Uppgjör:Ármann - Njarðvík 87-104 | Sýning hr. Lautier-Ogunleye Árni Jóhannsson skrifar 6. mars 2026 20:55 Frá leik Ármanns fyrr á tímabilinu Dwayne Lautier-Ogunleye fór fyrir sínum mönnum í Njarðvík þegar þeir sóttu sigur í Laugardalshöllina gegn Ármanni. Kappinn skoraði 50 stig í 87-104 sigri sem skiptir Njarðvíkinga miklu máli. Leikurinn hófst vel hjá báðum liðum en það var lítið um varnir. Þriggja stiga skotin báðum megin voru frí og það var auðvelt, allavega fyrir gestina, að komast inn í vítateiginn og skora. Það gerði það að verkum að mikið var skorað en hvorugu liði tókst að ná frumkvæði. Staðan var hnífjöfn eftir fyrsta leikhlutann í stöðunni 26-26. Leikurinn hélt áfram í jafnvægi með sömu gildum og höfðu verið í fyrsta leikhluta. Ármann komst yfir en misstu það niður aftur en hleyptu Njarðvíkingum ekki of langt frá sér um sinn. Staðan var 46-48 þegar minna en tvær mínútur voru eftir af fyrri hálfleik en þá spóluðu Njarðvíkingar upp sjö stigum í röð og leiddu þegar haldið var til búningsherbergja. Staðan 46-55 og Dwayne Lautier-Ogunleye var kominn með 24 stig. Ármann byrjaði þriðja leikhlutann af fítons krafti. Þeir skoruðu fyrstu níu stigin í seinni hálfleik og jöfnuðu metin í 55-55. Aftur var leikurinn orðinn jafn og stefndi í hörkuleik. Njarðvíkingar vöknuðu af værum blundi og náðu aftur frumkvæðinu, mest fyrir tilstilli Dwayne Lautier-Ogunleye, og komust yfir 10 stigum loksins þegar tvær mínútur voru eftir af þriðja leikhluta. Þeir náð einnig loksins að hamra járnið meðan það var heitt og komsut mest 17 stigum yfir sem var togaður niður í 14 stig þegar þriðja leikluta lauk í stöðunni 63-77. Aftur voru Ármenningar sterkari í byrjun leikhlutans og gáfu þessu séns. Mest náðu þeir muninum niður í fjögur stig í stöðuna 78-82 en þá var eins og bensínið værið búið því Dwayne Lautier-Ogunleye kom aftur inn af bekknum ferskur og kláraði leikinn fyrir sína menn. Njarðvík náði að sigla sigrinum í höfn og fögnuðu vel og innilega. Sigurinn þýðir að líkurnar á falli eru nánast úr sögunni þar sem Njarðvík er með sex stiga forystu á liðin í fallsætinu og eiga þeir innbyrðis viðureignir liðanna. Það er því hægt að anda rólega og gera tilraun til að komast í úrslitakeppnina. Atvik leiksins Þegar Dwayne Lautier-Ogunleye skoraði 50. stigið sitt var mikið og gott atvik. Hann gerði með því út um leikinn. Stjörnur og skúrkar Dwayne Lautier-Ogunleye er stjarna leiksins. 50 stig og sex stoðsendingar segja hellingssögu og Ármann réð ekkert við hann. Veigar Páll Alexandersson skoraði 19 sem komu öll í fyrri hálfleik. Aðrir lögðu meira á vogarskálarnar í seinni hálfleik. Daniel Love skoraði mest fyrir Ármann eða 25 stig. Ármann fékk framlag úr mörgum áttum en það dugði ekki til. Umgjörð og stemmning Það var ágætis mæting held ég. Fín stemmning og bæði sett stuðningsmanna lét vel í sér heyra. Dómararnir Þeir sluppu ágætlega frá þessu verkefni en það verður samt að hafa orð á því að það er of oft ekki dæmt á klárar villur. Til dæmis þar sem slátturinn heyrist langar leiðir. Það gengur ekki og er ekki til að halda stjórn á leiknum. Svo var atvik undir lok leiksins í stöðunni 80-92 sem var ekki til að hjálpa okkar mönnum. Hægt er að lesa um það í textalýsingunni. Viðtöl: Steinar: Við bara réðum ekki við Lautier „Við erum inn í leiknum í fyrri hálfleik og vel inn í seinni hálfleik en við bara réðum ekki við Lautier“, sagði Steinar Kaldal þjálfari Ármanns þegar hann var beðinn um mat á leiknum. „Þó að við höfum verið inn í leiknum þá fannst mér við ekki til staðar varnarlega. Við vorum hægir í því sem við vorum að gera og ekki sterkir í hjálparvörninni. Mér fannst færslurnar ekki góðar. Njarðvík er ekki með hærra lið en við en eru að vinna okkur í frákastabaráttunni örugglega. “ „Þetta er svekkjandi en Njarðvík var bara betra en við í þessum leik og sérstaklega einn maður sem við áttum fá svör við. Við prófuðum ýmis varnarafbrigði á hann og ýmsa leikmenn en þeir leystu það en við leystum ekki okkar vörn gegn því.