Hola í vegi tók fjóra bíla úr umferð á vanræktum vegkafla Agnar Már Másson skrifar 4. mars 2026 22:28 „Þetta er orðið hættulegt,“ segir vegfarandi um ástandið á Elliðavatnsvegi. Aðsend Slæm hola í Elliðavatnsvegi í Hafnarfirði tók fjóra bíla úr umferð í morgun. Búið er að gera við holuna en vegfarandi segir að viðhald á vegkaflanum sé lítið sem ekkert. Hann vonast til að bæjaryfirvöld í Hafnarfirði og Vegagerðin gyrði sig í brók.
Aron Þór Hermansson, umsjónarmaður fasteigna, segir frá því í samtali við Vísi að fjórir ökumenn, þar á meðal hann sjálfur, hafi ekið í stóra holu er þeir keyrðu Elliðavatnsveg í Hafnarfirði í morgun, nánar tiltekið nálægt leikskólanum Hlíðarenda. „Það voru fjórir bílar þarna í röð sem lentu allir í [holunni],“ segir Aron í samtali við Vísi. Atvikið hafi átt sér stað í myrkri og við lélega lýsingu, þar sem engir ljósastaurar væru á svæðinu. Og allir ökumenn virðast hafa lent í sama tjóni og Aron, hvort sem um væri að ræða Land Rover eða Volkswagen Golf. „Þetta er jafnvel sama dekkið sem skemmist, framdekkið bílstjóramegin,“ segir hann og tekur fram að hann hafi sjálfur hafa verið á um 30 til 40 km/klst hraða en að 50 km/klst hámarkshraði sé á veginum. Dráttarbílar voru kallaðir til að fjarlægja bílana og sjálfur þruft Aron að punga út 70 þúsund krónum vegna tjónsins, segir hann. Auk þess hafi felgan skemmst og Aron grunar að bíllinn sé einnig orðinn hjólaskakkur. Vanræktur vegur Eftir atvikið hafi aðeins versta holan verið fyllt, en aðrar slæmar holur í nágrenninu hafi verið skildar eftir ósnertar. „Þetta sýnir hvað er verið að vanrækja þennan veg. Þeir rétt svo fylla upp í það alversta. Þetta er orðið hættulegt. Þessi vegur er gerður fyrir fimmtíu kílómetra hraða,“ segir Aron. Fleiri holur eru víða í veginum.Aðsend Ökumaðurinn bendir á að Elliðavatnsvegur sé mikið notaður, sérstaklega af íbúum í Hafnarfirði, en að ástand hans sé skelfilegt og handónýtt. Þá bendir Aron á að bæjaryfirvöld í Garðabæ hyggist tengja nýtt hverfi í Urriðaholti við veginn og setja upp hringtorg, sem mun væntanlega auka álag á veginn. Hafnarfjarðarbær ábyrgist þennan kafla vegarins en Aron segir að Vegagerðin beri ábyrgð á restinni af veginum og að viðhaldi hafi almennt verið ábótavant. Hann hafi nú sjálfur haft samband við Garðabæ, Hafnarfjarðarbæ og Vegagerðina til að leita svara en auk þess undirbýr hann nú bótakröfu á hendur annaðhvort Hafnarfjarðarbæ eða Vegagerðinni enda hafi hann og fleiri þurft að greiða fyrir tjónið sem varð á bílunum.
Umferð Umferðaröryggi Hafnarfjörður Garðabær Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands Sjá meira