Lífeyrir og launavísitala: Hvað gengur Læknafélagi Íslands til? Anna Sigrún Ingimarsdóttir skrifar 5. mars 2026 21:03 Ég er ein þeirra sem fagna því að bætur almannatrygginga verði tengdar við launavísitölu. Eins og við mátti búast eru mörg á öndverðum meiði um mikilvægi þessa máls og virðist sú sýn byggjast á þeirri hugmynd að um bruðl sé að ræða úr ríkissjóði. Það er ekkert nýtt undir sólinni hér; við öryrkjar höfum löngum verið látnir mæta afgangi þar sem mannvirðing okkar og gildi hefur mátt lúta í lægri hlut fyrir sparnaðaraðgerðum yfirvalda. Við erum vön því að bíða eftir að „okkar tími muni koma.“ Að vera öryrki er enginn dans á rósum. Við tökumst á við flóknar áskoranir sem fylgja líkama okkar og tilveru. Það er stórt verkefni og oft þungt í vöfum; við upplifum góða daga og slæma daga og allt þar á milli. Eitt er víst: við gerum öll okkar besta í þeim aðstæðum sem okkur eru skapaðar. Tókuð þið eftir orðalaginu sem ég notaði hér þar sem ég nefndi aðstæður? Þannig er mál með vexti að aðstæður fatlaðs fólks skipta máli og það nær langt út fyrir ramma þess sem kann að vera skilgreint sem persónulegur heilsufarsvandi okkar. Við búum í samfélagi sem er fötluðu og langveiku fólki oft fjandsamlegt. Þessum flóknu áskorunum hefur verið lýst með hugtakinu ableisma – sem um má líka má nota íslenska orðið hæfishyggju. Þetta hugtak er notað til að lýsa samfélagsgerð sem einkennist af mismunun og fordómum gegn fötluðu fólki. Kannski má segja að augljósasta mynd ableismans birtist í skertu aðgengi að hinu byggða og manngerða umhverfi þar sem fatlað fólk getur ekki farið frjálst ferða sinna, til dæmis ef byggingar eru þröngar og engar lyftur. Það sem þó er öllu flóknara við ableismann er hvernig hann getur virst ósýnilegur þeim sem þekkja ekki til hans. Þetta á sérstaklega við um staðalmyndir um fatlað fólk. Okkur eru gjarnan ætlaðir ákveðnir eiginleikar, til dæmis að við séum frekjur, tilætlunarsöm, framtakslítil og löt. Þessar staðalmyndir hafa leitt af sér orðræðu sem einkennist af þeim skilningi að við séum fjárhagslegur baggi á samfélaginu og viljum ekkert frekar en komast á spena ríkisins. Mér finnst það einkar eftirtektarvert hversu mörgum er umhugað um hvata til vinnu og að tengingar bóta við launavísitölu komi til með að draga úr hvata til vinnu. Þetta góða fólk, til að mynda þau sem koma fram fyrir skjöldu Læknafélags Íslands, gefa síðan í skyn að þau skrifi með hagsmuni lífeyrisþega að leiðarljósi. Röksemdafærsla í þessum anda, þar sem haldið er fram vafasömum málatilbúnaði undir yfirskininu „þetta er ykkur fyrir bestu“, er ekki ný af nálinni. Margs konar ofbeldi gegn fötluðu fólki í gegnum tíðina er byggt á svipuðum grunni, þar sem fagstéttir í skjóli valda sinna hafa réttlætt valdbeitingu og illa meðferð. Það má færa rök fyrir því að læknar og læknisvísindin hafi tekið yfir þá stöðu sem trúarbrögðin höfðu hér á árum áður. Á lækna er hlustað og þeir eru virtir. Slíku valdi fylgir mikil ábyrgð. Hér er í besta falli um ómeðvitaða forréttindafirringu og kannski sjálfhverfni að ræða. Ég vil benda á að við öryrkjar erum manneskjur. Þessi umræða særir og fyrir sum okkar er það lífsspursmál að tekjur okkar aukist. Rannsóknir hafa sýnt fram á að það kostar meira að vera veikur, þrátt fyrir ívilnanir sem við fáum á þjónustu og lyfjum. Öryrkjar og lífeyrisþegar eru meðal þeirra fátækustu í landinu; við berjumst í bökkum. Hvers vegna megum við ekki lifa mannsæmandi lífi; hvað gengur ykkur sem eruð mótfallin nýju kerfi tengingar við launavísitölu til? Ég mæli með því að öllu fólki, sem er svo umhugað um velferð ríkissjóðs og hvata okkar fatlaðs fólks til vinnu, að það láti að sér kveða og beini spjótunum að vinnumarkaðnum sjálfum, nú eða skólakerfinu. Tvö bákn sem þurfa að gera miklu betur til að tryggja aðgengi fatlaðs og langveiks fólks — á öllum aldri. Þar er verk að vinna og við yrðum þakklát fyrir stuðninginn. Ég treysti því að þetta góða og skynsama fólk ráðist næst að rótum vandans og beiti sér fyrir því sem raunverulega getur dregið úr örorku og aukið virkni. Það mun kosta öllu meira að gera það ekki. Anna Sigrún er doktor í fötlunarfræði, félagsráðgjafi og meðlimur í Tabú feminískri hreyfingu fatlaðra kvenna og kvára. Höfundur er doktor í fötlunarfræði, félagsráðgjafi og meðlimur í Tabú feminískri hreyfingu fatlaðra kvenna og kvára. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Lífeyrissjóðir Tenging almannatrygginga við launavísitölu Mest lesið Getum við hætt orðaleikjum um einhverfa og farið að gera eitthvað? Ásdís Bergþórsdóttir Skoðun Opið bréf til Læknafélags Íslands Alma Ýr Ingólfsdóttir Skoðun Er barnið mitt einskis virði? Rakel Sófusdóttir Skoðun Stæðiskort fyrir hreyfihamlaða – þegar góð hugmynd missir marks Arnar Helgi Lárusson Skoðun Fjórtán góð ráð gegn krabbameinum Sigurdís Haraldsdóttir,Sigríður Gunnarsdóttir Skoðun Ábending til þjóðaröryggisráðs og ríkisstjórnarinnar Haukur Arnþórsson Skoðun Athygliskortur ekki vandamál Arnar Halldórsson Skoðun Hún er eldflaug, hún er rúta, hún er kafbátur… Sindri Freysson Skoðun Örorka er ekki hvati – hún er afleiðing alvarlegra veikinda Helga Edwardsdóttir ,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir Skoðun Lífeyrir og launavísitala: Hvað gengur Læknafélagi Íslands til? Anna Sigrún Ingimarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Viljum við ekki öruggt vatn? Kjartan Kjartansson skrifar Skoðun Innviðaskuldin – á almenningur að borga hana tvisvar? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hún er eldflaug, hún er rúta, hún er kafbátur… Sindri Freysson skrifar Skoðun Næsti kjarasamningur verður að vera VR samningur Gabríel Benjamin skrifar Skoðun Getum við öryrkjar siglt þjóðarskútinni í strand? Þorbjörn V. Jóhannsson skrifar Skoðun Eina leiðin er að ganga til viðræðna við ESB - stéttarfélög geta ekki staðið hjá Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Opið bréf til Læknafélags Íslands Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Enginn stendur ofar lögum – heldur ekki trúfélög Anna Margrét Kaldalóns,Eydís Mary Jónsdóttir,Lilja Torfadóttir,Petra Hólmgrímsdóttir,Rut Ríkey Tryggvadóttir skrifar Skoðun Athygliskortur ekki vandamál Arnar Halldórsson skrifar Skoðun Er barnið mitt einskis virði? Rakel Sófusdóttir skrifar Skoðun Betra starfsumhverfi á kostnað foreldra? Örn Arnarson skrifar Skoðun Varhugaverðar hugmyndir ráðherra um breytingar á raforkulögum Friðrik Már Sigurðsson skrifar Skoðun Ýta birtingar á niðurstöðum samræmdra prófa undir stéttaskiptingu? Guðrún Elísa Sævarsdóttir skrifar Skoðun Getum við hætt orðaleikjum um einhverfa og farið að gera eitthvað? Ásdís Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Stæðiskort fyrir hreyfihamlaða – þegar góð hugmynd missir marks Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Hvenær verður ágreiningur að hatursorðræðu? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Raunhæf skref inn í sterkari framtíð Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvernig getur íþróttaþjálfari breytt lífi barns með málþroskaröskun (DLD)? Álfhildur Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Endursamningar lykillinn að stórbættum fjárhag Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Seltjarnarnes getur orðið framúrskarandi bæjarfélag! Áslaug Eva Björnsdóttir skrifar Skoðun Ábending til þjóðaröryggisráðs og ríkisstjórnarinnar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Trú trompar ekki lög Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrir og launavísitala: Hvað gengur Læknafélagi Íslands til? Anna Sigrún Ingimarsdóttir skrifar Skoðun Örorka er ekki hvati – hún er afleiðing alvarlegra veikinda Helga Edwardsdóttir ,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Soroptimistar taka þátt í Alþjóðlegum baráttudegi kvenna – því það skiptir máli Katrín Káradóttir skrifar Skoðun Einhverfum er víst neitað um þjónustu á grundvelli greininga Grímur Atlason skrifar Skoðun Vegið að Kvenréttindafélagi Íslands og kvenréttindabarátta kölluð árás á fjölskylduna Svandís Svavarsdóttir skrifar Skoðun Snillingarnir, samfélagið og meðalmennskan Sigríður Ævarsdóttir skrifar Skoðun Skref afturábak Helgi Tómasson skrifar Skoðun Enginn misskilningur: Fordómar í sparifötum guðfræðinnar Jónas Sen skrifar Sjá meira
Örorka er ekki hvati – hún er afleiðing alvarlegra veikinda Helga Edwardsdóttir ,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir Skoðun
Skoðun Eina leiðin er að ganga til viðræðna við ESB - stéttarfélög geta ekki staðið hjá Sveinn Ólafsson skrifar
Skoðun Enginn stendur ofar lögum – heldur ekki trúfélög Anna Margrét Kaldalóns,Eydís Mary Jónsdóttir,Lilja Torfadóttir,Petra Hólmgrímsdóttir,Rut Ríkey Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Varhugaverðar hugmyndir ráðherra um breytingar á raforkulögum Friðrik Már Sigurðsson skrifar
Skoðun Ýta birtingar á niðurstöðum samræmdra prófa undir stéttaskiptingu? Guðrún Elísa Sævarsdóttir skrifar
Skoðun Getum við hætt orðaleikjum um einhverfa og farið að gera eitthvað? Ásdís Bergþórsdóttir skrifar
Skoðun Stæðiskort fyrir hreyfihamlaða – þegar góð hugmynd missir marks Arnar Helgi Lárusson skrifar
Skoðun Hvernig getur íþróttaþjálfari breytt lífi barns með málþroskaröskun (DLD)? Álfhildur Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Lífeyrir og launavísitala: Hvað gengur Læknafélagi Íslands til? Anna Sigrún Ingimarsdóttir skrifar
Skoðun Örorka er ekki hvati – hún er afleiðing alvarlegra veikinda Helga Edwardsdóttir ,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar
Skoðun Soroptimistar taka þátt í Alþjóðlegum baráttudegi kvenna – því það skiptir máli Katrín Káradóttir skrifar
Skoðun Vegið að Kvenréttindafélagi Íslands og kvenréttindabarátta kölluð árás á fjölskylduna Svandís Svavarsdóttir skrifar
Örorka er ekki hvati – hún er afleiðing alvarlegra veikinda Helga Edwardsdóttir ,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir Skoðun