Er barnið mitt einskis virði? Rakel Sófusdóttir skrifar 6. mars 2026 14:01 Þegar ég eignaðist mitt fyrsta barn fyrir rúmum 22 árum, vissi ég ekki að það væri upphafið af áratuga langri baráttu minni við skólakerfið, heilbrigðiskerfið og velferðarkerfið. Eins og staðan er í dag sé ég ekki fram á að þeirri baráttu muni nokkurn tíman ljúka meðan ég lifi. Eins og allir nýbakaðir foreldrar var ég spennt fyrir því að fylgjast með barninu mínu vaxa og dafna og síðar verða að fullorðnum sjálfstæðum einstakling. Þá vissi ég ekki að andleg og líkamleg heilsa sonar míns og staða hans í lífinu mundi smám saman versna með hverju árinu, þar til hann yrði nær alveg rúmliggjandi eins og hann er í dag. Fólk á hans aldri eru flest í vinnu eða háskóla, hitta vini, keyra um og sum farin að búa sjálfstætt og jafnvel stofna fjölskyldu. Sonur minn hins vegar er svo veikur að hann hefur ekki farið út úr húsi síðan á Aðfangadag. Hann hefur ekki hitt vin síðan síðastliðið sumar. Hann treystir sér ekki til að taka bílpróf, hann mun líklega aldrei búa sjálfstætt án stuðnings og mun aldrei vinna fulla vinnu, þrátt fyrir að vera klár, skemmtilegur og með marga hæfileika. Sonur minn er nefnilega einhverfur án greindarskerðingar og er nú orðinn langveikur. Hann tilheyrir ákkúrat þeim hópi fólks sem fellur algerlega á milli í kerfinu og þá sérstaklega eftir að þau ná 18 ára aldri. Það er sá hópur fólks sem kerfið segir okkur ítrekað að sé einskis virði. Nánast enga aðstoð er að fá fyrir þau, hvorki frá heilbrigðiskerfinu né velferðarkerfinu. Þeim er hafnað af geðheilsuteymum, Þau eru látin gleymast heima hjá sér, þar sem þau einangrast og verða sífellt veikari. Kerfið minnir þau ítrekað á að þau eru ekki þess virði að eyða púðri í. En þau eru ekki einskis virði. Lífsgæði og heilsa sonar míns er honum og okkur ástvinum hans mikils virði. Með réttri aðstoð og aðhaldi gæti hann átt gott og innihaldsríkt líf og jafnvel nýtt sína fjölmörgu hæfileika til að skapa sér atvinnu að einhverju leiti. Heilbrigðiskerfið og velferðarkerfið vill þó ekki veita honum þá aðstoð.Það sem sonur minn þarf er að ná tökum á líkamlegri heilsu með fagaðstoð þar sem sýndur væri skilningur og þekking á einhverfu. Það fær hann ekki. Hann þarf aðgang að geðlækni, greiningu, meðferð og eftirfylgni með lyfjagjöf. Það fær hann ekki, því umsóknum hans til Geðheilsuteymis heilsugæslunnar og Geðheilsuteymis taugaþroskaraskanna var hafnað. Hann þarf aðstoð frá félagsþjónustunni heim til sín, því hann kemst ekki út úr húsi. Þá aðstoð hefur félagsþjónustan í Hafnarfirði ekki viljað veita honum. Einnig er honum neitað um SIS mat, sem metur þjónustuþörf hans. Hann þarf búsetuúrræði, þar sem hann fengi bæði félagsskap og þjálfun til sjálfstæðrar búsetu. Það búsetuúrræði er ekki til fyrir einhverfa án greindarskerðingar. Þegar þetta er allt komið og hann farinn að ná heilsu og jafnvægi í lífinu, þá fyrst er hægt að huga að því hvort hann gæti unnið hlutastarf með stuðningi. Markmiðið með hans endurhæfingu þarf að vera betri lífsgæði, heilsa, félagsleg virkni og þjálfun til sjálfstæðs lífs. Eru það ekki mannréttindi að fá að búa við þau lífsgæði sem við flest teljum sem sjálfsagðan hlut? Endurhæfing með atvinnu að markmiði er algerlega óraunhæf fyrir hann eins og staðan er í dag.Á sama tíma og sonur minn liggur veikur heima og skortir alla þessa þjónustu, þá er ég sjálf í endurhæfingu hjá Virk, enda þolir líkami illa tvo áratugi af stanslausu álagi og áhyggjum. Reyndar þoldi hann aðeins örfá ár áður en hann fór að gefa undan, eins og svo oft gerist hjá foreldrum fatlaðra barna. Ég er mjög þakklát fyrir að hafa aðgang að Virk, enda þrái ég að ná heilsu og snúa aftur til vinnu. Ég velti þó oft fyrir mér hvort það sé vænlegt til árangurs að endurhæfa mig meðan sonur minn fær enga aðstoð. Allar áhyggjurnar og álagið sem komu mér á þennan stað eru enn til staðar. Er það vænlegt til árangurs að endurhæfa fótbrotinn mann meðan höggin dynja enn á fætinum? Fjölmargir foreldrar ungmenna í sömu stöðu og sonur minn eru í endurhæfingu eða orðnir öryrkjar eftir langvarandi álag. Með því að veita börnunum okkar ekki þjónustu myndast tvennutilboð fyrir heilbrigðis- og velferðarkerfið: veik og vanvirk ungmenni og örmagna foreldrar. Betra væri að fókusinn væri á að veita börnunum okkar þá þjónustu sem þau þurfa og þannig auka líkurnar á að við foreldrarnir höldum bæði heilsu og atvinnu. Hver ætlar annars að hugsa um börnin okkar þegar við deyjum, ef þau geta ekki hugsað um sig sjálf? Höfundur er móðir ungmennis á einhverfurófi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir Skoðun Reikningsdæmi handa Ögmundi Arnar Sigurðsson Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Komið með skólabörnin í heimsókn á gamla leikskólann Elína Hallgrímsdóttir Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen Skoðun Skoðun Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Reikningsdæmi handa Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skrifar Skoðun „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Komið með skólabörnin í heimsókn á gamla leikskólann Elína Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Að tala tungum tveim Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hver á íslenska fánann? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Huh eða ro? Freyja Rut Emilsdóttir skrifar Skoðun Vaðlaheiðargöng: greiðsluvilji er allt sem þarf Hilmar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir skrifar Skoðun Verum JÁ-kvæð í ágúst Kristján Kristinsson skrifar Skoðun Nágranninn Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir skrifar Skoðun Er ESB að grafa undan eigin hagsmunum? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landhelgisgæslan til taks - í heila öld Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þegar ,,ríkið” yfirgaf byggðina Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Húsnæðispakkinn Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Varðskipið Þór: Frá samtakamætti til upphafs Landhelgisgæslu Íslands Íris Róbertsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar
Skoðun Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir skrifar
Skoðun Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Varðskipið Þór: Frá samtakamætti til upphafs Landhelgisgæslu Íslands Íris Róbertsdóttir skrifar