Baðst afsökunar í þinginu: „Þeir eru að verja ríka fólkið, kvótakóngana, sægreifana“ Árni Sæberg skrifar 4. mars 2026 16:01 Grétar Mar Jónsson er varaþingmaður fyrir Flokk fólksins. Vísir Grétar Mar Jónsson, varaþingmaður Flokks fólksins, fékk orðið við upphaf þingfundar dagsins áður en gengið var til dagskrár. Það nýtti hann til að biðjast afsökunar á orðum sem hann lét falla í þinginu í gær. „Ég vil minna á að þetta eru sérhagsmunaöfl sem stjórnarandstaðan er að verja. Þeir eru að verja ríka fólkið, kvótakóngana, sægreifana og fórna sér fyrir þá,“ sagði hann meðal annnars. „
Virðulegi forseti. Undir lok umræðunnar um frumvarp um breytingar á lögum um grásleppuveiðar hér í þingsal í gær lét ég orð falla í hita leiksins varðandi meintar hvatir þingmanna sem eru á móti frumvarpinu. Einnig nafngreindi ég einstakling utan þings með gagnrýnum hætti, sem eðli máls samkvæmt getur ekki varið sig hér í þingsal. Frú forseti. Ég bið alla viðkomandi innilegrar velvirðingar á þessum orðum mínum og dreg þau hér með til baka,“ sagði Grétar Mar við upphaf þingfundar í dag. Verulega umdeilt frumvarp Í gær fór þriðja umræða um frumvarp meiri hluta atvinnnuveganefndar fram en það miðar að því að afnema aflamarksstjórn á grásleppu og Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi, er fyrsti flutningsmaður þess. Þar er gert ráð fyrir því að kvótakerfi sem komið var á 2024 með grásleppu verði lagt af og hið gamla dagakerfi tekið upp að nýju. Lilja Rafney sagði sig úr VG á sínum tíma vegna kvótasetningarinnar. Nokkuð hart hefur verið tekist á um frumvarpið síðan það var kynnt og áður en þriðja umræða hófst í gær gagnrýndu þingmenn minni hlutans harðlega að það hefði verið tekið til þriðju umræðu. Vísir fór yfir þær umræður í gær. Að lokinni þeirri umræðu mælti Lilja Rafney fyrir frumvarpinu fyrir hönd meiri hluta atvinnuveganefndar og í dag stendur til að greiða atkvæði um frumvarpið. Blandaði Helga Áss í málið Undir lok umræðunnar í gær, upp úr klukkan 17, áttu þeir Sigurður Örn Hilmarsson, Sjálfstæðisflokki, og Grétar Mar í umræðum um eignarrétt og hina ýmsu dóma sem fallið hafa um eignarrétt yfir fiskveiðiheimildum. Undir lok síðustu ræðu sinnar skipti Grétar Mar um umræðuefni. „Ég vil minna á að þetta eru sérhagsmunaöfl sem stjórnarandstaðan er að verja. Þeir eru að verja ríka fólkið, kvótakóngana, sægreifana og fórna sér fyrir þá enda borga þeir prófkjör og kosningar og annað þess háttar og hafa gert í gegnum tíðina fyrir þá sem eru að berjast fyrir þá. Svo vil ég minna á að meira að segja LÍÚ og SFS í framhaldinu voru með embætti í Háskóla Íslands, Helga Áss Grétarsson, til að þjónka sínum hagsmunum og reyna að hafa áhrif á á hvernig eignarhald væri túlkað í þessu gjörðum.“ Forseti minnti þingmenn á að gæta orða sinna að lokinni ræðu Grétars Mars.
Flokkur fólksins Alþingi Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla komu á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira