Í fyrsta sinn á Íslandi: Kolbeinn mætir austurrískum rotara í Gamla bíó Aron Guðmundsson skrifar 7. mars 2026 08:01 Kolbeinn Kristinsson er enn ósigraður á sínum atvinnumannaferli í hnefaleikum og ætlar að berjast hér heima í apríl. Visir/Bjarni Fyrsta atvinnumannakvöldið í hnefaleikum verður haldið hér á landi í apríl næstkomandi. Þar mun okkar fremsti kappi í íþróttinni, Kolbeinn Kristinsson stíga inn í hringinn. Atvinnumannahnefaleikar eru bannaðir hér á landi samkvæmt lögum sem Kolbeinn segir barn síns tíma. Nú á að kýla á þetta í orðsins fyllstu merkingu og stíga inn í hringinn í Gamla bíó
Þið getið rétt ímyndað ykkur hversu sérstakt það verður fyrir Kolbein og aðra íslenska keppendur að labba inn í salinn í Gamla Bíó og stíga inn í hnefaleikahringinn á fyrsta atvinnumannakvöldinu í íþróttinni í sögu lands og þjóðar. Fyrir tæpum hundrað árum fór fyrsta hnefaleikamótið hér á landi fram í Gamla Bíói. Einhverjir hafa staðið í þeirri meiningu að atvinnuhnefaleikar séu ólöglegir hér á landi en Kolbeinn segir lögin úrelt. „Lögin eru bara barn síns tíma. Úrelt. Þau eiga í rauninni ekkert við það sem við erum að fara gera,“ segir Kolbeinn í samtali við íþróttadeild Sýnar. Eftirbátar annarra landa Áhugamannahnefaleikar hafa verið heimilaðir hér á landi frá árinu 2002 en áður höfðu hvers kyns hnefaleikar verið bannaðir með öllu frá árinu 1956. Á yfirstandandi þingi liggur fyrir frumvarp frá stjórnarandstöðu sem myndi fella úr gildi lögin frá 1956, og setja ramma um bardagaíþróttir almennt, en það hefur enn ekki náð í gegn. „Auðvitað er þetta bara síðasta vestræna ríkið þar sem ekki er keppt í atvinnumanna hnefaleikum. Það er bara skrýtið og engin ástæða fyrir því að við eigum ekki að vera berjast hérna. Sérstaklega þegar ég er kominn á þann stað sem ég er kominn. Ég er á meðal topp sextíu bestu í heiminum. Kominn á þennan stað. Af hverju ekki að vera með heimavöll þar sem við getum fengið stærri bardaga, titla og gert allt rosalegt.“ Kolbeinn Kristinsson er í 68.sæti á styrkleikalista þungavigtarkappa á heimsvísu og hefur enn ekki bragðað á ósigri á sínum atvinnumannaferli. Mynd: Kristinn Gauti Ætlar að rota rotarann Kolbeinn er enn ósigraður á sínum atvinnumannaferli. Nítján sigrar í nítján bardögum og í Gamla Bíói mætir hann Austurríkismanninum Sasa Milenkovic í tólf lotu bardaga. Sá hefur aðeins tapað einum af þrettán bardögum sínum til þessa. Tólf þeirra hefur hann unnið, þar af ellefu með rothöggi. „Hann er bara grjótharður. Slær fast og er kominn til að vinna. Við að sigra mig sér hann fram á að tækifæri opnist fyrir sig út í heimi. Stærri bardagar. Maður má ekki taka því rólega.“ Auk Kolbeins berjast fleiri atvinnumenn okkar Íslendinga á kvöldinu. Þeirra á meðal eru Valgerður Guðsteinsdóttir og Emin Kadri. Emin Kadri og Valgerður Guðsteinsdóttir Vísir/Samsett Kolbeinn er í toppformi og klár í að sýna hvað í sér býr á heimavelli. „Maður er bara fullur sjálfstrausts. Ég er búinn að sjá það fyrir mér að ég sé að fara rota hann hérna fyrir framan alla og húsið tryllist. Ég er búinn að sjá það fyrir mér þúsund sinnum. Maður er búinn að fara um allan heiminn, verða betri í sínu fagi. Svo kemur maður heim og sýnir öllum hversu góður maður er orðinn. Þetta er smá útskriftarveisla.“
Box Mest lesið Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Íslenski boltinn Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Handbolti „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Fótbolti „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover UFC tapaði 3,7 milljörðum á bardagakvöldinu í Hvíta húsinu Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Mögnuð tilþrif Íslendingsins unga vekja athygli Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið Viktor Gísli framlengir við Barcelona FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Metfjöldi nýrra þjálfara Viðurkennir að VAR hafi misst af því þegar leikmaður Brann sýndi puttann Gunnar Vatnhamar sagður á förum frá Víkingi Sjá meira