“ Það hlýtur líka að vera svekkjandi að tapa í ljósi þess að Njarðvík fjarlægjist Ármann og að liðin í kringum þá töpuðu í kvöld. „Að sjálfsögðu. Við vorum að koma hingað í bikarleik, við þurfum að vinna en við töpuðum. Hin liðin tapa þannig að þetta eru þrír bikarleikir í viðbót fyrir okkur. Það er drullufúlt að tapa í kvöld á heimavelli í leik sem við hefðum unnið ef við hefðum mætt af krafti. Við gerðum það bara alls ekki varnarlega. Því fór sem fór.“ Er það þá helst varnarleikurinn sem þarf að laga fyrir næsta leik. „Við höfum sýnt að við getum spilað vörn í mörgum leikjum. Í mörgum leikjum líka að við erum ekki að spila vörn. Þegar við hins vegar spilum saman og erum að leggja okkur fram þá og sýnum ástríðu og hreyfingu þá erum við gott varnarlið. Það má ekki gerast bara einstaka sinnum ef við ætlum að eiga einhvern séns.“ Brandon Averette sneri til baka á völlinn í kvöld. Mun hann geta beitt sér af fullum krafti í næstu leikjum? „Já það held ég. Hann náði tveimur æfingum með okkur en hann þarf að komast í leikform. Hann mun klárlega hjálpa okkur.“ Rúnar: Við getum mótiverað okkur upp í spennu frekar en ótta Það var þungu fargi létt af Rúnari Inga Erlingssyni þegar hann mætti í viðtal eftir sigur sinna manna á Ármanni. „Þessi var risastór. Það er örugglega 100 kílóum létt af mér eftir þennan sigur. Við erum búnir að tala um það eftir tapið á móti KR að þetta væri stærsti leikur tímabilsins strax eftir landsleikjahlé í Laugardalshöllinni. Fyrir utan kannski leik fimm gegn Haukum um árið með kvennaliðinu þá er þetta kannski stærsti leikurinn á þjálfaraferlinum hjá mér. Það er bara gott að hafa ekki möguleikann á falli farandi inn í lokaleikina gegn góðum körfubolta liðum. Við stigum frekar skref í hina áttina og erum í áttunda sætinu núna og horfum bjartari augum á að vinna okkur sæti í úrslitakeppninni.“ Njarðvíkingar fengu frábært framlag frá Dwayne Lautier-Ogunleye sem skoraði 50 stig. Var hann munurinn á liðunum í kvöld? „Ég lét hann fara í frí. Hann þurfit á því að halda andlega og líkamlega. Hann fór til Egyptalands þannig að það er spurning hvort fleiri vilja prófa það. Hann lofaði mér að hann myndi svara með þessari frammistöðu sem hann og gerði. Það var líka áætlun í gangi. Það er enginn í Ármanni sem ræður við hans líkamsburði og við vorum duglegir að mata hann. Mér er sama þó einhver skori 80 stig ef það virkar og hinir geta ekki stoppað þá höldum við áfram. Hann nýtti sér líkamsburði sína mjög vel og dró vagninn sóknarlega.“ Heldur Rúnar að það hafi góð áhrif á liðið hans að þeir geti andað rólegra og kannski notið þess að spila körfubolta í næstu leikjum? „Jú núna kannsk teiknum við upp dæmið öðruvísi. Við getum mótiverað okkur upp í spennu frekar en ótta. Ég held að ég verði líka betri þjálfari. Ég held að ég hafi ekki sofið nema klukkutíma í nótt. Þessi leikur var bara eins og alvöru leikur í úrslitakeppni fyrir mér. Við þurftum að vinna og ég er ekkert eðlilega ánægður með mína drengi að þeir hafi komið með frammistöðu og baráttu inn á völlinn sem skilaði sigrinum.“ Bónus-deild karla Ármann UMF Njarðvík Körfubolti
Uppgjörið: Stjarnan - Þór Þ. 127-68 | Vel gíraðir Stjörnumenn völtuðu yfir vankaða Þórsara Körfubolti
Uppgjörið: Stjarnan - Þór Þ. 127-68 | Vel gíraðir Stjörnumenn völtuðu yfir vankaða Þórsara Körfubolti