma og hvílir á þremur lykilundirstöðum. Í fyrsta lagi tryggðu lög um endurnýjanlega orku stöðugar og fyrirsjáanlegar leikreglur með föstu kaupverði til allt að 20 ára og aðgangi að flutningskerfinu. Það gerði almenningi og fyrirtækjum kleift að fjárfesta. Endurnýjanleg orka varð þannig smám saman burðarás raforkukerfisins. Í öðru lagi fékk losun verð í gegnum evrópska viðskiptakerfið (ETS). Hækkandi kolefnisverð eftir 2018 hraðaði lokun kolaorkuvera og beindi fjármagni í hreinni orkugjafa. Í þriðja lagi festu loftslagslögin (Bundes-Klimaschutzgesetz) árleg losunarmörk í lög fyrir hvern geira. Ráðherrar bera ábyrgð á úrbótum fari mörkin úr skorðum. Samspil hvata, kolefnisverðs og lagalegrar ábyrgðar skapaði festu sem lifði af pólitískar sviptingar og orkukreppur. Þýskaland enn eitt stærsta iðnríkið heims þrátt fyrir nær helmings samdrátt í losun. Iðnaður er burðarás þýska hagkerfisins. Hlutfall hans af landsframleiðslu lækkaði úr 24,6% árið 1991 í 17,8% árið 2024. Það endurspeglar bæði endurskipulagningu eftir sameiningu landsins og almenna þjónustuvæðingu. Lokun úreltra verksmiðja í Austur-Þýskalandi hafði áhrif fyrstu árin en losun hélt áfram að dragast saman langt umfram það tímabil. Losun frá iðnaði hefur dregist saman um 45-50% frá 1990 á sama tíma og Þýskaland er áfram eitt stærsta framleiðsluríki heims. Umbreyting framleiðsluferla, svo sem rafvæðing, vetnisnotkun, aukin orkunýtni og breytt hráefnanotkun, hefur skipt sköpum. Hlutdeild endurnýjanlegrar orku í raforkuframleiðslu hefur aukist úr um 6% árið 2000 í yfir helming í dag og dregið úr kolefnisspori iðnaðarins. Ótti við kolefnisleka var tekinn alvarlega. Orkufrekir geirar fengu tímabundnar fríheimildir innan ETS-kerfisins og nýtt landamærakerfi ESB (CBAM) jafnar kolefnisverð á innfluttum vörum við framleiðslu innan sambandsins. Sú nálgun hefur stutt umbreytingu án þess að framleiðsla flyttist í stórum stíl úr landi. Slys í kjarnorkuveri í Japan olli bakslagi en ekki stefnubreytingu Eftir slysið í Fukushima 2011 var ákveðið að fasa kjarnorku út fyrir árslok 2022. Átta af sautján kjarnorkuverum voru stöðvuð strax og þau síðustu lokuðu vorið 2023 eftir tímabundna framlengingu vegna orkukreppu. Ákvörðunin jók álag á orkukerfið til skamms tíma en breytti ekki langtímastefnu um orkuskipti. Orkukreppan ýtti á hraðari umbreyting Innrás Rússlands í Úkraínu 2022 leiddi til orkukreppu þegar gasflutningar skertust. Kolaver voru tekin tímabundið aftur í notkun og losun jókst en dróst aftur saman 2024-2025. Gagnrýni á orkustefnuna varð hávær og margir töldu orkuskiptin ekki hafa gengið nógu hratt til að tryggja sjálfstæði frá innfluttu gasi. Viðbrögð stjórnvalda voru að hraða orkuskiptum. Leyfisveitingar fyrir vindorku voru einfaldaðar, skipulagsferlar styttir og endurnýjanleg orka skilgreind í lögum sem yfirgnæfandi almannahagsmunir (overriding public interest). Markmið um uppbyggingu vind- og sólarorku voru hækkuð, vetnisáætlanir stækkaðar og fjárfesting í innviðum aukin. Samhliða fengu heimili og fyrirtæki stuðning til að tryggja pólitíska og félagslega sátt. Diesel-gate málið varð vendipunktur Orkuskipti í samgöngum hafa reynst snúin. Fyrir utan að það tekur tíma að byggja upp hleðslunet, endurnýja bílaflotann og innleiða nýjar tæknilausnir snýr umbreytingin einnig að menningu og sjálfsmynd bílaþjóðar. Dieselgate-málið árið 2015 varð vendipunktur þegar upp komst um fölsun útblástursmælinga. Traust hrundi og krafa var um breytingar. Strangari reglur voru settar af ESB og þýskir framleiðendur neyddust til að hraða rafvæðingu. Rafbílar eru nú um fimmtungur nýskráðra bíla í Þýskalandi, svipað og í Evrópusambandinu, en nokkuð langt er í kolefnishlutleysi. Samgöngur voru lengi utan ETS-kerfisins og Þýskaland setti ekki kolefnisverð á eldsneyti fyrr en 2021. Frá og með 2027 tekur nýtt ETS-kerfi gildi sem nær til samgangna og bygginga í öllum aðildarríkjum. Flutningskerfið er flöskuháls Uppbygging grænnar orku kallar á styrkingu flutningskerfisins. Vindorka er að mestu framleidd í norðurhluta landsins en orkufrekur iðnaður er einkum í suðri. Tafir á uppbyggingu háspennulína og andstaða við nýjar flutningsleiðir sköpuðu flöskuhálsa sem hækkuðu kostnað og töfðu orkuskiptin tímabundið. Endurnýjanleg orka krefst sveigjanlegs kerfis. Þýskaland hefur því fjárfest í orkugeymslum, svo sem dæluafli, rafhlöðum og vetnislausnum, auk þess að styrkja samtengingar við nágrannaríki og bæta stýringu markaðarins. Orkuskiptin hafa þannig verið heildarumbreyting