Tólf prósent Íslendinga á bótum Agnar Már Másson skrifar 4. mars 2026 21:08 Inga Sæland, nú barna- og menntamálaráðherra, lagði frumvarpið fram þegar hún var félags- og húsnæðismálaráðherra. Málið er eitt af stærstu áherslumálum Flokks fólksins. Vísir/Anton Brink Læknafélag Íslands lýsir þungum áhyggjum af fyrirhugðum breytingum á almannatryggingakerfinu og bendir á að öryrkjum hafi fjölgað verulega á síðustu árum.
Í ályktun sem Læknafélag Íslands samþykkti á stjórnarfundi 2. mars eru stjórnvöld hvött til þess að hverfa frá fyrirhugaðri tengingu bóta almannatrygginga, örorku- og ellilífeyris við launavísitölu og vísitölu neysluverðs. Þá eru stjórnvöld eindregið hvött til að taka til endurskoðunar þann þátt núverandi örorkukerfis sem snýr að hlutaörorku og þeim sem fá greiðslur frá lífeyrissjóðum vegna örorkulífeyris með framreikningi. „Hafa skal að leiðarljósi að fólk verði með hærri tekjur með því að snúa aftur til vinnu en að fara á örorku eða hlutaörorku,“ segir í ályktuninni. Örorka orðin varanleg Læknafélagið vill meina að hlutfall fólks á örorku- og endurhæfingarlífeyri hafi aukist verulega á síðustu árum. Reyndar segir félagið að það hafi hækkað úr 6,3 prósentum í 9,4 prósent frá 2020 til 2024, en svo virðist sem einhver miskilnings gætir í þeim efnum; líklegast eiga læknarnir frekar við að þessi breyting hafi orðið á árunum 2000 til 2024, eins og greint var frá í Læknablaðinu í febrúar. Nú sé hlutfallið aftur á móti komið í 12 prósent. Í þessu samhengi benda læknar á að breytingar frá 2024 hafi þegar verið gerðar á örorkukerfinu á undanförnum árum sem hafi valdið þessari aukningu, einna helst að örorka sé nú orðin varanleg og að almennt sé ekki farið í endurmat. Réttur til greiðslna myndist auk þess strax á biðlista eftir endurhæfingu. Læknafélagið telur að núverandi kerfi geti búið til ranga fjárhagslega hvata og bendir félagið á að samanlagðar bætur frá Tryggingastofnun (TR) og lífeyrissjóðum geti numið sömu upphæð og fyrri laun hjá meirihluta þeirra sem eru með framreiknaðan örorkulífeyri. Frítekjumarkið sé allt of hátt Auk þess er bent á að þó svo að þeir sem eru á hlutaörorku fái aðeins 82 prósent af fullum bótum, fái þeir í staðinn mun hærra frítekjumark, sem eru tekjur sem þeir geta verið með án skerðingar á bótum. „Frítekjumarkið er 368 þúsund. Komið hefur fram að í mörgum tilfellum geta þeir sem eru á hlutaörorku fengið mun hærri tekjur með því að fara á hlutaörorku í stað þess að fara aftur í fullt starf eftir veikindi.“ Þá bendir læknafélagið á að nýja frumvarpið gæti leitt til þess að bætur almannatrygginga hækki á vissum tímabilum meira en nemur almennum launahækkunum. „Gögn benda til þess að þessar breytingarnar geti leitt til þess að ráðstöfunartekjur einstaklings á örorku, ekki síst hlutaörorku og þeirra sem eru með örorkutryggingu í lífeyrissjóði með framreikningi, verði sambærilegar eða jafnvel hærri en tekjur einstaklings í fullri vinnu. Tenging bóta við launavísitölu ýtir enn undir þá hættu.“ Rannsóknir sýni að þeir sem nái að snúa aftur til vinnu eftir veikindi búi almennt við betri heilsu og lífsgæði en þeir sem festast á örorku. „Kerfi sem gerir það fjárhagslega jafn gott eða jafnvel hagstæðara að vera utan vinnumarkaðar vinnur því gegn markmiðum heilbrigðis- og velferðarkerfisins.“ Stjórn LÍ telur að örorkulífeyriskerfið ætti að vera þannig úr garði gert að ráðstöfunartekjur aukist ávallt við aukna vinnu. Í því felist að kerfið þurfi að styðja með skýrum og markvissum hætti við endurhæfingu og endurkomu á vinnumarkað. „Geri kerfið það ekki er hætta á að fleiri einstaklingar festist varanlega utan vinnumarkaðar, með neikvæðum afleiðingum fyrir heilsu þeirra, starfshæfni og sjálfbærni velferðarkerfisins til lengri tíma“ Frétt hefur verið uppfærð svo að tekið sé fram að samkvæmt nýjustu rannsókn fór hlutfall fólks á bótum úr 6,3 í 8 prósent á árunum 2000-2024, en ekki 2020-2024 eins og fram kemur í ályktun Læknafélagsins.
Félagsmál Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Sjá meira