Láta alla nemendur sem mega þreyta samræmdu prófin Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 3. mars 2026 12:01 Jóhanna Héðinsdóttir skólastjóri er heilt yfir ánægð með nýtt fyrirkomulag. Samræmd próf verða í marsmánuði lögð fyrir grunnskólanemendur í fyrsta sinn í fimm ár. Skólastjóri segist heilt yfir sáttur við nýtt fyrirkomulag prófanna, þó ýmsir vankantar séu til staðar. Nemendur séu rólegir vegna prófanna.
Ólíkt því sem var áður hafa forsvarsmenn grunnskólanna nú mánuð til að leggja samræmdu könnunarprófin fyrir nemendur og fá skólastjórnendur val um að leggja þau fyrir alla nemendur í fjórða til tíunda bekk, en ber skylda til að láta nemendur í fjórða, sjötta og níunda bekk spreyta sig á prófinu. Í Seljaskóla í Breiðholti í Reykjavík hafa nemendur þegar verið látnir þreyta prófin, Jóhanna Héðinsdóttir skólastjóri segir að þar hafi verið tekin ákvörðun um að allir nemendur frá fjórða til tíunda bekk myndu spreyta sig. „Okkur finnst alveg mikilvægt að fá þessar niðurstöður og við höfum bara faglegan metnað og viljum auðvitað bara sjá hvar við stöndum og ég held að foreldrar vilji það líka og nemendur sjálfir. Þannig að við ákváðum að gera þetta hér, að leggja þetta fyrir í öllum árgöngum þar sem það var leyfilegt.“ Þröngur rammi Tæknivandræði í gær hafi sett strik í reikninginn í gær en utan þess hafi próftakan gengið vel. Jóhanna segir nemendur rólega yfir prófunum, þar sé upplýsingagjöf til þeirra og foreldra lykilatriði. „Halda ber til haga að það er auðvitað gefinn þröngur rammi núna og ég segi þröngur af því að við erum auðvitað búin að skipuleggja alls konar viðburði innan skólastarfs áður en það er ákveðið að þetta sé lagt fyrir á þessum tíma. Þannig að okkur liggur svolítið á. Þú veist, jú, við höfum fjórar vikur en hér í mínum skóla til dæmis þá er þarna einn starfsdagur í mars og það eru þemadagar og það er opinn dagur og það eru alls konar viðburðir sem að við erum búin að leggja upp með áður en að ákvörðun um þetta er tekin.“ Gott að hafa meiri fyrirsjáanleika Heilt yfir séu skólastjórnendur í Seljaskóla sáttir en enn eigi eftir að slípa nokkra vankanta, nefnir Jóhanna sem dæmi að fjöldi nemenda í Seljaskóla sé af erlendum uppruna, í einhverjum tilvikum þurfi að biðja um undanþágu fyrir nemendur frá prófunum en undanþágubeiðnir séu einungis til á íslensku. „Og þetta er bara fysta atrenna eins og við segjum, nú er kominn aðeins meiri fyrirsjáanleiki, það er búið að taka ákvörðun um hvenær þessi próf verða lögð fyrir næstu þrjú skólaárin og það er bara mjög gott. Af því að þá höfum við bara ennþá betra rými til þess að skipuleggja skólastarf í kringum það og getum undirbúið okkur vel fyrir þetta. En ég vil samt segja að við undirbjuggum okkur eins vel og við gátum núna og nemendur eru bara nokkuð rólegir, finnst mér, yfir þessu. Þetta er bara verkefni eins og hvert annað hjá þeim.“
Grunnskólar Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands Sjá meira