á orkukerfinu, ekki aðeins breyting á orkugjöfum. Verja réttindi komandi kynslóða Það segir margt um Þjóðverja að árið 2021 úrskurðaði þýski stjórnlagadómstóllinn að loftslagslögin frá 2019 væru að hluta til andstæð stjórnarskrá þar sem þau frestuðu of miklum samdrætti til framtíðar og vernduðu ekki nægilega réttindi komandi kynslóða. Í kjölfarið voru markmiðin hert. Þar með varð loftslagsstefnan ekki aðeins stjórnsýsluleg skylda heldur einnig stjórnarskrárlega varin framtíðarskylda. Reynsla Þýskalands sýnir að jafnvel stór og orkufrek iðnríki geta umbreyst þegar markmið, markaðstæki og lagaleg ábyrgð fara saman. Höfundur er í loftslagshópnum París 1,5 sem berst fyrir því að Ísland leggi sitt af mörkum til að takast á við loftslagsvandann. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eyþór Eðvarðsson Mest lesið Sverð Íslands og skjöldur Daði Már Kristófersson Skoðun Europe’s Second Soul Carl Baudenbacher Skoðun Af hverju segi ég nei í lok ágúst? Steingrímur J. Sigfússon Skoðun Ísland er í ESB Gísli Hjálmtýsson Skoðun Fjárhættuspil í barnaherberginu Alma Hafsteinsdóttir,Anný Aðalsteinsdóttir Skoðun Hernaðarástand í Fannborg Tryggvi Felixson Skoðun Þegar hagsmunir á hundruðum milljarða mæta lýðræðinu Sigurður Sigurðsson Skoðun Tvö vandamál þeirra sem læra íslensku sem annað mál (þau eru fleiri) Ólafur Guðsteinn Kristjánsson Skoðun ,,Taktu lyfin þín“ Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson Skoðun Skoðun Skoðun Vangaveltur um ESB, smáríki og Sviss Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Hernaðarástand í Fannborg Tryggvi Felixson skrifar Skoðun Um þöggun Hörður Torfason skrifar Skoðun Er of dýrt að sækja um aðild að ESB? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun EES vs. ESB - Hversu mörg störf missum við vegna tollanna? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Fjárhættuspil í barnaherberginu Alma Hafsteinsdóttir,Anný Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Ísland er í ESB Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Þurfum við enn eitt yfirvaldið? Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Hvað eiga hollenskt flutningafyrirtæki, ítalskur kaupsýslumaður og belgísk flugfreyja sameiginlegt? Dóra Sif Tynes skrifar Skoðun Af hverju segi ég nei í lok ágúst? Steingrímur J. Sigfússon skrifar Skoðun Tvö vandamál þeirra sem læra íslensku sem annað mál (þau eru fleiri) Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar Skoðun Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Sverð Íslands og skjöldur Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Þegar hagsmunir á hundruðum milljarða mæta lýðræðinu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Europe’s Second Soul Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun ,,Taktu lyfin þín“ Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Hver bauð Baudenbacher? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Kúvending eða ferð til fjár? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hinsegin fólk á vinnumarkaði – Frá tölum til aðgerða Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin er heimskur, síljúgandi siðblindingi Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ein borg, minna kerfi og betri nýting fjármuna Sölvi Breiðfjörð skrifar Skoðun Það er margt sem ég ekki skil Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er skólinn að kenna barninu þínu að lesa? Ertu viss? Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Hvað metum við mest? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Tæknilausnir og lesblindir Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar Skoðun MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar Skoðun Réttmæt kjörskrárvinnsla Haukur Arnþórsson skrifar Sjá meira
Tvö vandamál þeirra sem læra íslensku sem annað mál (þau eru fleiri) Ólafur Guðsteinn Kristjánsson Skoðun
Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson Skoðun
Skoðun Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson skrifar
Skoðun Hvað eiga hollenskt flutningafyrirtæki, ítalskur kaupsýslumaður og belgísk flugfreyja sameiginlegt? Dóra Sif Tynes skrifar
Skoðun Tvö vandamál þeirra sem læra íslensku sem annað mál (þau eru fleiri) Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar
Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar
Tvö vandamál þeirra sem læra íslensku sem annað mál (þau eru fleiri) Ólafur Guðsteinn Kristjánsson Skoðun
Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson Skoðun