„Við ætlum ekki að líða þetta“ Jakob Bjarnar skrifar 4. mars 2026 16:32 Sigmundur Ernir Rúnarsson hellti sér yfir kaþólsku kirkjuna í ræðustól Alþingis fyrr í dag. vísir/vilhelm Sigmundur Ernir Rúnarsson þingmaður Samfylkingarinnar hélt þrumuræðu við upphaf þingfundar í dag þar sem hann fordæmdi orð séra Jakobs Rollands og reyndar gervalla kaþólsku kirkjuna í leiðinni. „
Kaþólska kirkjan býðst nú til að deyfa kynhneigð Íslendinga af því að þeir skulu skammast sín fyrir hana. Nú ætla ég ekki að gerast svo bíræfinn að biðja kaþólsku kirkjuna um að deyfa trúhneigð sína enda er tjáningarfrelsi í landinu og trúfrelsi.“ Kaþólska kirkjan að segja sig úr lögum við þjóðina Þannig hóf Sigmundur Ernir ræðu sína en Viðreisnar- og Samfylkingarfólki virðist sérlega heitt vegna þess sem fram hefur komið í máli séra Jakobs, einkum þar sem hann sagði að hann teldi lög Guðs æðri landslögum. Sigmundur Ernir tók þannig undir með flokkssystur sinni Helgu Völu Helgadóttur lögmanni sem telur að lögregla eigi að rannsaka það sem fram kom í máli kaþólska prestsins. Sigmundur Ernir vitnaði í landslög þar sem fram kemur að hver sá sem með nauðung, blekkingum eða hótunum fær einstakling til að undirgangast ógagnreynda meðferð í þeim tilgangi að bæla eða breyta kynhneigð, kynvitund eða kyntjáningu hans skal sæta sektum eða fangelsi allt að 2 árum. „Kaþólska kirkjan á Íslandi er að semja sig úr lögum við Ísland með þessum ömurlegu ummælum sem er það argasta afturhald sem við höfum heyrt á þessu ári. Hver eru skilaboðin til samkynhneigðs fólks og hinsegin fólks í landinu? Hver eru skilaboðin til fjölskyldna þeirra? Hver eru skilaboðin til allra bandamanna þeirra?“ Þið eigið að skammast ykkar fyrir kynhneigð ykkar Og spurningarnar héldu áfram að streyma frá Sigmundi Erni en honum var greinilega heitt í hamsi: Hver eru skilaboð til allra Íslendinga sem vilja búa í frjálslyndu, lýðræðislegu samfélagi sem trúir á mannréttindi og setur lög til að tryggja mannréttindi? Hver eru skilaboðin? Og hann svaraði sér sjálfur: „Þau eru: Skammist ykkar. Skammist þið ykkar fyrir kynhneigð ykkar. Ætlum við að líða þetta? Ætlum við að segja sem svo: Þetta er bara kaþólska kirkjan, hún hlýtur að mega hvað sem er í nafni trúfrelsis, í nafni tjáningarfrelsis. Nei, við ætlum ekki að líða þetta. Við erum önnur þjóð en það sem kaþólska kirkjan er að segja hér á Íslandi.“ Ræða Sigmundar Ernis féll í góðan jarðveg og var hrópað í þingsal: Heyr, heyr!
Trúmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samfylkingin Hinsegin Tengdar fréttir Séra Jakob segir það vandamál að fólk stundi kynlíf með öðrum af sama kyni Kanslari við kaþólsku kirkjuna á Íslandi segir að það sé ekki vandamál í sjálfu sér að vera samkynhneigður en það verði hins vegar að vandamáli þegar fólk sængar hjá öðrum af sama kyni. Utanríkisráðherra Íslands, sem er kaþólskrar trúar, harmar þessi viðhorf en við ræðum við formann Samtakanna 78 í beinni útsendingu. 3. mars 2026 18:14 Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira
Séra Jakob segir það vandamál að fólk stundi kynlíf með öðrum af sama kyni Kanslari við kaþólsku kirkjuna á Íslandi segir að það sé ekki vandamál í sjálfu sér að vera samkynhneigður en það verði hins vegar að vandamáli þegar fólk sængar hjá öðrum af sama kyni. Utanríkisráðherra Íslands, sem er kaþólskrar trúar, harmar þessi viðhorf en við ræðum við formann Samtakanna 78 í beinni útsendingu. 3. mars 2026 18:14