Körfubolti

„Þeir geta klárað þetta án mín“

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Orri verður á hliðarlínunni næstu mánuði en stefnir samt á að verða Íslandsmeistari.
Orri verður á hliðarlínunni næstu mánuði en stefnir samt á að verða Íslandsmeistari. vísir

Körfuboltamaðurinn Orri Gunnarsson stefnir á það að vera kominn aftur á parketið eftir tíu mánuði. Hann sleit krossband og bíður eftir því að komast í aðgerð en segir Stjörnuliðið fullfært um að verja Íslandsmeistaratitilinn án hans.

Orri var borinn meiddur af velli af æfingu íslenska landsliðsins í síðustu viku. Fljótlega komu krossbandsslit í ljós og hann leikur ekki meira með Stjörnunni í Bónus deildinni á þessu tímabili.

„Þetta var náttúrulega bara leiðinlegt, en ég hugsa jákvætt og reyni að gera það besta úr þessu. Kem sterkari til baka, þetta er langt ferli en boltinn er bara svona,“ sagði jákvæður Orri Gunnarsson í viðtali við Stefán Árna Pálsson.

„Eins og margir hafa örugglega séð á myndbandinu þá lendi ég á báðum fótum en annað hnéð gefur sig bara. Ég finn bara eitthvað klikk og hneig niður í jörðina. Ég byrjaði bara að panikka og fann alveg að þetta væri eitthvað slæmt, en hélt í vonina að þetta væri ekki neitt,“ sagði Orri um atvikið sem ollu meiðslunum.

Þig grunaði strax að þetta væru krossbandsslit?

„Já. Fólk sem hefur slitið áður hefur talað um að það fundið þetta klikk. Ég augljóslega fann það og var alveg meðvitaður um að þetta gætu verið slit.“

Byggir upp styrk meðan hann bíður

Orri lætur hins vegar ekki deigan síga og var mættur á æfingar með Stjörnuliðinu í þessari viku. Hann bíður enn eftir að bólgurnar hjaðni svo hann komist í aðgerð.

„Ég mæti og reyni að vera með liðinu. Ég er að lyfta og láta reyna á efri líkamann bara. Byrja að gera það og svo fer ég að gera einhverjar æfingar fyrir hnéð. Koma hnénu í lag fyrir aðgerð.

Orri Gunnarsson og Hilmar Smári Henningsson kampakátir eftir að hafa landað Íslandsmeistaratitlinum í Síkinu síðasta vor. Stjarnan stefnir á að verja titilinn án Orra í ár. Vísir/Hulda Margrét

Læknirinn sagði að bólgan þyrfti að fara og ég þyrfti að ná einhverjum styrk í lærvöðvann áður en ég fer í aðgerð. Læknirinn segir að þetta eigi að ganga hratt fyrir sig og ég verði kominn í aðgerð áður en ég veit af.

Fólk segir að þetta taki tólf mánuði en ég ætla að reyna að gera allt þess að vera kominn sem fyrst aftur á gólfið. Markmiðið er að snúa aftur um áramótin. Þangað til styð ég liðið og mæti á allar æfingar. Þeir geta klárað þetta án mín,“ sagði Orri.

Orri var til viðtals í Sportpakka Sýnar í gærkvöldi. Innslagið má sjá í spilaranum að ofan. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×