Nýtum styrkleika okkar á öld raforkunnar Tinna Traustadóttir skrifar 8. mars 2026 08:01 Óvissa í heimsmálunum er meiri í dag en oft áður. Umgjörð alþjóðaviðskipta hefur breyst hratt og áherslur ríkja færst í átt að verndarstefnu, tollum og niðurgreiðslum til að styrkja eigin samkeppnishæfni. Fyrir útflutningsdrifið hagkerfi eins og hið íslenska er þessi þróun krefjandi, því við reiðum okkur á opið aðgengi að mörkuðum og sanngjarna samkeppni. Ýmsar stuðningsaðgerðir erlendis geta verið ósanngjarnar gagnvart lítilli þjóð, en Ísland hvorki getur né þarf að fara þá leið að niðurgreiða starfsemi stórnotenda. Okkar styrkur verður að liggja annars staðar. Í mörgum Evrópuríkjum hefur iðnaður dregist mjög saman, sem birtist hvað skýrast í Þýskalandi þar sem framleiðsla orkusækins iðnaðar hefur dregist saman um 18% frá árinu 2021. Orsökin er meðal annars hátt og sveiflukennt orkuverð og skortur á fyrirsjáanleika. Evrópa leitar nú lausna og horfir meðal annars til langtímasamninga um raforku – leið sem við Íslendingar þekkjum vel og hefur veitt bæði iðnaði og orkufyrirtækjum nauðsynlegan stöðugleika. Iðnaður á Íslandi og í Noregi stendur að mörgu leyti sterkar en víða annars staðar. Hér hafa stórnotendur nýtt langtímasamninga til að vaxa og hafa lagt áherslu á verðmætari framleiðslu. Góður mælikvarði á samkeppnishæfni er einmitt staða iðnaðar – hann stendur sterkur þegar orkufyrirtæki og iðnaður ná að vaxa hönd í hönd. Þættir sem við stjórnum sjálf Til að tryggja samkeppnishæfni Íslands verðum við að einblína á þá þætti sem við stjórnum sjálf. Í fyrsta lagi verðum við að nýta hagkvæma virkjanakosti sem standast alþjóðlegan samanburð. Í öðru lagi verðum við að koma á fót skýru og skilvirku leyfisveitingaferli svo tímalínur standist, án þess að gefinn sé afsláttur af kröfum. Í þriðja lagi er grundvallaratriði að flutningskostnaður raforku sé samkeppnishæfur á alþjóðavísu. Auk þessa spila laun, skattar, fjarlægð frá mörkuðum og aðgengi að vinnuafli lykilhlutverk. Samkeppnishæfnin er summan af öllum þessum þáttum. Það er misskilningur að eftirspurn eftir raforku á Íslandi sé óendanleg; ef við bjóðum ekki samkeppnishæft umhverfi, þá fer eftirspurnin og fjárfestingin annað. Það er þó mikilvægt að halda því til haga að það er ekki jafngilt að vera samkeppnishæf og ódýrust. Til eru svæði í heiminum þar sem stórnotendum hefur staðið til boða lægra raforkuverð en hjá Landsvirkjun. Við kippum okkur ekki upp við það enda er það ekki okkar keppikefli að vera ódýrasti raforkusali til stórnotenda. Staðreyndin er samt sú að við höfum boðið viðskiptavinum okkar samkeppnishæft raforkuverð og viljum geta gert það áfram. Ný tækifæri á sterkum grunni Um 75% af raforku Landsvirkjunar fer til málmbræðslna með langtímasamningum. Þessi starfsemi mun áfram nýta lungann af orkuvinnslunni og myndar traustan grunn. Til samanburðar fara um 3% raforkunnar til gagnavera, en áhugi á þeim iðnaði hefur vaxið hratt. Norðurlöndin hafa komið sér rækilega á kortið í þessari tæknibyltingu og Ísland á þar mikil tækifæri inni. Gagnaverin sem eru í viðskiptum við okkur – atNorth, Verne og Borealis – eiga það sammerkt að hafa hafið starfsemi sína hér á landi. Í kjölfarið komu þau gagnaverum í rekstur í löndunum í kringum okkur. Það er hins vegar umhugsunarefni að við höfum orðið af tækifærum til frekari atvinnuuppbyggingar vegna þess að raforka hefur ekki verið tiltæk til að styðja við vöxt þeirra hér á landi. Markmið okkar er að gagnaver skipi stærri sess í framtíðinni og nái vonandi allt að 10% af raforkusölunni innan fárra ára. Eins bindum við vonir við að nýjar iðngreinar, líkt og landeldi, nái að vaxa og dafna. Við viljum halda áfram að fjölga stoðum útflutnings. Álverin eru frábærir viðskiptavinir með stöðuga raforkunotkun, en með því að bæta við fjölbreyttari iðngreinum styrkjum við verðmætasköpun og lífskjör í landinu til lengri tíma. Framtíðin er björt en krefjandi Samkvæmt nýrri skýrslu Alþjóðaorkustofnunarinnar er „öld raforkunnar“ runnin upp. Raforka er að verða mikilvægasta orkustoð hagkerfa heims og grundvöllur fyrir samkeppnishæfni iðnaðar, stafræna þróun og orkuskipti. Á óvissutímum er það okkar að taka réttar ákvarðanir og horfa fram á veginn. Hjá Landsvirkjun höfum við nýtt fallvötn og jarðhita til verðmætasköpunar í yfir 60 ár. Hugsunin frá upphafi var skýr: að laða að alþjóðlegan iðnað með hagkvæmri orkuvinnslu til að bæta lífskjör á Íslandi. Sú vegferð heldur áfram. Með því að leysa krefjandi verkefnin sem blasa við okkur núna tryggjum við bjartari framtíð fyrir komandi kynslóðir. Höfundur er framkvæmdastjóri Sölu og þjónustu hjá Landsvirkjun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tinna Traustadóttir Mest lesið Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Skoðun Vefurinn kom á undan félaginu Gestur Valgarðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar