Þekktasta söngleikjalag allra tíma í nýjum búning Magnús Jochum Pálsson skrifar 5. mars 2026 12:25 Þórey Birgisdóttir leikur Dóróteu og syngur „Bak við regnbogabrúna“ í sýningunni og tónlistarmyndbandinu. Nýtt tónlistarmyndband við „Bak við regnbogabrúna“ í flutningi Þóreyjar Birgisdóttur í hlutverki Dóróteu er frumsýnt núna á Vísi. Lagið er íslensk útgáfa af „Somewhere Over the Rainbow“, einu þekktasta söngleikjalagi allra tíma, og var útsett fyrir uppsetningu Borgarleikhússins á Galdrakarlinum í Oz.
Söngleikurinn Galdrakarlinn í Oz var frumsýndur í Borgarleikhúsinu í byrjun árs og hefur fengið góðar viðtökur gesta og gagnrýnenda, þar á meðal fjórar stjörnur á Vísi. Þórey Birgisdóttir leikur Dóróteu í sýningunni og fara Björgvin Franz, Pétur Ernir og Hilmar Jensson með hlutverk tinkarlsins, ljónsins og fuglahræðunnar. Bragi Valdimar Skúlason gerði nýja þýðingu á laginu og Agnar Már Magnússon, tónlistarstjóri sýningarinnar, sá um útsetninguna. Agnar horfði þar til tónlistarinnar úr bíómyndinni sem kom út árið 1939, þar sem Judy Garland fór með aðalhlutverkið og því má segja að nostalgía og nýjabrum mætist í laginu. Þórey syngur og leikur í tónlistarmyndbandinu og með henni til halds og trausts eru dansararnir Marinó Máni Mabazza í hlutverki Tótó og Fanný Lísa Hevesi.
Borgarleikhúsið Leikhús Menning Tengdar fréttir Fegurðardýrkun í Oz-landi Nýjasta sýning Borgarleikhússins er barnaleikritið Galdrakarlinn í Oz eftir L. Frank Baum. Þetta er stór sýning með fjölda leikara. Ungir krakkar fá tækifæri til að sýna listir sínar í leik, söng og dansi og eldri leikarar, reynsluboltar í faginu, virðast skemmta sér vel í þessu klassíska verki sem hefur ýmsar tengingar við samtímann. Þetta er ekki uppsetning sem reynir að ögra heldur er skemmtunin í forgrunni og ekki teknir neinir sjensar. 3. febrúar 2026 07:02 Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið Arnór Sig kominn á fast Lífið Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Fleiri fréttir „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira
Fegurðardýrkun í Oz-landi Nýjasta sýning Borgarleikhússins er barnaleikritið Galdrakarlinn í Oz eftir L. Frank Baum. Þetta er stór sýning með fjölda leikara. Ungir krakkar fá tækifæri til að sýna listir sínar í leik, söng og dansi og eldri leikarar, reynsluboltar í faginu, virðast skemmta sér vel í þessu klassíska verki sem hefur ýmsar tengingar við samtímann. Þetta er ekki uppsetning sem reynir að ögra heldur er skemmtunin í forgrunni og ekki teknir neinir sjensar. 3. febrúar 2026 07:02