Innlent

Truflanir víða vegna eldingaveðurs

Árni Sæberg og Oddur Ævar Gunnarsson skrifa
Líklegast er að truflanir hafi áhrif í efri byggðum höfuðborgarsvæðisins.
Líklegast er að truflanir hafi áhrif í efri byggðum höfuðborgarsvæðisins. Vísir/Vilhelm

Truflanir á rafmagni og hitaveitu eru víða á höfuðborgarsvæðinu vegna eldingaveðurs. Þá var lágur þrýstingur síðdegis á heita vatninu í Hveragerði og Þorlákshöfn og  fleiri stöðum vegna rafmagnstruflana. Þá hefur sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu, meðal annars í Mosfellsbæ og Garðabæ verið lokað vegna veðurs.

Í tilkynningu á vef Veitna segir að eldingar hafi orsakað rafmagnstruflanir á höfuðborgarsvæðinu og víðar á Suðurlandi. Það hafi bein áhrif á dreifingu á heitu vatni á sama svæði.

„Við erum að vinna í málinu og við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.“

Eftirfarandi myndband náði Egill Aðalsteinsson af eldingarveðri í Hveragerði nú síðdegis.

Hafi helst áhrif í efri byggðum

Silja Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna, segir í samtali við Vísi að rafmagnsleysið hafi helst áhrif á dreifingu heits vatns í efri byggðum, þar sem dælur gangi fyrir rafmagni. Talið sé að truflanir komi helst fram í minni þrýstingi á heita vatninu en komi til algjörs vatnsleysis sé mikilvægt að fólk skrúfi fyrir krana, til þess að forða tjóni þegar þrýstingur kemst aftur á.

Ómögulegt sé að segja til um það hversu lengi truflanir muni vara. Það fari alfarið eftir veðri og þá geti tekið einhvern tíma að ná upp þrýstingi á ný eftir að rafmagn kemur á aftur.

Sundlaugum lokað fyrr

Tilkynnt hefur verið um lokanir fyrr í sundlaugum vegna eldingaveðursins. Meðal annars í Mosfellsbæ, auk þess sem sundlaugagestum í Árbæ og Úlfarsárdal var gert að yfirgefa laugarnar fyrr en ella vegna veðursins.

Þá kemur fram í tilkynningu frá Garðabæ á samfélagsmiðlum að sundlaugum bæjarins hafi verið lokað fyrr vegna veðursins. Það eru Ásgarðslaug og Álftaneslaug.

Frétt uppfærð 17:56:

Í tilkynningu frá Veitum segir: „Eðlilegur þrýstingur ætti að vera kominn á heita vatnið alls staðar nema á Kjalarnesi. Það tekur nokkra stund til viðbótar.“

Hefur veðrið áhrif á þig? Hvernig? Sendu okkur ábendingu og myndir á ritstjorn@visir.is eða sem Fréttaskot hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×